Fréttablaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 98
58 11. september 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
> ENGIN VANDRÆÐI Á CAMPBELL
Ritstjóri bandaríska tískuritsins Vogue,
Anna Vintour, vísar því á bug að Naomi
Campbell hafi verið með vesen þegar
hún var beðin um að opna tískuvikuna
í New York. Campbell er þekktur skap-
hundur en Vintour segir að þeir eigin-
leikar hafi verið víðsfjarri þetta kvöld.
Breskir fjölmiðlar greindu frá því í
vikunni að farþegar hefðu kvartað
undan ónæði af hálfu söngkonunnar
Susan Boyle um borð í flugi frá New
York til London í vikunni. Boyle ku
hafa sungið hátt og grátið með reglu-
legu millibili auk þess sem henni
þótti ekkert verra að fá sér í tána
inn á milli. Bandaríski slúðurvefur-
inn TMZ komst í gær yfir tölvupóst
frá talsmanni Boyle þar sem málið er
útskýrt.
Þar virðist Lou Reed vera aðalsöku-
dólgurinn. Boyle átti víst að koma
fram í American’s Got Talent og hafði
í hyggju að syngja Perfect Day eftir
Reed og töldu aðstandendur Boyle
þetta nokkuð öruggt útspil enda vin-
sælt ábreiðulag. Reed fékk veður
af þessari uppákomu og aðeins
tveimur klukkustundum áður en
lagið var tekið upp, hafði hann
samband við umboðsmann Boyle
og kom í veg fyrir upptökurnar.
Boyle hætti síðan við að koma
fram í þættinum enda hafði
hún ekki æft neitt annað lag.
Fram kemur í bréfinu að
Boyle hefði ekki haft neina
hugmynd um andstöðu
Reed og hún hafi komið
henni í opna skjöldu. „Við
höfðum enga hugmynd um
þessa afstöðu Reed þegar við
lögðum af stað frá London,“
skrifaði talsmaður Boyle.
Lou Reed vildi ekki sjá Boyle
EKKI VINIR Lou Reed vildi
ekki að Susan Boyle fengi
að flytja Perfect Day eftir sig.
Boyle tók svar Reed mjög
nærri sér og fékk taugaáfall
í flugi á leið til London frá
New York.
Samkvæmt breska blaðinu Daily
Mail hefur Gwyneth Paltrow sam-
þykkt að leika áfengissjúka tón-
listarkonu í kvikmyndinni Count-
ry Strong. Gwyneth er auðvitað
gift Chris Martin, oftast kenndum
við Coldplay, og því ættu heima-
tökin að vera hæg. Samkvæmt
Daily Mail mun Gwyneth leika
kántrísöngkonu að nafni Kelly
Canter sem má muna fífil sinn
fegurri á tónlistarsviðinu.
Að mati Daily Mail er augljóst
að Paltrow hafi horft til kántrí-
myndarinnar Crazy Heart þar
sem Jeff Bridges fékk Óskars-
verðlaun fyrir frammistöðu sína.
Og blaðið bendir á að þetta verði
fyrsta aðalhlutverk Paltrow frá
árinu 2005 en þá lék hún dóttur
stærðfræðisnillings í Proof. Palt-
row fékk frábæra dóma en mynd-
in fékk engan veginn þá aðsókn
sem vonast hafði verið til.
Leikur alka í
nýrri mynd
Michael Douglas eru gefnar
áttatíu prósent líkur á því
að sigrast á krabbameini
sem hann greindist með á
dögunum. Hann er í bar-
áttuhug.
Michael Douglas kveðst vera
bjartsýnn á að honum takist að
sigrast á krabbameini sem hann
greindist með í hálsi í síðasta mán-
uði. Hann viðurkennir þó að bæði
geisla- og lyfjameðferðin dragi úr
honum kraft og hann komist ekki
yfir allt sem hann langi til að gera
yfir daginn.
Douglas var í einlægu við-
tali við breska blaðið The Sun og
sagðist hafa það ágætt. „Lækn-
arnir mínir eru bjartsýnir. Ég er
bjartsýnn. Auðvitað dregur þessi
mikla meðferð úr manni kraft en
það stóðu sig allir alveg frábær-
lega og lífið heldur áfram.“
Douglas hefur hins vegar ekki
dregið sig algjörlega í hlé því
hann mætti til Davids Letterman
á dögunum og greindi þar frá því
að hann væri með krabbamein á
fjórða stigi. „Þú vilt vera á stigi
eitt. En þeir gefa mér áttatíu pró-
sent líkur,“ sagði Douglas en eigin-
kona hans, Catherine Zeta-Jones,
og börnin þeirra, Dylan og Carys,
hafa heimsótt leikarann á sjúkra-
hús í New York þar sem meðferð-
in fer fram.
Douglas birtist næst á hvíta
tjaldinu í hlutverki Gordon Gekko
í Wall Street II en Gekko er per-
sónan sem einhverjir kynnu að
halda fram að hefði verið fyrir-
myndin að íslenska útrásarvík-
ingnum.
Ætlar að sigrast
á krabbameininu
VONGÓÐUR Michael Douglas er vongóður um að geisla- og lyfjameðferðin eigi eftir
að skila góðum árangri. NORDICPHOTOS/GETTY