Fréttablaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 100
60 11. september 2010 LAUGARDAGUR
Anna Paquin og eiginmaður henn-
ar, Stephen Moyer, eru nú stödd
í Ravello á Ítalíu til að halda upp
á brúðkaup sitt. Þau játuðust
hvort öðru í Malibu fyrir tveim-
ur vikum og sáust ákaflega ham-
ingjusöm á hinum vinsæla ferða-
mannastað, Amalfi-ströndinni, á
mánudag. Þetta ferðalag ætti að
skýra fjarveru Önnu frá frum-
sýningu rómantísku kvikmynd-
arinnar The Romantics þar sem
íslenska kvikmyndagerðarkonan
Eva Maria Daniels er meðal fram-
leiðenda.
Anna er þekktust fyrir hlutverk
sitt í sjónvarpsþáttunum True
Blood. Hins vegar vita kannski
færri að Anna hlaut Óskarsverð-
laun árið 1994 fyrir leik sinn í
kvikmynd Jane Campion, The
Piano, aðeins ellefu ára gömul.
Í brúðkaups-
ferð til Ítalíu
NÝGIFT Anna Paquin fór í brúðkaupsferð
til Ítalíu með eiginmanninum Stephen
Moyer. NORDICPHOTOS/GETTY
Borgarfulltrúar Besta flokks-
ins skelltu sér á karateæfingu
í hádeginu í gær og slóst Gísli
Marteinn Baldursson í hópinn.
Stefnt er að því að meira verði
um álíka hópefli í borgarstjórn.
„Þetta var alveg frábærlega skemmti-
legt,“ segir Karl Sigurðsson, borgarfull-
trúi Besta flokksins, en þeir boðuðu til
karateæfinga í hádeginu í Laugardals-
laug fyrir sig og samflokka sína. Hug-
myndin er komin frá borgarstjóranum
sjálfum, Jóni Gnarr, og á að vera eins
konar hópefli fyrir borgarstjórn. „Það
var mikið hlegið en fólk tók þetta líka
alvarlega enda má ekki fíflast of mikið
fyrir framan kennarann,“ segir Karl og
viðurkennir að þau hafi nú öll verið jafn
léleg í þessum fyrsta tíma. „Það var nú
mál manna í morgun að þetta ættum
við að endurtaka sem fyrst og jafnvel
gera að föstum lið í borgarstjórn,“ segir
Karl. Hanna Birna Kristjánsdóttir og
Sóley Tómasdóttir sáu sér ekki fært að
mæta í þetta skiptið. - áp
Borgarfulltrúar í karate
LIÐKA SIG TIL Gísli Marteinnn Baldursson og Oddný Sturlu-
dóttir hlusta með athygli á kennarann.
TEYGJA Það er mikilvægt að teygja fyrir og eftir æfingu eins og
borgarstjórinn sýnir hér.
Í STUÐI Borgarfulltrúarnir að koma sér í gang og að ná réttu
tökunum á karate.
ANDLEGT JAFNVÆGI Jón Gnarr einbeittur á æfingu.
BESTA LÍKAMSRÆKTIN Karl Sigurðsson og Jón Gnarr voru vígalegir á karateæf-
ingu. Í bakgrunni er Gísli Marteinn Baldursson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI