Fréttablaðið - 27.08.2010, Qupperneq 59
FÖSTUDAGUR 27. ágúst 2010 39
FÓTBOLTI Adriano Galliani, stjórn-
arformaður AC Milan, er á ferð
og flugi þessa dagana enda ætlar
hann sér að landa heimsklassa-
framherja áður en félagaskipta-
glugginn lokar. Um vika er þang-
að til hann lokar.
Milan vill helst fá Svíann Zlat-
an Ibrahimovic frá Barcelona en
hann kostar skildinginn og er þess
utan afar dýr á fóðrum. Veskið hjá
Milan er ekki eins þykkt og oft
áður og því er ekki víst að félagið
hafi efni á honum.
Galliani hitti Sandro Rosell, for-
seta Barcelona, á miðvikudags-
kvöldið þar sem þeir ræddu um
kaup Milan á Zlatan.
Barca er til í að selja þar sem
samband Svíans við þjálfara Bar-
celona, Pep Guardiola, er afar stirt
en þeir hafa ekki talað saman í
hálft ár. Guardiola vill ekki ræða
það mál á meðan Ibrahimovic er
enn leikmaður félagsins.
Galliani er klár með varaáætlun
fari svo að hann landi ekki Ibra-
himovic. Hann hefur nefnilega
snúið spjótum sínum að Robinho
hjá Man. City en það gæti reynst
auðveldara að fá hann.
Fari svo að Robinho komi til
Milan þá mun liðið stilla upp bras-
ilískri sóknarlínu þar sem fyrir
hjá félaginu eru landar hans Ron-
aldinho og Pato.
„Robinho er varaskeifa ef við
fáum ekki Zlatan. Við viljum samt
fá sænska framherjann,“ sagði
Galliani við fjölmiðla.
Robinho er dýrasti leikmaður í
sögu Man. City en hann var keypt-
ur á sínum tíma frá Real Madrid
fyrir rúmar 32 milljónir punda.
Hann stóð aldrei undir væntingum
og var að lokum lánaður til Santos
í fyrra þar sem hann blómstraði.
- hbg
Forráðamenn AC Milan leita logandi ljósi að nýjum framherja þessa dagana:
Robinho varaskeifa fyrir Zlatan
ENDAR HANN Á ÍTALÍU? Robinho er víðförull knattspyrnumaður og gæti endað hjá
AC Milan áður en mánuðurinn er liðinn. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
GOLF Tiger Woods tekur þessa
dagana þátt í sínu fyrsta golfmóti
síðan skilnaður hans við Elinu
Nordegren gekk í gegn.
Tiger óskar fyrrum eiginkonu
sinni alls hins besta og segir að
börnin þeirra muni hafa forgang
í lífi þeirra.
„Ég fann ekki til neins léttis
þegar skilnaðurinn var frágeng-
inn. Ég var frekar sorgmæddur.
Það gengur enginn í hjónaband
með það að markmiði að skilja.
Þess vegna er þetta sorglegt,”
sagði Tiger á blaðamannafundi.
„Það voru mínar ákvarðanir
sem eyðilögðu þetta hjónaband.
Ég hef gert mörg mistök í mínu
lífi og ég verð að lifa með þeim
mistökum.“
Tiger segir að það hafi ekki
verið auðvelt að spila golf á
meðan verið var að ganga frá
skilnaðinum en hann hefur leikið
mjög illa á köflum.
„Það hefur verið mjög erfitt
fyrir mig að einbeita mér á flest-
um mótum í sumar.“ - hbg
Tiger Woods:
Ég eyðilagði
hjónabandið
EINHLEYPUR TIGER Spilaði illa á meðan
hann kláraði skilnaðinn. GETTY
FÓTBOLTI Laurent Blanc, nýráðinn
landsliðsþjálfari Frakklands,
valdi í gær landsliðshópinn sem
mætir Hvíta-Rússlandi og Bosníu
í undankeppni EM 2012 í upphafi
næsta mánaðar.
Franska landsliðinu gekk
hræðilega á HM í sumar og ekki
voru vandræðin minni utan vall-
ar. Enginn úr HM-hópnum var
valinn þegar Frakkar mættu
Norðmönnum í æfingaleik fyrr
í mánuðinum en nú hefur Blanc
valið níu þeirra í landsliðið á ný,
þar á meðal Florent Malouda,
Gael Clichy, Bacary Sagna og
Abou Diaby.
Hvorki Eric Abidal né Jeremy
Toulalan voru valdir né heldur
Patrice Evra og Franck Ribery
sem eru enn í banni hjá franska
knattspyrnusambandinu fyrir
að hafa átt hvað stærstan þátt í
vandamálum liðsins utan vall-
ar á HM í sumar. Lengsta bann-
ið hlaut þó Nicolas Anelka fyrir
að úthúða Raymond Domenech,
þáverandi landsliðsþjálfara. Ólík-
legt er að hann spili fyrir lands-
liðið aftur. - esá
Franska landsliðið valið:
Blanc valdi níu
úr HM-hópnum