Fréttablaðið - 11.09.2010, Side 110

Fréttablaðið - 11.09.2010, Side 110
70 11. september 2010 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN Friðrik Þór Friðriksson og Guðrún Edda Þór- hannesdóttir, aðstand- endur kvikmyndarinnar Mamma Gógó, flugu í gær til Toronto en þar hefst nú hin árlega kvikmyndahátíð sem af mörgum er talin vera ein stærsta kaupráðstefna heims í kvikmyndagerð. Mamma Gógó er eina íslenska kvikmyndin sem tekur þátt en eins og Frétta- blaðið greindi frá í gær er myndin ein af 43 sem á möguleika á að vera tilnefnd til Evrópsku kvik- myndaverðlaunanna. Ef til vill hríslast óþægi- leg minning niður bakið á Friðriki Þór í dag en fyrir níu árum átti hann bókað flug með einni af þeim flugvélum sem flugu á World Trade Center. Þá var hann einmitt einnig á leiðinni á Toronto-kvikmyndahátíðina. Hafði hugsað sér að koma við í Los Angeles til að ræða við leikara fyrir bíómynd en hætti við. Sem betur fer. Kvikmyndin sjálf fær hins vegar frábæra dóma hjá Eye Weekly, einu vinsælasta vikublaði Toronto á meðan á hátíðinni stendur. Gagn- rýnandinn Will Sloan fer fögrum orðum um kvikmyndina og segir að þrátt fyrir alvarlegan undirtón sé aldrei langt í húmorinn. Þá sé nálgun Friðriks á sjúkdóminn ákaflega trúverðug og laus við tilfinningaklám, leikurinn sé sannfær- andi hjá bæði Krist- björgu Kjeld og Hilmi Snæ en það séu fyrst og fremst síðustu tíu mínúturnar sem kalli fram mikil hughrif. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Platina Resources Ltd. 2 Össuri Skarphéðinssyni. 3 Rúmeníu. „Þetta er náttúrlega aðallega bara hrikalega óþægilegt, að lýsa kyn- lífsathöfnum í smáatriðum,“ segir Anna Svava Knútsdóttir leikkona hlæjandi en hún er þessa dagana að leggja lokahönd á handrit að sjónvarpsþáttum byggðum á bók- inni Makalaus. Fylgifiskur þess er að skrifa nokkrar kynlífssen- ur. „Þetta er mjög fyndið og alveg ný reynsla fyrir mig að þurfa að lýsa bólförum af nákvæmni. Það er ekki nóg að segja bara „og svo fóru þau inn í herbergi að elskast“. Ég verð að gera þetta almennilega og mér líður stund- um eins og ég sé að skrifa Ísfólks- bækurnar,“ segir Anna Svava og viðurkennir að hún hafi oft farið hjá sér við skrifin. Anna Svava er með Súper Sex og aðrar kynlífsfræðibæk- ur til hliðsjónar við skrifin. „Ég er orðin rosa fróð um stellingar og búin að lesa mér til um hinar ýmsu tegundir kossa. Það er fullt af karakterum sem koma fyrir í handritinu og maður þarf ein- hvern veginn að laga kynlífið að þeim,“ segir Anna Svava en hún hefur einnig þurft að fara í ann- ars konar heimildarvinnu til að undirbúa sig undir þessi hand- ritaskrif. „Ég bað Tobbu (Þorbjörgu Marinósdóttur, höfund Maka- lauss) um að taka mig með sér í svona alvöru stelpupartí,“ segir Anna Svava en það var einnig ný reynsla. „Það sem var verst voru hælarnir. Það dugar víst ekkert minna en að vera í 12 cm hælum og ég entist ekki út partí- ið í þeim. Svo fannst mér merki- legt að sjá skemmtistaðina fyrir neðan Lækjargötuna þar sem efnislítill fatnaður og há tónlist er allsráðandi,“ segir Anna Svava glöð í bragði en hún tók með sér diktafón og skrásetti samtöl stelpnanna. „Þær eru með svona alveg eigið tungumál sem gaman er að vitna í. Svona lingó,“ segir Anna Svava en henni til sam- lætis skrifa þeir Gunnar Björn Guðmundsson og Ottó Geir Borg einnig hluta af handritinu. Aðspurð hvort þátturinn verði eins konar íslensk útgáfa af Sex and the City-þáttunum svar- ar Anna Svava játandi. „Eins og þetta lítur út núna verður þetta stelpuþáttur en strákar hafa líka gaman af þessu.“ alfrun@frettabladid.is ANNA SVAVA KNÚTSDÓTTIR: SKRIFAR KYNLÍFSSENURNAR Í MAKALAUS Orðin sérfræðingur um kossa og kynlífsstellingar HEIMILDARVINNA FYRIR MAKALAUS Anna Svava Knútsdóttir leikkona skrifar handrit- ið að Makalaus-þáttunum og hefur þurft að skrifa þó nokkrar kynlífssenur sem er ný reynsla fyrir hana. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Ég verð að gera þetta almennilega og mér líður stundum eins og ég sé að skrifa Ísfólksbækurnar ANNA SVAVA KNÚTSDÓTTIR HÖFUNDUR MAKALAUS Erlendur Sveinsson, einn ástsælasti rannsóknar- lögreglumaður Íslands, snýr aftur í nóvember í fjórtándu skáldsögu Arnaldar Indriðasonar. Erlendur hefur lítið komið við sögu í síðustu bókum Arnaldar og leyft aðstoðarmönnum sínum, þeim Elínborgu og Sigurði Óla, að eiga sviðið. Bók Arnaldar heitir Furðustrandir en höfund- urinn sjálfur var fámáll þegar hann var spurður út í nafnið. „Ég get ekki gefið upp hvaðan nafn- ið Furðustrandir er komið; þá væri ég að upp- ljóstra of miklu um efni bókarinnar.“ Samkvæmt leitarforritinu google.com nefndi landneminn Eiríkur rauði strandlengju sem lá við Labrador og Nýfundnaland Furðustrandir. En nafnið má líka finna við Skagafjörð þar sem minnismerki um Jón Ósman, Ferjumanninn svokallaða, er að finna. „Ég hef reyndar lesið sögu Ferjumannsins sem Kristmundur Bjarnason skrifaði og það má vel vera að hún komi eitthvað við sögu.“ Arnaldur segir það hafa verið nauðsynlegt fyrir sig að gefa Erlendi smá frí og leyfa Elín- borgu og Sigurði Óla að blómstra í tveimur síð- ustu bókum. Hann bendir jafnframt á að Harð- skafi, Myrká, Svörtuloft og nú Furðustrandir tengist allar innbyrðis, þær gerast til að mynda allar á sama tíma, á tveggja til þriggja vikna tímabili haustið 2005. „En nú ætla ég alls ekki að segja meira, fólk verður bara að lesa bókina.“ Samkvæmt Arnalds-hefð kemur bókin út 1. nóv- ember en í fyrra bar þann dag upp á sunnudag. Að þessu sinni er hann hins vegar mánudagur þannig að bóksalar þurfa væntanlega ekki að keyra hana út eins og gert var í fyrra. - fgg Erlendur snýr aftur í nóvember ARNALDUR OG ERLENDUR Erlendur Sveinsson, sem Ingvar E. Sigurðsson túlkaði í kvik- myndinni Mýrinni, verður að nýju í aðalhlutverki í væntanlegri skáld- sögu Arnaldar Indriðasonar. Magnús Þór Gylfason Starf: Á leið í nám. Foreldrar: Gylfi Þór Magnússon, fyrrum flugstjóri, og Kristbjörg Ásta Ingvarsdóttir kennari. Fjölskylda: Einhleypur. Búseta: Bý í Breiðholtinu, leigi hjá bróður mínum. Stjörnumerki: Hrúturinn. Rapparinn Magnús Þór Gylfason nýtur liðsinnis frægra erlendra rappara á sinni fyrstu plötu sem er nýkomin út. „Það tókst aldrei að dæma hann og okkur fannst það leiðinlegt. Þetta er okkar framlag í því máli,“ segir Össur Hafþórsson, einn af eigendum skemmtistað- arins Sódómu Reykjavík. Myndum af biskupnum fyrr- verandi, Ólafi Skúlasyni, hefur verið komið fyrir í hlandskálum Sódómu. Ástæðan er