Fréttablaðið - 11.09.2010, Page 17
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
569 5100
skyrr@skyrr.is Velkomin
3xstörf@Skýrr
Skýrr óskar eftir nýjum nördum í landsliðið
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Óðinsdóttir mannauðsstjóri Skýrr í 569 5100
eða ingibjorg.odinsdottir@skyrr.is. Umsóknarfrestur er til og með 20. september
næstkomandi. Fullum trúnaði heitið. Öllum umsóknum svarað.
Skýrr í hnotskurn
Skýrr er stærsta og skemmtilegasta fyrirtæki landsins í upplýsingatækni.
Starfsfólk fyrirtækisins er yfir 340 talsins og viðskiptavinir eru um 3.000.
Skýrr býður atvinnulífinu samþættar heildarlausnir á sviði hugbúnaðar,
rekstrar og fjölbreyttrar ráðgjafar. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru við
Ármúla í Reykjavík.
Starfsfólkið er helsta auðlind Skýrr. Fyrirtækið er fjölskylduvænt,
jafnréttissinnað og tekur tillit til persónulegra aðstæðna fólks. Starfsfólkið
er samhentur hópur sérfræðinga með jákvætt viðmót og liðsandann í
öndvegi. Sveigjanlegur vinnutími er í boði og vinnuaðstaðan er nútímaleg,
opin og þægileg.
Skýrr rekur frábært mötuneyti, með bæði heilsufæði og heimilismat. Fyrsta
flokks kaffivélar með sérmöluðum eðalbaunum og sódavatn þykja sjálfsögð
lífsgæði.
Félagslíf innan Skýrr er kraftmikið og líflegt. Óvæntar uppákomur eru tíðar.
Aðstaða fyrir börn er góð. Pool-borð, pílukast og tölvuleikjahorn eru til
staðar.
Gildi Skýrr eru ástríða, snerpa og hæfni.
Hugbúnaðarfólk
Sérlausnir
Skýrr leitar að öflugum einstaklingum til að sinna ráðgjöf og þróun
sérlausna. Leitað er að fólki sem hefur reynslu af margs konar tækni-
umhverfi og háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða skyldum
greinum. 3-5 ára starfsreynsla er æskileg.
Mörg stærstu fyrirtæki og stofnanir landsins eru viðskiptavinir Skýrr á
sviði sérlausna og almennrar ráðgjafar á sviði upplýsingatækni. Unnið er í
fjölbreyttu tækniumhverfi þar sem helsta markmiðið er að mæta þörfum
viðskiptavinarins með fyrsta flokks þjónustu.
Sérfræðingar Skýrr þjónusta aðila í öllum atvinnugreinum og sinna þar
fjölbreyttum verkefnum allt frá smáum ráðgjafaverkefnum upp í sérsmíði
á stórum rauntímakerfum.
Hugbúnaðarfólk
Samþætting
Skýrr leitar að hugbúnaðarfólki sem hefur áhuga á að starfa við
samþættingu upplýsingakerfa. Einkum er litið til verkfræðinga, tölvunar-
fræðinga og kerfisfræðinga með reynslu af hugbúnaðargerð í fjölbreyttu
umhverfi.
Samþætting upplýsingakerfa hefur verið áherslusvið hjá Skýrr til fjölda
ára og viðskiptavinir eru jafnt innlendir sem erlendir. Unnið er með fyrsta
flokks verkfæri á þessu sviði, meðal annars frá webMethods, Tibco og
Microsoft.
Ef þú hefur góða þekkingu eða reynslu á sviði gagnagrunna, Java/J2EE,
XML, .NET eða forritun viðskiptakerfa og vilt vinna við það sem efst er á
baugi í upplýsingatækni og rafrænum viðskiptum þá er þetta starf fyrir
þig.
Forritarar
Veflausnagúrú
Skýrr leitar að gúrú í vefmálum til að vinna við forritun og uppsetningu
vefja fyrir stóran hóp viðskiptavina fyrirtækisins. Í boði eru góð laun og
spennandi verkefni hjá traustu fyrirtæki.
Viðkomandi þarf að hafa gott vald á CSS, HTML, XML, JavaScript, jQuery
og .NET. Þekking og reynsla af forritun vefja er nauðsynleg og
háskólagráða æskileg.
Leitað er að manneskju með ástríðu fyrir vefmálum, manneskju sem
fylgist vel með straumum og stefnum á þessu sviði.
Ennisblað
Umsækjandi þarf að búa yfir mikilli
framkvæmdafærni, vera með góða
rökhugsun og eiga auðvelt með að
skipuleggja sig, tjá sig og leysa vandamál
viðskiptavina.
Hvirfilblað
Umsækjandi þarf að vera vinnuglaður og
eiga auðvelt með að skynja og bregðast
við áreiti, hvort sem það er frá viðskipta-
vinum eða samstarfsfólki.
Hnakkablað
Umsækjandi þarf að eiga auðvelt með að
lesa og skilja skriflegar óskir jafnt
samstarfsfólks sem viðskiptavina.
Gagnaugablað
Umsækjandi þarf að hafa gott minni til að
viðhalda góðu sambandi við viðskiptavini
og hafa yfirsýn yfir fjölmörg krefjandi
verkefni.