Fréttablaðið - 11.09.2010, Page 56

Fréttablaðið - 11.09.2010, Page 56
 11. september 2010 LAUGARDAGUR10 Upplýsingar um starfið gefa Sveinbjörn Markús Njálsson skólastjóri, í símum 5404700 og 8215007, netfang: sveinbjorn.njalsson@ alftanesskoli.is og Andrés Haukur Hreinsson húsvörður í síma 5404700 og 8215008, netfang andres.hreinsson@alftanesskoli.is Umsóknir sendist skólastjóra eða húsverði á netfang þeirra eða í pósti til skólastjóra Álftanesskóla, 225 Álftanesi. Skólastjóri Óskum að ráða starfsfólk til ræstinga á dagvinnutíma eftir kl. 11:00. Olíuverzlun Íslands hf. Starfsmaður við tollaútleysingar óskast til starfa á vörustýringarsviði Olís. Umsóknir og ferilskrár skulu berast í tölvupósti til starfsmannastjóra Olís á netfangið rbg@olis.is, fyrir 24. september næstkomandi. Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika í samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð. Á skrifstofu Olís starfa um 60 manns. Höfuðstöðvar Olís eru nýfluttar að Höfðatorgi 2. Helstu verkefni • Tollskýrslur, frágangur á innflutningsskjölum í toll og útflutningsskýrslur. • Umsjón með samskiptum við starfsmenn tollstjóra. • Bókun á innkaupareikningum og skráning kostnaðarauka. • Skipulagning heimkeyrslu á lager í samráði við lagerstjóra og innkaupamenn. • Verðútreikningar fyrir erlend vörukaup og upplýsingagjöf til innkaupamanna. • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast tollaútleysingum. Hæfni og þekking • Að lágmarki tveggja ára reynsla við tollskýrslugerð. • Stúdentspróf. • Þekking á Navision er kostur. • Skipuleg vinnubrögð. Tollaútleysingar P IP A R \T B W A · S ÍA St ef án ss on & S te fá ns so n 00 35 SVÆÐISSTJÓRI Domino’s óskar eftir að ráða svæðisstjóra til að sjá um hluta af verslunum fyrirtækisins. » 58·12345 | www.dominos.is Starfs- og ábyrgðarsvið: – Stýring þjálfunar og kennslu starfsmanna í verslunum – Efling rekstrar í verslunum og markaðsþróun – Yfirsýn fjármála og umsjón funda – Skýrslugerð Hæfniskröfur: – Góð mannleg samskipti og þjónustulund – Góð tölvu- og enskukunnátta – Reynsla af rekstrarstýringu er kostur – Stundvísi og áhugi á krefjandi verkefnum er skilyrði Vinnutími er breytilegur. Umsóknir skulu sendar á netfangið: ingibjorg@dominos.is fyrir 19. september næstkomandi. Farið verður með allar umsóknir sem trúnarðarmál og þeim svarað. auglýsir laust starf Fjármálastjóra Um er að ræða frumkvæðisstarf og ábyrgð á stefnumótun í fjármálum sveitarfélagsins. Fjármálastjóri hefur yfirumsjón með fjárhags- og starfsáætlunargerð, rekstrareftirliti og gerð tillagna til að auka hagkvæmni og skilvirkni í rekstri. Fjármálastjóri ber ábyrgð á greiningu fjármála upplýsinga, fjárreiðum þ.e. greiðslu- og lánastýringu, eftirliti með framkvæmd innkaupareglna, álagningu og innheimtu gjalda, bókhaldi og ársreikningi. Fjármálastjóri er einnig starfsmanna stjóri bæjarins og ber ábyrgð á mannauðs- og upplýsingatæknimálum, sem og undirbýr dagskrá fyrir fjárhags- og launanefnd. Næsti yfirmaður fjármálastjóra er bæjarstjóri. Helstu verkefni og ábyrgð: • Frumkvæði að, og þátttaka í stefnumörkun um fjárhagsmálefni sveitarfélagsins • Samhæfing og samræming í rekstri og þjónustu m.a. með undirbúningi og innleiðingu verklagsreglna • Ráðgjöf og aðstoð við stjórnendur við gerð launa- og fjárhagsáætlana • Leiðtogi í fjármálastjórnun stofnana og stjórnsýslu bæ- jarins • Kostnaðareftirlit og greiningarvinna á rekstri stofnana og fyrirtækja bæjarins • Yfirumsjón með fjárhagsáætlunum, starfsáætlun og 3ja ára áætlun sveitarfélagsins • Yfirumsjón með bókhaldi og gerð ársreiknings sveit- arfélagsins og stofnana þess • Samskipti við stjórnendur, starfsmenn og íbúa Seltjarnar- nesbæjar vegna fjárhagsmálefna sveitarfélagsins • Dagleg stjórn og samræming starfskrafta á fjármálasviði • Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun í viðskiptafræði af fjármála- eða endur- skoðunarsviði • Þekking og reynsla af áætlunargerð, úrvinnslu og fram- setningu tölulegra upplýsinga • Hæfni til að nýta faglega þekkingu í fjármálastjórnun, reikningsskilum og áætlanagerð • Góð tungumálakunnátta (íslenska og enska) og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti • Hæfni til að stýra rekstri, skipuleggja og innleiða breytin- gar og móta stefnu í samráði við starfsfólk og stjórnendur • Forystu-, skipulags- og samskiptahæfni • Þekking á starfsemi sveitarfélaga og opinberri stjórnsýslu ásamt þekkingu á lögum og reglum um fjármál sveit- arfélga er æskileg. • Þekking og reynsla af starfsmannastjórnun • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi Fjármálastjóri er hluti af stjórnendateymi Seltjarnarnesbæjar sem m.a. ber ábyrgð á innleiðingu breytinga sem standa yfir og framundan eru. Starfsmenn á fjármálas- viði eru níu. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst. Um launakjör fer eftir ákvörðun fjárhags- og launanefndar um stjórnendakjör Seltjarnarnesbæjar. Upplýsingar um starfið veitir Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri, í síma 5959 100, netfang asgerdur@seltjar- narnes.is Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um starfið. Umsóknir skulu hafa borist bæjarskrifstofum Seltjarnar- nesbæjar, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnesi eigi síðar en föstudaginn 24. september 2010. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.