Fréttablaðið - 11.09.2010, Qupperneq 61
LAUGARDAGUR 11. september 2010 15
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Ráðningarþjónusta
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Leitar þú að starfsmanni?
HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi
þjónustu hvort sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærðra eða sérfræðinga.
Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is
Vinnusparnaður
Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar,
tökum forviðtöl og öflum umsagna.
Markviss leit
Sérskrifaður hugbúnaður gerir leit afar markvissa og
tryggir að við finnum hæfasta einstaklinginn.
Þriggja mánaða ábyrgð
Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er
ráðning í hans stað án endurgjalds.
Ekkert staðfestingargjald
Við leggjum áherslu á að rækta árangursríkt og ánægjulegt
langtímasamband við viðskiptavini okkar og því greiðir þú
ekkert ef ekki verður af ráðningu.
Fjöldi hæfra umsækjenda
Fjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni
okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn
fyrir starfið.
Fjölbreyttar þjónustuleiðir
Í boði eru fjölbreyttar þjónustuleiðir sniðnar að þörfum
og væntingum viðskiptavina okkar. Þú finnur lausnina
hjá okkur.
Reynsla og þekking
Hjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna-
mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og
hagnýtri menntun.
Sanngjarnt verð
Bjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á
þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð!
HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita
afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks.
Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.:
Próf í verðbréfaviðskiptum
2010–2011
Prófnefnd verðbréfaviðskipta stendur fyrir prófum
í verðbréfaviðskiptum veturinn 2010-2011 sem hér
segir: Próf í I. hluta verða haldin 30. október, 3. og
6. nóvember 2010, próf í II. hluta 22., 26. og 29.
janúar 2011 og próf í III. hluta 27., 30. apríl, 4. og
7. maí 2011. Um prófin fer samkvæmt reglugerð
nr. 633/2003 um próf í verðbréfaviðskiptum, með
áorðnum breytingum. Vakin er athygli á að próf
í verðbréfaviðskiptum verða ekki haldin nema
að a.m.k. 10 manns hafi skráð sig í próf, sbr. 2.
gr. reglugerðar nr. 633/2003 um próf í verðbréfa-
viðskiptum. Sama á við um haustpróf 2011. Öllum
er heimilt að skrá sig til verðbréfaviðskiptaprófs.
Prófnefnd verðbréfaviðskipta tekur ákvörðun um
efni sem prófað er úr á verðbréfaviðskiptaprófi
og semur prófsefnislýsingu, sbr. 3. gr. reglugerðar
nr. 633/2003. Í prófsefnislýsingu greinir jafnframt
upplýsingar um leyfileg hjálpargögn í prófum o.fl.,
en lýsinguna má nálgast á vefsíðu efnahags- og
viðskiptaráðuneytis, www.efnahagsraduneyti.
is (Prófnefndir > Prófnefnd verðbréfaviðskipta).
Lengd hvers prófs er allt að 4 klukkustundir. Um
undanþágur frá töku prófa fer skv. 4. gr. reglugerðar
nr. 633/2003. Einkunnir í einstökum prófum eru
gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0 til 10. Til þess
að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf próftaki að
hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr þeim prófum
sem hann hefur þreytt og skal próftaki hafa lokið
öllum nauðsynlegum prófum með fullnægjandi
árangri innan þriggja ára frá því að hann tók
fyrsta prófið. Próftaki telst ekki hafa staðist einstök
próf hljóti hann lægri einkunn en 5,0. Nánari
upplýsingar um verðbréfaviðskiptapróf má nálgast
á fyrrgreindri vefsíðu prófnefndar.
Próftökum verður tilkynnt um nákvæmari tíma- og
staðsetningu er nær dregur prófunum, sem þreytt
verða í húsakynnum á vegum Opna háskólans í
Háskólanum í Reykjavík.
Skráning í prófin fer fram á vefsíðu Opna háskólans
www.opnihaskolinn.is. Próftakar verða að hafa
skráð sig og greitt prófgjald minnst einni viku fyrir
sérhvert próf.
Prófgjald verður auglýst síðar á heimasíðu próf-
nefndar á vefsíðu viðskiptaráðuneytisins http://
www.efnahagsraduneyti.is/profnefndir/nr/2844.
Reykjavík,11. september 2010
Prófnefnd verðbréfaviðskipta
P
IP
A
R
\T
B
W
A
• S
ÍA
• 102222
Rannsóknasetur í kerfislíffræði
Rannsóknasetur í kerfislíffræði leitar að áhugasömum nýdoktorum og doktorsnemum til að
vinna að rannsóknum í kerfislíffræði með áherslu á efnaskiptaferla manna. Rannsóknasetrið
er þverfræðileg eining innan Heilbrigðisvísinda- og Verkfræði- og náttúruvísindasviða
Háskólans þar sem unnið er að rannsóknum á efnaskiptaferlum manna annars vegar og
líftækni hins vegar.
Starf nýdoktors í reiknilegri kerfislíffræði manna.
Nýdoktornum er ætlað að stunda rannsóknir í reiknilegri kerfislíffræði manna. Starfið felst
í að þróa sérhæfð frumu- og vefja-tölvulíkön sem líkja eftir heilbrigðu ástandi og sjúkdómum.
Nýdoktorinn mun þróa og prófa reiknilegar aðferðir byggðar á aðgerðagreiningu. Verkefnið
felur í sér prófun á efnaskiptalíkönum og innleiðingu magnbundinna upplýsinga sem skorða
líkanið. Nýdoktorinn mun einnig taka þátt í þróun ýmiss hugbúnaðar sem nauðsynlegur er fyrir
starfsemi Rannsóknaseturs í kerfislíffræði.
Starf nýdoktors við rannsóknir og þróun á örvökva frumuræktunarkerfi
(e. microfluidic cell culture system).
Nýdoktornum er ætlað að rannsaka og þróa örvökva frumuræktunarkerfi. Markmiðið með
því að nota slíkt kerfi við frumuræktun er að auka næmni mælinga á niðurbrotsefnum
fruma í ætinu. Með þessum aðferðum má einnig auka sjálfvirkni og afköst mælinga.
Styrkur til doktorsnáms í kerfislíffræði: Hönnun og þróun efnaskiptaneta örverusamfélags.
Tölvulíkön af efnaskiptaferlum gera mögulegt að rannsaka og herma eftir hegðun fruma
í tölvu. Aðferð við hönnun slíkra líkana fyrir einstaka örverur/frumur er vel þekkt. Samfélög
örvera skipta miklu máli fyrir heilsu manna og sjúkdóma. Skilningur á samspili efnaskiptaferla
örvera er því mikilvægur við þróun lyfja. Verkefnið felst í að hanna og þróa slík líkön af
efnaskiptaferlum samfélaga örvera.
Sjá nánar um menntunar- og hæfniskröfur og ítarlegri upplýsingar um verkefnin
á vef Rannsóknasetursins: http://systemsbiology.hi.is
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…