Fréttablaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 92
52 11. september 2010 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Bókaforlagið Veröld hefur gefið út bók-
ina Þú sem ert á himnum – rýnt í bresti
biblíunnar með guði almáttugum eftir
Úlfar Þormóðsson. Í bókinni fer Úlfar
í gegnum biblíuna og leitast við
að draga upp mynd af þeim
guði sem þar er að finna, milli
þess sem hann bregður sér inn í
nútímann og tengir innihald biblíunn-
ar veruleika okkar og útlegging-
um kirkjunnar manna á bók
bókanna.
Nokkur gróska er í útgáfu
rita af guð- og trúfræðilegum
toga um þessar mundir. Í
upphafi mánaðar gaf Opna
út bókina Trú - Mannfólkið
andspænis guði sínum eftir
Norðmanninn Ken Opprann. Opprann
ferðaðist um heiminn í fimmtán ár og
ljósmyndaði ótal trúarhátíðir, vitjaði
sögufrægra helgistaða og leitaðist
við að festa tjáningu trúarinnar á
mynd. Þá gaf Ormstunga nýlega
út Ranghugmyndina um guð eftir
Richard Dawkins í íslenskri þýðingu,
en þar hjólar þróunarlíffræðing-
urinn í hugmyndina um æðri
máttarvöld. Loks má geta að
í vor kom út á vegum Upp-
heima smásagnakverið Hver
ert þú? eftir Njörð P. Njarð-
vík, þar sem höfundurinn
endusegir frásagnir af Jesú
Kristi frá sjónarhóli þeirra
sem urðu á vegi hans.
Trúarvakning í bókaútgáfu
Vetrardagskrá Útvarps-
leikhússins hefst á sunnu-
dag þegar leikritið Djúp-
ið eftir Jón Atla Jónasson
verður frumflutt. Útvarps-
leikhúsið hefur breyst frá
því sem var, að mati Viðars
Eggertssonar leikhússtjóra
og forsendur og möguleik-
ar útvarpsins höfð í fyrir-
rúmi.
Þótt Útvarpsleikhúsið sendi út
leikrit árið um kring markar
frumflutningur Djúpsins eftir Jón
Atla Jónasson á Rás 1 á sunnudag
formlegt upphaf vetrardagskrár-
innar. Verkið var upphaflega sett
upp sem einleikur á sviði með
Ingvari Sigurðssyni í aðalhlut-
verki, sem endurtekur leikinn í
Útvarpsleikhúsinu.
„Þegar ég fer í leikhús hlusta
ég gjarnan á verkin, frekar en að
horfa, og reyni að átta mig á hvort
þau henti útvarpinu,“ segir Viðar.
„Og Djúpið er verk sem kemst
líklega nær manni í útvarpi en
á sviði,“ segir Viðar; leikarinn
og hljóðmyndin fara alveg inn
í mann í gegnum hljóðnemann
meðan það myndast alltaf ákveð-
in fjarlægð þegar maður situr úti
í sal og horfir upp á svið.“ Viðar
er annars hreykinn af þeirri stað-
reynd að öll önnur frumflutt verk
í Útvarpsleikhúsinu í vetur eru
íslensk og samin gagngert fyrir
útvarp.
„Íslendingar eru svo lánsam-
ir að eiga mörg leikskáld sem
skrifa fyrir útvarp, okkur berast
langtum fleiri verk en við komum
að.“ Viðar segir að áður fyrr hafi
Útvarpsleikhúsið snúist meira um
að setja upp sviðsverk en í seinni
tíð hafi það fikrast inn á sitt eigið
svið.
„Nú eru verkin unnin á for-
sendum útvarpsins og nýttir þeir
möguleikar sem útvarpið býður
upp á, til dæmis klippt fram og
til baka og við getum farið inn í
hugarheim fólks.“ Að þessu leyti
eigi útvarpið meira skylt við kvik-
myndina en leikhúsið, þar sem
nota megi hljóðnemann líkt og
myndavél.
„Nema útvarpið er fyrst og
fremst leikhús ímyndunarafls-
ins, sem slær öllum leikmynd-
um og sjónrænni framsetningu
við. Og það er það sem við reyn-
um að gera á hverjum sunnudegi
í Útvarpsleikhúsinu; að kveikja
á ímyndunaraflinu svo fólk geti
lokað augunum og séð miklu
meira en með augun opin.“
Auk reglulegrar dagskrár
klukkan 14 alla sunnudaga, flyt-
ur Útvarpsleikhúsið einu sinni í
mánuði gamlar perlur úr safni
RÚV síðla á fimmtudagskvöld-
um. bergsteinn@frettabladid.is
Útvarp er leikhús
ímyndunaraflsins
Klukkan 15
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, opnar sýn-
ingu á verkum Sigríðar Heimisdótt-
ur iðnhönnuðar í Hönnunarsafninu
í Garðabæ klukkan 15 í dag. Sýn-
ingin verður opin almenningi frá og
með sunnudeginum 12. september. Á
mánudag klukkan 20 flytur Sigríður
síðan fyrirlestur í Hönnunarsafninu.
LEIKHÚSSTJÓRINN Útvarpið kveikir á ímyndunaraflinu svo fólk sjái meira með augun
lokuð en opin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
FRUMFLUTT VERK
ÚTVARPSLEIK-
HÚSSINS Í VETUR:
■ Djúpið eftir Jón Atla Jónasson
■ Haukur og Lilja eftir Elísabetu
Jökulsdóttur
■ Fyrir hamarinn eftir Guð-
mund Oddsson
■ Gamalt fólk fer ekki út á
kvöldin eftir Þorstein Marels-
son
■ Náföl (vinnuheiti) eftir Ævar
Þór Benediktsson
■ Herbergi 408 eftir Hrafnhildi
Hagalín og Steinunni Knúts-
dóttur
■ Í speglinum sefur kónguló
eftir Kristínu Ómarsdóttur.
> Ekki missa af …
Síðustu sýningarhelgi Edvard
Munch og Cindy Sherman í
Listasafni Íslands. Á sunnu-
dag klukkan 14 verður Dagný
Heiðdal listfræðingur með
leiðsögn um sýningu á grafík-
verkum úr fórum listasafnsins
eftir Edvard Munch og sýningu
á ljósmyndaverkum Cindy
Sherman. Báðum sýningunum
lýkur sama dag.
Nema útvarpið er
fyrst og fremst leik-
hús ímyndunaraflsins, sem
slær öllum leikmyndum og
sjónrænni framsetningu við.
VIÐAR EGGERTSSON
ÚTVARPSLEIKHÚSSTJÓRI
„… snilldarbók, gæskurík og sönn
eins og ís, eins og eldur. Ef þessi
bók breytir ekki heiminum erum
við öll rugluð.“
– Penn and Teller
„Þróunarlíffræðingurinn Richard
Dawkins hefur skrifað æsilegustu
bók ársins. Allsherjaruppgjör við
trúarbrögðin.“
– Welt am Sonntag
Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur
sími 561 0055 • www.ormstunga.is
The God Delusion
í íslenskri þýðingu
Reynis Harðarsonar
í flokki fræðirita
á aðallista
METSÖLUBÓK UM VÍÐA VERÖLD
Richard Dawkins
RANGHUGMYNDIN UM GUÐ