Fréttablaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 30
30 11. september 2010 LAUGARDAGUR S autján ár eru liðin frá því að Shabana Zaman steig fyrst á íslenska jörð. „Sagan mín er dæmigerð ástarsaga. Ég kynntist mannin- um mínum þegar ég var við nám í Bretlandi, við urðum ástfang- in og ég fylgdi honum hingað til Íslands,“ rifjar Shabana upp með bros á vör. Íslenskt samfélag hefur breyst töluvert frá þessum tíma, en þá var þjóðin mun einsleitari en í dag. Engu að síður fann Shabana strax að hún hafði fundið sinn stað í lífinu. „Ég veit ekki hvað það var, en frá fyrsta degi mínum hér á Íslandi fékk ég þá tilfinn- ingu að ég væri komin heim. Og svona líður mér enn í dag. Ég kvarta aldrei yfir veðrinu og mér finnst yndislegt fólk hérna – skemmtilegt, opið og hjálpsamt. Það er að vísu dálítið forvitið líka en það er allt í lagi, það var kannski líka ástæðan fyrir því að ég var fljót að ná til þess.“ Miðlar matarmenningunni Margir matgæðingar þekkja til Shabönu, sem óhætt er að segja að eigi ríkan þátt í því að færa aust- ræna matarmenningu til Íslands. Allt frá því hún kom hingað fyrst hefur hún haldið regluleg mat- reiðslunámskeið, auk þess að hitta hópa fólks, elda fyrir þá og kynna þeim menningu sína um leið. Árið 1997 stofnaði hún veit- ingahúsið Himalaja í Kópavogi en í dag rekur fjölskylda hennar veitingastaðinn Shalimar í Aust- urstræti, sem enginn sem kann að meta indverskan mat ætti að láta framhjá sér fara. Þar starfa meðal annars þrír bræður henn- ar, sem allir eru búsettir hér á landi í dag. Ekki bara að elda Það er ekki bara vegna hæfileika Shabönu til að gæla við bragð- lauka sem hún hefur lagt sig eftir því að kynna matarmenn- ingu sína fyrir landanum. „Ég er ekki eingöngu að elda þegar ég bý til mat handa fólki. Þetta er líka mjög gefandi fyrir mig. Í hvert sinn syng ég einfalt lítið vers á tungumáli mínu, urdu, þar sem ég þakka sólinni og jörðinni fyrir matinn sem við erum um það bil að fara að borða. Þetta eru falleg og einföld skilaboð sem minna fólk á að vera þakk- látt fyrir það sem það hefur. Þetta er ekki tengt neinum trúar- brögðum. Bara hvatning til fólks að opna augun og muna að jörðin gefur okkur fæðuna og skínandi sólin er orka lífsins. Án þeirra væri ekki neitt á borðinu.“ Henni þykir svolítið vanta upp á að Íslendingar sýni þakklæti fyrir hvað þeir hafa það gott. „Hér á Íslandi eigum við ofsa- lega mikið og kannski erum við ekki nægilega þakklát fyrir það. Allt þetta vatn og öll þessi orka er álitið sjálfsagður hlutur. Fólk notar þetta án meðvitundar.“ Höfuð, hjarta og hendur Þessi meðvitund um stóra sam- hengið í heiminum er Shabönu hugleikin og hefur verið rauði þráðurinn í gegnum allt henn- ar líf. Í Bretlandi lærði hún að verða Waldorfskólakennari, en hún hefur starfað í Waldorf- skólum hér á Íslandi í fimmtán ár. Í grunnskólanum Sólstöfum í Hraunbergi kennir hún börn- um allt frá sex ára bekk og upp í tíunda bekk ensku og leiklist. Það þarf ekki að tala lengi við Shabönu til að heyra að skólinn á hug hennar allan. Þar er vist- vernd og umhyggja fyrir nátt- úrunni í hávegum höfð. Shabana furðar sig á hvað fáir foreldrar snúa sér til Waldorfskólans með börnin sín. „Sumir halda að Wald- orfskólinn sé bara fyrir sérstök börn. En það er ekki satt. Hann er fyrir öll börn, frá sex ára og upp í 10. bekk. Við kennum þeim að nota á sér höfuðið, hjartað og hendurnar til jafns, því við vitum að nemendur læra ekki bara með höfðinu. Námsefnið þarf að ná út í útlimina einnig.“ Í skólanum er líka mikil áhersla lögð á að nota tónlist, myndlist og leiklist til að nálgast efnið út frá ólíkum sjónarhornum. Kennari les ekki upp úr bók heldur segir munnlega frá og reynir að tala til barnanna út frá hjartanu. „Ég spyr mig stundum þeirr- ar spurningar hvar foreldrarn- ir eru, sem vilja að börnin þeirra eigi alveg sérstaka skólagöngu. Vita þeir ekki af okkur?” Leikkona í Pakistan Þótt leiklist sé Shabönu hugleikin hefur hún lítið leikið sjálf, síðan hún kom til Íslands. Hún tók þó að sér lítið hlutverk í síðustu kvikmynd Friðriks Þórs Frið- rikssonar, Mömmu Gógó, en þar lék hún hjúkrunarkonu. Áður en hún fluttist frá Pakistan var hún hins vegar á góðri leið með að verða þjóðþekkt leikkona, rétt rúmlega tvítug. „Ég hafði séð um spurningaþátt fyrir börn í sjónvarpinu. Þar kom leikstjóri nýrrar sjónvarpsþáttaraðar auga