Fréttablaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 17
H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 569 5100 skyrr@skyrr.is Velkomin 3xstörf@Skýrr Skýrr óskar eftir nýjum nördum í landsliðið Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Óðinsdóttir mannauðsstjóri Skýrr í 569 5100 eða ingibjorg.odinsdottir@skyrr.is. Umsóknarfrestur er til og með 20. september næstkomandi. Fullum trúnaði heitið. Öllum umsóknum svarað. Skýrr í hnotskurn Skýrr er stærsta og skemmtilegasta fyrirtæki landsins í upplýsingatækni. Starfsfólk fyrirtækisins er yfir 340 talsins og viðskiptavinir eru um 3.000. Skýrr býður atvinnulífinu samþættar heildarlausnir á sviði hugbúnaðar, rekstrar og fjölbreyttrar ráðgjafar. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru við Ármúla í Reykjavík. Starfsfólkið er helsta auðlind Skýrr. Fyrirtækið er fjölskylduvænt, jafnréttissinnað og tekur tillit til persónulegra aðstæðna fólks. Starfsfólkið er samhentur hópur sérfræðinga með jákvætt viðmót og liðsandann í öndvegi. Sveigjanlegur vinnutími er í boði og vinnuaðstaðan er nútímaleg, opin og þægileg. Skýrr rekur frábært mötuneyti, með bæði heilsufæði og heimilismat. Fyrsta flokks kaffivélar með sérmöluðum eðalbaunum og sódavatn þykja sjálfsögð lífsgæði. Félagslíf innan Skýrr er kraftmikið og líflegt. Óvæntar uppákomur eru tíðar. Aðstaða fyrir börn er góð. Pool-borð, pílukast og tölvuleikjahorn eru til staðar. Gildi Skýrr eru ástríða, snerpa og hæfni. Hugbúnaðarfólk Sérlausnir Skýrr leitar að öflugum einstaklingum til að sinna ráðgjöf og þróun sérlausna. Leitað er að fólki sem hefur reynslu af margs konar tækni- umhverfi og háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða skyldum greinum. 3-5 ára starfsreynsla er æskileg. Mörg stærstu fyrirtæki og stofnanir landsins eru viðskiptavinir Skýrr á sviði sérlausna og almennrar ráðgjafar á sviði upplýsingatækni. Unnið er í fjölbreyttu tækniumhverfi þar sem helsta markmiðið er að mæta þörfum viðskiptavinarins með fyrsta flokks þjónustu. Sérfræðingar Skýrr þjónusta aðila í öllum atvinnugreinum og sinna þar fjölbreyttum verkefnum allt frá smáum ráðgjafaverkefnum upp í sérsmíði á stórum rauntímakerfum. Hugbúnaðarfólk Samþætting Skýrr leitar að hugbúnaðarfólki sem hefur áhuga á að starfa við samþættingu upplýsingakerfa. Einkum er litið til verkfræðinga, tölvunar- fræðinga og kerfisfræðinga með reynslu af hugbúnaðargerð í fjölbreyttu umhverfi. Samþætting upplýsingakerfa hefur verið áherslusvið hjá Skýrr til fjölda ára og viðskiptavinir eru jafnt innlendir sem erlendir. Unnið er með fyrsta flokks verkfæri á þessu sviði, meðal annars frá webMethods, Tibco og Microsoft. Ef þú hefur góða þekkingu eða reynslu á sviði gagnagrunna, Java/J2EE, XML, .NET eða forritun viðskiptakerfa og vilt vinna við það sem efst er á baugi í upplýsingatækni og rafrænum viðskiptum þá er þetta starf fyrir þig. Forritarar Veflausnagúrú Skýrr leitar að gúrú í vefmálum til að vinna við forritun og uppsetningu vefja fyrir stóran hóp viðskiptavina fyrirtækisins. Í boði eru góð laun og spennandi verkefni hjá traustu fyrirtæki. Viðkomandi þarf að hafa gott vald á CSS, HTML, XML, JavaScript, jQuery og .NET. Þekking og reynsla af forritun vefja er nauðsynleg og háskólagráða æskileg. Leitað er að manneskju með ástríðu fyrir vefmálum, manneskju sem fylgist vel með straumum og stefnum á þessu sviði. Ennisblað Umsækjandi þarf að búa yfir mikilli framkvæmdafærni, vera með góða rökhugsun og eiga auðvelt með að skipuleggja sig, tjá sig og leysa vandamál viðskiptavina. Hvirfilblað Umsækjandi þarf að vera vinnuglaður og eiga auðvelt með að skynja og bregðast við áreiti, hvort sem það er frá viðskipta- vinum eða samstarfsfólki. Hnakkablað Umsækjandi þarf að eiga auðvelt með að lesa og skilja skriflegar óskir jafnt samstarfsfólks sem viðskiptavina. Gagnaugablað Umsækjandi þarf að hafa gott minni til að viðhalda góðu sambandi við viðskiptavini og hafa yfirsýn yfir fjölmörg krefjandi verkefni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.