Fréttablaðið - 14.09.2010, Síða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Þriðjudagur
skoðun 12
14. september 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Heilsuakademían í Egilshöll býður upp á ýmis námskeið sérsniðin
fyrir börn og ungmenni. Má þar nefna sundskóla, herþjálfun, break-
dans og lífsstílsnámskeið fyrir börn sem eru yfir kjörþyngd. Nánari
upplýsingar á vefsíðunni heilsuakademian.is.
Dömur. Vandaðir götuskór úr
leðri, skinnfóðraðir og með góðan
sóla. Stöðugur hæll, 4 - 5 cm.Teg: 7104005 Stærðir: 37 - 42Litur: svart
Verð: 14.685.-
Teg: 2721
Stærðir: 36 - 42Litur: svart
Verð: 14.685.
Patti.isLandsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 - Laugard. frá 11 til 16
34.900 kr
Sófabor
ð í úrval
i
verð frá
Áklæði að eigin vali
227.900
kr
Hornsóf
ar
Verð frá
Vinirnir og bekkjarbræðurnir Tinni og Kolbeinn verja miklum tíma saman bæði í skólanum og utan hU ð
Vinirnir Tinni og Kolbeinn hafa verið óaðskilj l
útivist og veiðiÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 20102 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Útivist og veiði
veðrið í dag
Maðurinn með ljáinn
Jónas Sen sá Víking Heiðar
fara hamförum á sinfóníu-
tónleikum.
menning 19
Ný andlit á skjánum
Edda Hermannsdóttir er
nýr spyrill í Gettu betur.
fólk 26
Ostur eins og
krakkar vilja
hafa
hann
ms.is
Sterkar tennur og fallegt bros.
Flux flúormunnskol fyrir alla
fjölskylduna.
Fæst í næsta
apóteki.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Hefur þú
skolað
í dag?
STREKKINGUR EÐA ALLHVASST
Í dag má búast við stífri N-átt
og gæti slegið í storm, einkum í
námunda við fjöll á N-verðu land-
inu. Norðan- og austantil mun rigna
en allra syðst verður úrkomulítið.
VEÐUR 4
10
8
7
9
10
MENNING Fágætar möppur með eftirprentunum
af vatnslitaverkum Ásgríms Jónssonar fundust á
lager Forlagsins fyrir skömmu.
Tæplega þrjátíu möppur með tíu myndum
hver komu í ljós en bókaútgefandinn Jóhann
Páll Valdimarsson segist ekki hafa hugmynd um
hvaða tilgangi þær áttu að þjóna. „Þetta er senni-
lega hluti af lager gamla Helgafellsins þegar
Ragnar í Smára var sem duglegastur. Einhverjir
hafa haldið því fram að þetta hafi verið prentað
fyrir heimssýninguna í Montreal 1967. Svo gæti
vel verið að Ragnar hafi ætlað að kynna Ásgrím
fyrir útlendingum með þessum veglega hætti,“
segir Jóhann en myndirnar eru prentaðar á afar
vandaðan pappír og allt kynningarefnið er á
ensku. - fgg / sjá síðu 26
Óvæntur fjársjóður kom í ljós þegar gramsað var í gömlum kössum:
Fágætar eftirprentanir af verk-
um Ásgríms finnast á lager
VIÐSKIPTI Útlit er fyrir að sam-
keppni komist á í sölu á metangasi
á bifreiðar. Hingað til hefur bara
verið hægt að kaupa metangas á
tveimur afgreiðslustöðvum N1 á
höfuðborgarsvæðinu.
Dofri Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Metanorku ehf., sem
er dótturfélag Íslenska gámafélags-
ins, segir að við nánari skoðun hafi
komið í ljós að einkasölusamning-
ur N1 á metangasi við Metan hf.,
framleiðanda gassins, hafi ekki
náð nema til þess gass sem fari
eftir leiðslu sem lögð hafi verið frá
Álfsnesi og yfir í afgreiðslustöð N1
í Ártúnsbrekku.
