Fréttablaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 94
54 11. september 2010 LAUGARDAGUR Um síðustu helgi var herleg hátíð í Reykjavík og Hafnarfirði. Mikið er um dýrðir hjá áhuga- fólki um leiklist þegar hægt er að sjá margar sýningar á hverjum degi af því sem ungt leikhúsfólk er að fást við í nágrannalöndunum. Á Lokal-leiklistarhátíðinni í þetta sinn voru það fyrst og fremst Norðurlöndin sem kynnt voru með sinni frábæru dramatík. Ibsen og (ekki) Brecht Teater Weimar, sænskur leik- hópur, kom sér fyrir í Leiklist- arskólanum. Ibsen reit um erfða- synd eða föðurarfleifð í leikverki sínu um Afturgöngurnar. Hvern- ig á að túlka og hvernig á að nálg- ast þetta eldfima efni og þennan listavel skrifaða texta? Í sýningu í leiklistardeild Listaháskólans eru það tveir ungir sænskir flin- kir leikarar sem henda sér í flest hlutverk verksins. Í meira en ald- argamalli umgjörð reyna þeir að byggja upp þá spennu sem allan tímann verður í samtali tveggja í verkinu. Stór hluti samtalanna var hálfgert tuldur sem síðan hækkaði og hækkaði, stöðug átök í tveggja manna tali. Sýningin var líklega mjög erfið fyrir þá sem ekki gjörþekktu textann og málið. Það var ansi mikið stunið í saln- um og flestir fegnir að komast út í haust-svalann. Einkennilegt val á verki á hátíð sem þessa. Í Kassa Þjóðleikhússins gaf að líta Kabarett finnlandssænska hópsins Nya Rampen með Und- antaget (Undantekninguna) sem var ekki bara skemmtileg og nýstárleg heldur full af eftirtekt- arverðum lausnum og leikgleðin í algleymingi. Hópurinn fer sína eigin leið í að smíða kabarett og einstaka sýningu eftir að hafa farið á fund leyfishafa Brecht-texta og fengið neitun. Því varð úr bráðskemmti- legur kabarett með mörgum skemmtilegum lausnum. Húmor- inn ræður ekki litlu í samsetningu á svona verki fyrir utan að þau voru fantagóðir tónlistarmenn. Þau hófu leikinn á því að tengja saman sængur og mynda svo úr þeim tjald en luku leiknum með því að loka hreinlega með fjórða veggnum og kveðja okkur svo sem brúður sem teygja sig upp fyrir múra. Dvergurinn og upprunaleit Samnorræni hópurinn sem kall- ar sig Teater Får 302 skellti sér á bólakaf inn í hugarheim einn- ar þekktustu skáldsagnapersónu sænskra bókmennta á fimmta ára- tugnum, nefnilega dvergsins úr samnefndri skáldsögu Pär Lag- erkvists undir stjórn Egils Heið- ars Antons Pálssonar. Þrjár konur og þrír karlar skipta á milli sín bróðurparti text- ans en tala þó öll úr munni dvergs- ins. Atburðarás bókarinnar var lengst af haldið þó með nokkrum innskotum og tilfæringum en eng- inn í raunverulegu aðalhlutverki. Hér var öskrað, brölt og sullað og skvett og konurnar áberandi miklu betri leikarar en karlarnir. Þetta var mikið sjónarspil og von- andi verða sýningarnar fleiri. The Black Tie nefnist verk hópsins Rimini. Í Borgarleikhús- inu stóð ung þýsk leikkona af kór- eskum uppruna sem með hjálp Powerpoint-tækninnar brá upp mynd sem hún sjálf varð hluti af. Þýsk ljóshærð fjölskylda, mamma, pabbi og tvö börn, FÆR sér eitt barn í viðbót, eitt barn sem fund- ist hafði í skókassa vafið inn í dag- blað í höfuðborg Kóreu. Leitin að upprunanum skiptir máli og leitin að sjálfri sér skipt- ir máli, höfnun uppeldisforeldr- anna og upptalning á öllu því sem þau kostuðu hana, skipti máli og eins skiptu falskar vonir um ein- hvers konar svar við upprunanum gegnum genabanka einnig máli. Það kom glettilega fram í þessu heimildarverki að Íslensk erfða- greining fæst við að selja einhvers konar hókuspókus-próf þar sem fólk á að fá einhver svör við gena- samsetningu sinni, greinilegt að nýju fötin keisarans eða einhver álíka ævintýri eru trúverðugri. Sjónleikur Draumsins Rúsínan í pysluendanum, Drömm- en eða Draumurinn, er mikið sjónlistarverk í höndum norska leikhópsins De Utvalgte. Þar var einnig ný eða þróuð power point- tækni. Áhorfendur Hafnarfjarðarleik- hússins urðu að klifra upp undir rjá- fur og horfa niður á mynd sem birt- ist á gólffleti um leið og leikið var á gólfinu og eins í þrívídd fyrir aftan það tjald sem kvikmyndir einnig birtust á. Margbreytileiki og stemn- ing með áherslu á hinn hljóðræna og sjónræna þátt verksins skapar heild- ina. Sú litla saga sem lá til grund- vallar var í sjálfu sér ekkert merki- leg. Ungi maðurinn í viðtali við klisjukenndan sálfræðing sem átti að finna út úr því hvort hann væri sakhæfur. Það voru myndskeiðin og hvernig þau voru framreidd sem voru nýstárleg. Elísabet Brekkan. Niðurstaða: Að mörgu leyti athygl- isverð hátíð en á heildina var það „heimildarleikhúsvinnan“ ásamt tækninni að hverfa inn í myndverkið, sem stóð upp úr. Illska, nekt og ný tækni Leiklist Lokal Alþjóðleg leiklistarhátíð í Reykjavík FÉLAG KVIKMYNDAGER ARMANNA Félag kvikmyndager armanna augl sir eftir umsóknum til úthlutunar úr höfundasjó i félagsins fyrir kvikmyndir sem frums ndar voru í sjónvarpi e a kvikmyndahúsum, gefnar út á DVD, e a birtar me ö rum hætti fyrsta sinn á árinu 2009. Rétt til úthlutunar skv. sam ykktum FK eiga: - Kvikmyndastjórar (ekki leiknar myndir) - Kvikmyndatökumenn - Klipparar - Hljó höfundar - Ljósahönnu ir essi úthlutun tekur eingöngu til eirra kvikmyndaverka sem s nd voru e a gefin út ári 2009. Umsóknarey ubla er a finna á vef félagsins www.filmmakers.is Umsóknir skulu berast Félagi kvikmyndager amanna, pósthólf 1652, 121 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 1. október 2010. Ekki ver ur teki tillit til umsókna sem berast eftir ann tíma. Skyndihjálp - Lærðu að bjarga mannslífi Lærðu að bregðast við þegar mínútur skipta máli. Styttri og lengri námskeið í boði. 4 stundir: Í Kópavogi 15. sept., Hafnarfirði 18. sept. og 18. nóv., Mosfellsbæ 28.sept. og Álftanesi 11. nóv. 16 stundir: Í Reykjavík 11.-13. okt., 25.-27. okt. og 22.-24. nóv. Veitir einingu í framhaldsskóla Skráning á www.raudikrossinn.is og hjá deildum á höfuðborgarsvæðinu Álftanesdeild, s: 565 2425. alftanes@redcross.is Garðabæjardeild, Hrísmóum 4 Garðatorgi, s: 565 9494. gardabaer@redcross.is Hafnarfjarðardeild, Strandgötu 24, s: 565 1222. hafnarfjordur@redcross.is Kjósarsýsludeild, Rauðakrosshúsinu Þverholti 7, Mosfellsbæ, s: 564 6035. kjos@redcross.is Kópavogsdeild, Rauðakrosshúsinu Hamraborg 11, s: 554 6626. kopavogur@redcross.is Reykjavíkurdeild, Laugavegi 120, s: 545 0400. reykjavik@redcross.is á höfuðborgarsvæðinu Slys á börnum - Gott fyrir foreldra og eldri systkini Lærðu um orsakir og varnir gegn slysum á börnum, einkenni algengra veikinda, þroska barna, endurlífgun og viðbrögð við áfalli. Átta stunda námskeið. Í Kópavogi 20. og 21. sept., Álftanesi 21. okt., Hafnarfirði 1. og 3. nóv. og Mosfellsbæ 16. og 18. nóv. Sálrænn stuðningur - Viðbrögð við áföllum Lærðu að veita öðrum stuðning og umhyggju eftir áföll. Lærðu um eðlileg viðbrögð fólks sem lendir í sársaukafullum aðstæðum. Fjögurra stunda námskeið. Í Hafnarfirði 23. sept. og 21. okt., Kópavogi 5. okt. og Mosfellsbæ 7. okt. Framhaldsnámskeið í Hafnarfirði 18. nóv. Félagsvinir kvenna og barna af erlendum uppruna Námskeið fyrir sjálfboðaliða sem vilja aðstoða konu eða barn af erlendum uppruna að fóta sig í íslensku samfélagi og rjúfa félagslega einangrun. Í Reykjavík 16. sept. Genfarsamningarnir og hjálparstarf á átakasvæðum Kynning á mannréttindasamningum sem gilda í stríði og reynslu sendifulltrúa af átakasvæðum. Í Reykjavík 14. okt. Rauða kross námskeið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.