hneykslis- málið tengt kynferðislegri mis- notkun hans. „Við byrjuðum á því að setja mynd af honum í eina skál en það kom svo mikið af fyrirspurnum að við urðum að setja myndina í allar skálarn- ar. Þetta hefur vakið stormandi lukku og ég hef meira að segja séð nokkra kvenmenn fara þarna inn,“ segir Össur. Í febrúar í fyrra greindi Frétta- blaðið frá því að íslenskir karl- menn sem höfðu fengið sig full- sadda af útrásarvíkingunum gætu mætt á Sódómu og bókstaf- lega migið á þá eftir að myndum af þeim hafði verið komið fyrir í hlandskálunum. „Þeir eru komn- ir í pásu þangað til dómar liggja fyrir,“ segir Össur. - fb Ólafur biskup í hlandskálum BISKUP Í HLANDSKÁLUM Myndum af fyrrverandi biskupi Íslands hefur verið komið fyrir í hlandskálunum á Sódómu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL LÁRÉTT 2. íþrótt, 6. skammstöfun, 8. lyftiduft, 9. hlaup, 11. nesoddi, 12. fjárhirðir, 14. rithöfundur, 16. pot, 17. tala, 18. lík, 20. tveir eins, 21. fljóta í vatns- borðinu. LÓÐRÉTT 1. hluta sólahrings, 3. líka, 4. nennu- leysi, 5. af, 7. limlesta, 10. draup, 13. gæfa, 15. daður, 16. mælieining, 19. óð. LAUSN LÁRÉTT: 2. golf, 6. al, 8. ger, 9. gel, 11. tá, 12. smali, 14. skáld, 16. ot, 17. níu, 18. hræ, 20. ff, 21. mara. LÓÐRÉTT: 1. dags, 3. og, 4. letilíf, 5. frá, 7. lemstra, 10. lak, 13. lán, 15. dufl, 16. ohm, 19. ær. Finnski hesturinn (Stóra sviðið) Fös 15/10 kl. 20:00 frums Lau 16/10 kl. 20:00 2.sýn Lau 23/10 kl. 20:00 3.sýn Lau 30/10 kl. 20:00 4.sýn Sun 31/10 kl. 20:00 5.sýn Fös 5/11 kl. 20:00 6.sýn Lau 6/11 kl. 20:00 7.sýn Fim 11/11 kl. 20:00 8.sýn Fös 12/11 kl. 20:00 9.sýn Ö U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Lau 11/9 kl. 13:00 Lau 11/9 kl. 15:00 Sun 12/9 kl. 13:00 Sun 12/9 kl. 15:00 Lau 18/9 kl. 13:00 Lau 18/9 kl. 15:00 Sun 19/9 kl. 13:00 Sun 19/9 kl. 15:00 Lau 25/9 kl. 13:00 Lau 25/9 kl. 15:00 Sun 26/9 kl. 13:00 Lau 2/10 kl. 13:00 Lau 2/10 kl. 15:00 Sun 3/10 kl. 13:00 Sun 3/10 kl. 15:00 Fíasól (Kúlan) Lau 11/9 kl. 20:00 Sun 12/9 kl. 20:00 Fim 16/9 kl. 20:00 Fös 17/9 kl. 20:00 Lau 18/9 kl. 20:00 Sun 19/9 kl. 20:00 Fim 23/9 kl. 20:00 Fös 24/9 kl. 20:00 Lau 25/9 kl. 20:00 Sun 26/9 kl. 20:00 Fim 30/9 kl. 20:00 Fös 1/10 kl. 20:00 Lau 2/10 kl. 20:00 Fös 8/10 kl. 20:00 Lau 9/10 kl. 20:00 Hænuungarnir (Kassinn) Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Lau 11/9 kl. 20:00 Ö Sun 12/9 kl. 20:00 U Fim 16/9 kl. 20:00 Fös 17/9 kl. 20:00 síð.sýn. Fim 21/10 kl. 20:00 Fös 29/10 kl. 20:00 Fim 4/11 kl. 20:00 Lau 13/11 kl. 20:00 Fös 26/11 kl. 20:00 Hamskiptin (Stóra sviðið) Gerpla (Stóra sviðið) U U U U Ö U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Gildir ágúst 2010 til jún í 2011 hús kor tið 1 OPIÐ KORT Gildir á Leik hús kor tið 201 0/2 011 ÁSK ikhus id.is I mida sala@ le Leikhúsk ort 4 miðar á aðeins 9.900 kr. U Ö Ö U U U Ö Ö Fös 17/9 kl. 19:00 Lau 18/9 kl. 19:00 Sun 19/9 kl. 19:00 Mið 22/9 kl. 19:00 Fös 24/9 kl. 19:00 Lau 25/9 kl. 19:00 Fös 1/10 kl. 19:00 Lau 2/10 kl. 19:00 Sun 3/10 kl. 15:00 Fös 8/10 kl. 19:00 Lau 9/10 kl. 19:00 Sun 17/10 kl. 19:00 Sun 24/10 kl. 19:00 Mið 27/10 kl. 19:00 Ö Ö Ö U U Ö Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Ö Ö Ö
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.