Fréttablaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 11. september 2010 15 HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Ráðningarþjónusta RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Leitar þú að starfsmanni? HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi þjónustu hvort sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærðra eða sérfræðinga. Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is Vinnusparnaður Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar, tökum forviðtöl og öflum umsagna. Markviss leit Sérskrifaður hugbúnaður gerir leit afar markvissa og tryggir að við finnum hæfasta einstaklinginn. Þriggja mánaða ábyrgð Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er ráðning í hans stað án endurgjalds. Ekkert staðfestingargjald Við leggjum áherslu á að rækta árangursríkt og ánægjulegt langtímasamband við viðskiptavini okkar og því greiðir þú ekkert ef ekki verður af ráðningu. Fjöldi hæfra umsækjenda Fjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn fyrir starfið. Fjölbreyttar þjónustuleiðir Í boði eru fjölbreyttar þjónustuleiðir sniðnar að þörfum og væntingum viðskiptavina okkar. Þú finnur lausnina hjá okkur. Reynsla og þekking Hjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna- mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og hagnýtri menntun. Sanngjarnt verð Bjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð! HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks. Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.: Próf í verðbréfaviðskiptum 2010–2011 Prófnefnd verðbréfaviðskipta stendur fyrir prófum í verðbréfaviðskiptum veturinn 2010-2011 sem hér segir: Próf í I. hluta verða haldin 30. október, 3. og 6. nóvember 2010, próf í II. hluta 22., 26. og 29. janúar 2011 og próf í III. hluta 27., 30. apríl, 4. og 7. maí 2011. Um prófin fer samkvæmt reglugerð nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum, með áorðnum breytingum. Vakin er athygli á að próf í verðbréfaviðskiptum verða ekki haldin nema að a.m.k. 10 manns hafi skráð sig í próf, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 633/2003 um próf í verðbréfa- viðskiptum. Sama á við um haustpróf 2011. Öllum er heimilt að skrá sig til verðbréfaviðskiptaprófs. Prófnefnd verðbréfaviðskipta tekur ákvörðun um efni sem prófað er úr á verðbréfaviðskiptaprófi og semur prófsefnislýsingu, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 633/2003. Í prófsefnislýsingu greinir jafnframt upplýsingar um leyfileg hjálpargögn í prófum o.fl., en lýsinguna má nálgast á vefsíðu efnahags- og viðskiptaráðuneytis, www.efnahagsraduneyti. is (Prófnefndir > Prófnefnd verðbréfaviðskipta). Lengd hvers prófs er allt að 4 klukkustundir. Um undanþágur frá töku prófa fer skv. 4. gr. reglugerðar nr. 633/2003. Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0 til 10. Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr þeim prófum sem hann hefur þreytt og skal próftaki hafa lokið öllum nauðsynlegum prófum með fullnægjandi árangri innan þriggja ára frá því að hann tók fyrsta prófið. Próftaki telst ekki hafa staðist einstök próf hljóti hann lægri einkunn en 5,0. Nánari upplýsingar um verðbréfaviðskiptapróf má nálgast á fyrrgreindri vefsíðu prófnefndar. Próftökum verður tilkynnt um nákvæmari tíma- og staðsetningu er nær dregur prófunum, sem þreytt verða í húsakynnum á vegum Opna háskólans í Háskólanum í Reykjavík. Skráning í prófin fer fram á vefsíðu Opna háskólans www.opnihaskolinn.is. Próftakar verða að hafa skráð sig og greitt prófgjald minnst einni viku fyrir sérhvert próf. Prófgjald verður auglýst síðar á heimasíðu próf- nefndar á vefsíðu viðskiptaráðuneytisins http:// www.efnahagsraduneyti.is/profnefndir/nr/2844. Reykjavík,11. september 2010 Prófnefnd verðbréfaviðskipta P IP A R \T B W A • S ÍA • 102222 Rannsóknasetur í kerfislíffræði Rannsóknasetur í kerfislíffræði leitar að áhugasömum nýdoktorum og doktorsnemum til að vinna að rannsóknum í kerfislíffræði með áherslu á efnaskiptaferla manna. Rannsóknasetrið er þverfræðileg eining innan Heilbrigðisvísinda- og Verkfræði- og náttúruvísindasviða Háskólans þar sem unnið er að rannsóknum á efnaskiptaferlum manna annars vegar og líftækni hins vegar. Starf nýdoktors í reiknilegri kerfislíffræði manna. Nýdoktornum er ætlað að stunda rannsóknir í reiknilegri kerfislíffræði manna. Starfið felst í að þróa sérhæfð frumu- og vefja-tölvulíkön sem líkja eftir heilbrigðu ástandi og sjúkdómum. Nýdoktorinn mun þróa og prófa reiknilegar aðferðir byggðar á aðgerðagreiningu. Verkefnið felur í sér prófun á efnaskiptalíkönum og innleiðingu magnbundinna upplýsinga sem skorða líkanið. Nýdoktorinn mun einnig taka þátt í þróun ýmiss hugbúnaðar sem nauðsynlegur er fyrir starfsemi Rannsóknaseturs í kerfislíffræði. Starf nýdoktors við rannsóknir og þróun á örvökva frumuræktunarkerfi (e. microfluidic cell culture system). Nýdoktornum er ætlað að rannsaka og þróa örvökva frumuræktunarkerfi. Markmiðið með því að nota slíkt kerfi við frumuræktun er að auka næmni mælinga á niðurbrotsefnum fruma í ætinu. Með þessum aðferðum má einnig auka sjálfvirkni og afköst mælinga. Styrkur til doktorsnáms í kerfislíffræði: Hönnun og þróun efnaskiptaneta örverusamfélags. Tölvulíkön af efnaskiptaferlum gera mögulegt að rannsaka og herma eftir hegðun fruma í tölvu. Aðferð við hönnun slíkra líkana fyrir einstaka örverur/frumur er vel þekkt. Samfélög örvera skipta miklu máli fyrir heilsu manna og sjúkdóma. Skilningur á samspili efnaskiptaferla örvera er því mikilvægur við þróun lyfja. Verkefnið felst í að hanna og þróa slík líkön af efnaskiptaferlum samfélaga örvera. Sjá nánar um menntunar- og hæfniskröfur og ítarlegri upplýsingar um verkefnin á vef Rannsóknasetursins: http://systemsbiology.hi.is Auglýsingasími Allt sem þú þarft…
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.