á mig og vildi fá mig til að leika í nýjum þætti hjá sér. Ég var himinlifandi, en um leið dálít- ið döpur, vegna þess að í Pakist- an, á þessum tíma, þótti það ekki viðeigandi fyrir konur að verða leikkonur. En ég skrifaði undir samninginn, eins og í leiðslu,“ rifjar Shabana upp. Shabana byrjaði að leika í þátt- unum án þess að segja fjölskyld- unni sinni frá því. Svo kom að frumsýningardegi og Shabana læsti sig inni í herbergi og beið átekta. „Öll fjölskyldan mín var sest við sjónvarpið til að horfa á þennan nýja þátt, því Pakistan- ar elska sjónvarpsdrama. Ég sat inni í herbergi og skalf á bein- unum. Svo heyrði ég raddirnar: „Þetta er Shabana!“ „Nei, þetta er ekki Shabana, líkist henni bara … heyrðu, eða hvað. Þetta er hún!“ „SHABAAANAAAA!!!“ skræktu þau svo!“ Og nú þurfti Shabana heldur betur að skýra sitt mál. Þegar leikaraferillinn var rétt að taka flugið fékk Shabana hins vegar jákvætt svar frá Bret- landi frá háskóla sem hún hafði sótt um þar. „Svo þeir þurftu að drepa mig í hvelli,“ segir Sha- bana og hlær. Búin var til dram- atísk sena þar sem karakter Sha- bönu var skotinn. Og þar með var hún farin frá Pakistan. Indland og Pakistan Shabana er frá Lahore í Punjab- héraði, sem tilheyrir pakistönsku svæði á Norður-Indlandi. Henni þykir leiðinlegt hvað umræðan um Pakistan er neikvæð og ein- hliða. Hún segir til að mynda lít- inn mun á Indlandi og Pakistan, þótt það fyrra sé jafnan sveipað dulúð og þyki spennandi í augum fólks. „Fyrir sextíu árum var Pakistan hluti af Indlandi. Fötin sem við klæðumst, maturinn sem við borðum og jafnvel tungumál- in eru þau sömu. Trúin er önnur, þótt það sé reyndar fjöldi mús- lima á Indlandi.“ Hún telur slæma ímynd Pak- istans í augum heimsins fyrst og fremst koma til vegna þess að landið sé íslamskt lýðveldi, auk þess sem aldrei hafi verið gerðar tilraunir til að markaðs- setja landið sem áfangastað fyrir ferðamenn. „Þegar þú hugsar um Indland sérðu fyrir þér dýrðlega liti, ótrúleg landsvæði og alls konar dýr. Þessar myndir koma ekki upp þegar fólk leiðir hugann að Pakistan.“ Ábyrgð fjölmiðla mikil Fjölmiðlar eiga sinn þátt í að skapa þá mynd sem íbúar á vest- urlöndum hafa af Pakistan. „Fjöl- miðlun er svo flókið fyrirbæri. Hver ákveður til dæmis hvaða hliðar á að sýna á málefnunum, þær jákvæðu eða þær neikvæðu? Fólk verður að nota skynsemi sína og átta sig á því að það er ekki allt satt sem stendur í blöð- unum. Ég er ekki að segja að Pak- istan sé að öllu leyti góður staður. Þar gerast margir slæmir hlut- ir. En þar gerast líka jákvæðir hlutir. Það er ekkert jafnvægi í þeirri mynd sem fjölmiðlar sýna okkur.“ Hún telur dræm viðbrögð alþjóðasamfélagsins vegna flóðanna í Pakistan í ágúst, og þeirra hörmunga sem riðu yfir í kjölfar þeirra, koma til vegna þessa. „Aftur held ég að fjöl- miðlarnir eigi mikla sök. Það er til að mynda ótrúlegur fjöldi fólks sem er að hjálpa á þessum svæðum, en fær litla athygli og aðstoð frá fjölmiðlum. Fjölmiðl- arnir hafa mikil áhrif á hvern- ig við skynjum heiminn og hafa þannig bein áhrif á ákvarðanir okkar, til dæmis að hverjum við ákveðum að rétta hjálparhönd, og hverjum ekki. Við erum orðin hálfgerðar strengjabrúður, hugs- um ekki sjálf heldur gleypum við hlutum án þess að hugsa okkur um tvisvar. Það er kominn tími til að vakna, fólk!“ Með höfði, hjarta og höndum Fyrir tuttugu árum lagði ung og upprennandi sjónvarpsstjarna leikferilinn á hilluna, yfirgaf heimahagana í Pakistan og hélt til Bretlands í háskólanám. Fáeinum árum seinna hreif ástin hana með sér alla leið til Íslands. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir heimsótti kennarann, mat- reiðslumeistarann og hugsjónakonuna Shabönu Zaman sem vill að Íslendingar vakni til meðvitundar um umhverfi sitt og umheiminn. VIÐ WALDORF-SKÓLANN SÓLSTAFI Shabana Zaman kennir meðal annars ensku og leiklist við Waldorf-skólann Sólstafi í Efra- Breiðholti. Stefna skólans byggir á umhyggju fyrir umhverfinu. Þá stefnu vinnur Shabana með á öllum sviðum, hvort sem er í kennslunni eða þegar hún kynnir matarmenningu þjóðar sinnar fyrir Íslendingum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Þegar þú hugsar um Indland sérðu fyrir þér dýrðlega liti, ótrúleg landsvæði og alls konar dýr. Þessar myndir koma ekki upp þegar fólk leiðir hugann að Pakistan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.