Fréttablaðið - 11.09.2010, Side 42
2
„Ég byrjaði daginn snemma
til að vera dugleg yfir skrudd-
unum, en ég er í afar skemmti-
legu námi í verkefnastjórnun við
Háskóla Íslands, sem ég tek með
vinnu. Í kvöld er mér svo boðið í
stórafmæli góðs vinar þar sem ég
á von á miklu stuði,“ segir Unnur
sem þurfti að afþakka boð um að
taka þátt í tískusýningu á Holly-
wood-ballinu í Broadway í kvöld.
„En mig dauðlangar að fara því
ég skemmti mér stórkostlega í
fyrra. Ég var mikil diskódrottn-
ing á Hollywood-árunum og finnst
tónlistin endalaust skemmtileg, en
veit svosem að sama tónlist verð-
ur viðhöfð í afmælinu og þar verða
vafalaust tekin danspor, enda sama
kynslóð að skemmta sér. Svo er
reyndar aldrei að vita hvar svona
afmæli enda, en ég þarf að fara
fremur snemma í háttinn og vera
spræk í fyrramálið,“ segir Unnur
sem þá ætlar í réttir.
„Vinkona mín er fjárbóndi með
þúsund kindur í Hvalfjarðarsveit
og veitir ekki af hjálpinni að draga
fé í dilka. Ég hlakka mikið til, enda
árafjöld síðan ég fór í réttir og þar
mun ég bretta upp ermar og taka
til hendinni á meðan sú stutta end-
ist,“ segir Unnur og á við þriggja
ára dóttur sína.
„Hún er mikill dýravinur og vön
að umgangast húsdýr, enda erum
við með hesta fyrir vestan. Þar
elskar hún að rölta um bæinn, fara
í sund, púsla, lita og lesa, sem er
ótrúlega skemmtilegt þótt langt sé
síðan ég var í þeim gír síðast. Ég
verð að viðurkenna að maður nýtur
þess margfalt betur að vera með
lítil börn þegar maður er kominn
á þennan aldur, þótt líka hafi verið
gaman að vera með hin þrjú lítil
á sínum tíma. Að vera með ungt
barn heldur manni áfram ungum
og þannig þarf líka að hugsa því
aldur er bara í kollinum á manni.
Ég er samt hætt barneignum,“
segir Unnur og skellihlær. „Nú bíð
ég bara spennt eftir barnabörnun-
um. Þau hljóta að fara að koma.“
thordis@frettabladid.is
„Ég byrjaði daginn snemma til að vera dugleg yfir skruddunum, en ég er í afar
skemmtilegu námi í verkefnastjórnun við Háskóla Íslands, sem ég tek með vinnu,“
segir Unnur um upphaf helgarinnar. FRÉTTABLAIÐ/VALLI
Eldur og ís , ljósmyndasýning Ellerts Grét-
arssonar sem opnuð var í Bíósal Duushúsa í
Reykjanesbæ á Ljósanótt, verður opin áfram
vegna góðra viðtaka. Opið er frá 13 til 17 um
helgar en 11 til 17 á virkum dögum.
Setningarhátíð Hjólabrettafélags
Akureyrar verður haldin í Verk-
smiðjunni á Hjalteyri í dag.
Verksmiðjan á Hjalteyri er gömul
síldarverksmiðja sem öðlast hefur
nýtt líf sem staður fyrir hina ýmsu
menningaratburði og er styrkt af
Menningarráði Eyþings.
Setningarhátíð Hjólabrettafé-
lags Akureyrar hefst þar klukk-
an 13 og stendur fram eftir degi.
Samkvæmt Elvari Erni Egilssyni,
formanni Hjólabrettafélagsins,
fara vinsældir hjólabrettaiðkunar
ört vaxandi og megi sjá alla ald-
ursflokka renna sér um á hjóla-
bretti, þó sér í lagi yngri kynslóð-
ina. Markmið setningarinnar er
að minna bæjaryfirvöld og sveit-
arstjórn á hversu stór íþróttin er á
Akureyri og í nágrenni þéttbýlis-
ins, enda um afar fjölmennan hóp
að ræða samkvæmt Elvari og þörf-
in því brýn fyrir betri aðstöðu til
hjólabrettaiðkunnar.
Á hátíðinni verða pallar, slár og
box ásamt fleiru til að renna sér
á, en félagið sá algjörlega um upp-
setninguna, með styrk frá hinum
ýmsu fyrirtækjum á Akureyri.
Auk þess verða sýndar brettaljós-
myndir og myndbönd og ættu því
forvitnir að geta kynnt sér íþrótt-
ina til hlítar. Undirskriftalisti mun
einnig ganga á meðan á hátíðinni
stendur og er það von Elvars að
aðstaða fáist innanhúss fyrir hjóla-
brettaiðkendur á Akureyri, en að
sögn Elvars nýtast einungis fjórir
mánuðir utanhúss til almennilegr-
ar hjólabrettaiðkunar.
Nánari upplýsingar um setning-
arhátíðina má finna á vef Verk-
smiðjunnar á www.verksmidjan.
blogspot.com -jbá
Hjólabrettin
munduð á Akureyri
Vinsældir hjólabretta eru í mikilli uppsveiflu í höfuðstað Norðurlands.
Framhald af forsíðu
50 ára og eldri
Uppri unarnámskeið!
Reyndasti danskennari
Íslandssögunnar kennir
Hann er 74 ára, ekki gráhærður (aldrei litað á sér
hárið). Ekki með hrukkur (aldrei farið í andlit-
slyftingu). Aldrei bakveikur og við hestaheilsu
… allt dansinum að þakka því dansinn er allra
meina bót. Kennarinn heitir Heiðar Ástvaldsson
og kennir á mánudögum, þriðjudögum og
fimmtudögum 50 ára og eldri og kemur öllum
í gott form á ný.
Konusalsa
Sjóðheit námskeið. Hentar öllum konum,
ungum og öldnum, liðugum og stirðum.
Í tímunum 50 plús og Salsa eru ávallt 3
kennarar.
Innritun og upplýsingar á
www.dansskoliheidars.is
og í síma 551 3129
kl 16 til 20 daglega
Enskuskóli Erlu Ara
Auglýsir enskunám í Hafnarfirði fyrir
byrjendur og lengra komna með áherslu á tal
Bjóðum einnig námsferðir til Englands fyrir fullorðna og unglinga
Þú ert velkomin í heimsókn og tekur ákvörðun
eftir fyrsta tíma hvort þú viljir taka þátt!
enskafyriralla.is
Skráning stendur yfir í síma 891 7576 og erlaara@gmail.com
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
einn
barnaís
eða
Stöð 2, Stöð 2 Bíó og Stöð 2 Extra kosta
aðeins 229 krónur á dag í Stöð 2 Vild.
Tryggðu þér áskrift í dag!
FYRIR
229 KRÓNUR
FÆRÐ ÞÚ:
frábæra skemmtun í
heilan sólarhring fyrir
alla fjölskylduna