Fréttablaðið - 11.09.2010, Page 82
42 11. september 2010 LAUGARDAGUR
Eintómt vesen á
góðum degi
Tökum á sjónvarpsþáttunum HÆ GOSA lauk í síðasta mánuði. Leik-
stjóri þáttanna, Arnór Pálmi Arnarson, hefur þó enn í nógu að
snúast við að binda saman lausa enda svo fyrsti þátturinn geti farið
skammlaust í loftið í lok þessa mánaðar. Lesendur Fréttablaðsins
fengu að fylgjast með degi í lífi leikstjórans unga.
MYNDBROT ÚR DEGI | Fimmtudagurinn 9. september. Myndir teknar á Canon EX-Z75
1Það er ekki hægt að fara út í daginn án þess að gera tvo nauðsynlega hluti. Bursta í sér tennurnar og að knúsa Tisa bless. Fram undan er þéttur dagur með góðu fólki. 2 Kom við hjá Úlfi, yfirklippara Skjáseins, og fór yfir „trailer“ sem hann var að ljúka við úr fyrsta þætti HÆ GOSA. Það er mikilvægt að kynningarefni úr þáttunum sé áhugavert og spennandi – varð ekki svikinn.
3Áður en ráðist er í gerð kvikmyndar eða sjónvarpsþátta ber að hafa í huga að það er eintómt vesen. Hér sjást þeir Heiðar Mar og Baldvin Z sitja sveitt-ir við að setja þættina okkar saman í klippiherberginu.
4. Einar Tönsberg, oftast kallaður Eberg, er eitt mesta ljúfmenni sem ég hef á ævi minni kynnst. Hann sér um tónlistina í HÆ GOSA. Á fundinum fórum við yfir tónlistina í fyrsta þætti. Það er ekkert betra en að vinna með fólki sem er klárara en maður
sjálfur.
5. Eftir langan vinnudag fór ég út að borða með nokkrum uppá-halds, þeim Katrínu Björgvinsdóttur og Helgu Brögu Jónsdótt-ur. Katrín vinnur með mér hjá ZetaFilm og er framleiðandi. Ég kemst ekki í gegnum daginn án hennar. Ég kynntist Helgu Brögu
í sumar. Tvennt er staðreynd um hana. Hún er ein besta leikkona okkar
Íslendinga og að hún hefur fallegt hjartalag.
6 Deginum lauk með útgáfupartíi hjá Hrefnu Rósu Sætran, vinkonu minni, sem var að gefa út bókina Fiskmarkaðinn. Hrefna er allt-af að reyna að ala upp sushi-manneskjuna í mér svo ég geti verið posh með öllum hinum. Eftir gleðina héldum við aðeins út á lífið og
drukkum hvítvín og vorum menningarleg. Góður dagur í lífi Arnórs!
VERTU KLÁR
FYRIR VETURINN
MEÐ ECCO
Vatnsheldir kuldaskór
fyrir krakka
Ecco Kringlunni 5538050
Steinar Waage Kringlunni 5689212
Steinar Waage Smáralind 5518519