Dofri segir einkennilegt að þeim
sem ætlað hafi í samkeppni við N1
í sölu á metangasi hafi hingað til
verið vísað til N1 um kaup á gas-
inu. „Við sóttum hins vegar um
leyfi til að kaupa á kostnaðarverði
gas í heildsölu beint úr framleiðslu-
stöðinni á Álfsnesi,“ segir Dofri og
kveður alveg ljóst að eigi að nást
markmið um að fjölga bílum sem
aki á vistvænu innlendu eldsneyti,
eins og metani, þá þurfi að bæta
þjónustu við þá. „Við ætlum þá að
setja gasið á sérstaka gáma sem við
flytjum á afgreiðslustöðvarnar.“
Dofri segist hafa fengið vil-
yrði fyrir því að opnað verði á að
hver sem er geti fengið keypt gas
hjá Metani þegar lokið hafi verið
við að finna heildsöluverð á gasið.
„Þá verður gefinn út verðlisti sem
væntanlega ræðst af því magni sem
menn vilja kaupa,“ segir hann og
kveður jafnvel von á því að Metan
ljúki því verki fyrir mánaðamót.
Dofri segir mjög spennandi að sjá
hvaða verð verður sett á gasið, en
honum sýnist að hreinsikostnaður
nemi um 25 krónum á hvern rúm-
metra gass.
Metanorka hefur sótt um lóð
fyrir fjölorkustöð bæði hjá Reykja-
víkurborg og í Kópavogi, auk þess
að vinna að uppsetningu slíkrar
stöðvar á Reykjanesi í samstarfi
við Orku- og tækniskóla Keilis.
Þegar eru tvær afgreiðslustöðvar
tilbúnar til uppsetningar.
„Þá höfum við jafnframt óskað
eftir samstarfi við Akureyrarbæ
um vinnslu á metani úr sorphaug-
unum þar með það fyrir augum að
gefa Eyfirðingum líka kost á að
keyra á metangasi,“ segir Dofri
og kveður fráleitt að þjóð í efna-
hagsþrengingum skuli kveikja í
metani sem ekki nýtist á bíla fyrir
sem nemur milljörðum króna á ári
hverju.
Oft hefur verið bent á að notk-
un metangass fylgi umhverfis-
ávinningur auk þess sem sparast
myndi gjaldeyrir sem annars færi
í að kaupa eldsneyti frá útlöndum.
- óká
Vilja samkeppni í sölu metans
Eigi að fjölga bílum sem aka á vistvænu innlendu eldsneyti þarf að bæta þjónustuna, segir framkvæmda-
stjóri Metanorku. Hingað til hefur bara verið hægt að kaupa metangas hjá N1. Kveikt er í milljarða króna
virði af eldsneyti á ári þar sem ekki er hægt að nýta það. Notkun metangass myndi spara gjaldeyri.
Veitir viðeigandi úrræði
Þraut stuðlar að markvissri
þjónustu fyrir fólk með
vefjagigt og skylda sjúkdóma.
allt 4
FÁGÆTUR FJÁRSJÓÐUR Bókaútgefandinn Jóhann Páll Valdimarsson, til vinstri, og Jón Rósant Þórarinsson með eftirprentanir á
verkum Ásgríms Jónssonar sem fundust á lager Forlagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þá höfum við jafn-
framt óskað eftir
samstarfi við Akureyrarbæ
um vinnslu á metani úr sorp-
haugunum þar.
DOFRI HERMANNSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI METANORKU EHF.
REYKJAVÍK Jón Gnarr, borgarstjóri
í Reykjavík, mun í dag taka á móti
Liu Qi, fyrrverandi borgarstjóra
í Peking, höfuðborg Kína, sem
kominn er hingað til lands í opin-
bera heimsókn í boði Reykjavík-
urborgar.
Heiða Kristín Helgadóttir,
aðstoðarmaður borgarstjóra, segir
að Liu Qi hafi haft frumkvæði að
því að koma hingað til lands. Kerf-
ið virki þó þannig að borgin verði
að bjóða honum formlega í heim-
sókn. Hann mun funda með borg-
arstjóra og öðrum borgarfulltrú-
um Besta flokksins í dag.
Spurð um efni fundarins segir
Heiða að Liu Qi hafi lýst áhuga á
að ræða um jarðhita og orkumál.
Hún segir að rætt hafi verið innan
Besta flokksins hvort minnast eigi
á mannréttindamál á fundinum,
en niðurstaðan verði trúlega sú að
gera það ekki. „En maður veit svo
sem aldrei hvað Jón gerir,“ segir
Heiða. - bj
Borgin fær heimsókn frá Kína:
Ræðir jarðhita
við Jón Gnarr
Fram í fimmta sætið
Fram lagði Keflavík, 2-1,
í Pepsi-deild karla í gær.
sport 22
14. september 2010
215. tölublað 10. árgangur