Fréttablaðið - 15.09.2010, Qupperneq 10
10 15. september 2010 MIÐVIKUDAGUR
BÝR SIG UNDIR UPPBOÐ Starfsmað-
ur uppboðsfyrirtækisins Christies í
London stillti sér upp til myndatöku
bak við rómverskan bronshjálm með
andlitsgrímu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Íslandsmeistarakeppni
í Ökuleikni
Laugardaginn 18. september nk verður haldin opin
Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni. Keppnin verður haldin á
svæði Ökukennarafélags Íslands við Kirkjusand í Reykjavík
og hefst kl. 13:00. Skráning og nánari upplýsingar eru á
www.brautin.is og í síma 588 9070.
FYRIR
229 KRÓNUR
FÆRÐ ÞÚ: Stöð 2, Stöð 2 Bíó og Stöð 2 Extra kosta aðeins 229 krónur á dag í Stöð 2 Vild.
Tryggðu þér áskrift í dag!
eða
frábæra skemmtun í
heilan sólarhring fyrir
alla fjölskylduna
tertusneið
í bakaríi
LÖGREGLUMÁL Þeir sem stóðu að
húsbrotinu í Vesturbænum um síð-
ustu helgi, hjá kúbverskum feðgum
og sambýliskonu föðurins, höfðu
hótað fólkinu með smáskilaboðum
og símtölum áður en þeir létu til
skarar skríða.
Mennirnir sem stóðu fyrir hús-
brotinu gerðu fyrra áhlaupið á laug-
ardeginum. Þá brutu þeir rúður á
heimili fólksins og hrópuðu hótanir
að því. Síðara áhlaupið gerðu þeir
aðfaranótt sunnudagsins þegar
þeir brutust inn í húsið og hótuðu
fólkinu öllu illu. Á sunnudaginn
handtók lögreglan tvo menn, annan
innan við tvítugt en hinn á fertugs-
aldri. Sá síðarnefndi situr í gæslu-
varðhaldi fram á föstudag.
Margt þykir benda til þess að
kynþáttafordómar hafi ráðið ferð-
inni í þessu máli, þar sem upphaf
þess má rekja til tilraunar nema í
menntaskóla til þess að stía í sund-
ur kúbverska piltinum og íslenskri
vinkonu hans. Þegar fleiri komu að
málinu, allir á aldrinum 16 og 17
ára, fór það úr böndunum og leiddi
til atlaganna að heimili kúbversku
feðganna sem flúðu fyrirvaralaust
land í kjölfarið. Faðirinn hafði
verið búsettur hér um árabil. - jss
HEIMILIÐ Tvær atlögur voru gerðar að
heimili feðganna um síðustu helgi.
Rannsókn lögreglu á áhlaupinu á kúbversku feðgana í fullum gangi:
Hófst með hótunum í síma
SAMFÉLAG Nafnið Alexander var
vinsælasta nafngift íslenskra
sveinbarna á síðasta ári en Anna
var vinsælasta nafnið sem foreldr-
ar völdu nýfæddum stúlkubörnum.
Anna var einnig algengasta nafn-
ið árið áður, en Alexander tók við
af Viktori sem algengasta drengja-
nafnið.
Samkvæmt samantekt Hag-
stofu Íslands fengu flestir sem
fæddir voru á árinu 2009 fleiri
en eitt nafn. Þór var langvinsæl-
asta annað nafn drengja en Freyr
og Ingi voru í öðru og þriðja sæt-
inu. María og Ósk voru algengustu
önnur nöfn nýfæddra stúlkna. Í
þriðja sætinu var nafnið Líf, sem
tók við af nafninu Rós sem þriðja
vinsælasta val foreldra stúlku-
barna.
Þegar skoðuð er dreifing nafna
á Íslendingum á öllum aldri hefur
lítil breyting verið á algengustu
nöfnunum. Jón er enn algengasta
karlmannsnafnið. Sigurður og
Guðmundur fylgja þar fast á eftir
í vinsældum. Hjá konum er nafnið
Guðrún enn algengasta eiginnafn-
ið, þá Anna og svo Sigríður.
Meirihluti Íslendinga ber fleiri
en eitt nafn. Vinsælustu samsetn-
ingarnar hjá körlum eru Jón Þór,
Gunnar Þór og Jón Ingi. Algeng-
ustu samsetningarnar hjá konum
eru Anna María, Anna Margrét og
Anna Kristín.
Í samantekt Hagstofunnar er
einnig yfirlit yfir afmælisdaga
landsmanna. Þeir dreifast ekki
jafnt yfir árið, enda algengast að
börn fæðist að sumri og á haustin.
Fæstir eiga afmæli á vetrarmánuð-
um frá nóvember fram í febrúar.
Algengasti afmælisdagurinn í
byrjun árs 2010 var 16. júlí. Þá áttu
974 einstaklingar afmæli. Fæst-
ir eiga afmæli 24. desember, 666
manns samtals. Næstfæstir eiga
afmæli á gamlársdag, 705 talsins.
Sá dagur sem fæstir eiga sem
afmælisdag er þó auðvitað 29.
febrúar, en miðað við mannfjölda-
tölur frá upphafi árs 2010 má
reikna með að 208 einstaklingar
bíði spenntir eftir næsta afmæli,
sem verður árið 2012.
brjann@frettabladid.is
Alexander og
Anna vinsæl
Nafnið Alexander var algengasta nafn nýfæddra
drengja á síðasta ári en Anna var algengasta nafn
stúlkubarna. Þrátt fyrir breyttar áherslur undanfar-
in ár eru nöfnin Jón og Guðrún enn algengust.
Algengustu nöfn nýfæddra barna árið 2009
SVEINBÖRN MEYBÖRN
Fyrsta nafn Annað nafn Fyrsta nafn Annað nafn
1. Alexander Þór Anna María
2. Daníel Freyr Rakel Ósk
3. Jón Logi Emilía Líf
4. Sigurður Ingi Katrín Rós
5. Viktor Máni Kristín Kristín
6. Arnar Örn Viktoría Lilja
7. Kristján Orri Aníta Eva
8. Gunnar Hrafn Ísabella Björk
9. Kristófer Snær Margrét Karen
10. Stefán Már Eva Sól
KÚBA, AP Kúbustjórn ætlar að
segja hálfri milljón manns, sem
hafa starfað hjá ríkinu, upp störf-
um. Þetta samsvarar tíu prósent-
um vinnufærra manna í landinu.
Þetta verður mikið áfall en
kemur þó ekki alveg á óvart því
Raúl Castro forseti, sem tók
formlega við af Fidel Castro fyrir
tveimur árum, hefur lengi sagt
óhjákvæmilegt að gera róttæk-
ar breytingar í ríkisrekstrinum.
Ríkið geti ekki lengur niðurgreitt
stóran hluta lífsviðurværis lands-
manna. - gb
Fjöldauppsagnir á Kúbu:
Hálfri milljón
sagt upp starfi
NEFNDUR Hafi þessi ungi drengur fengið
nafn á síðasta ári er líklegast að það hafi
verið Alexander eða Daníel.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES