Fréttablaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 38
26 15. september 2010 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ERFIÐ BARÁTTA
Liam Gallagher er svo
ákveðinn í að slá í gegn
með nýju hljómsveitinni
sinni, Beady Eye, að hann
er að reyna að hætta að reykja.
Gallagher hefur verið stórreykinga-
maður í yfir tuttugu ár. „Liam fer
út að hlaupa flesta morgna og nú
ætlar hann að hætta að reykja.
Hann vill að röddin verði fullkom-
in fyrir nýja bandið,“ segir vinur
söngvarans.
Talsmaður leikkonunnar Penélope Cruz hefur stað-
fest að leikkonan og eiginmaður hennar, spænski
leikarinn Javier Bardem, eigi von á sínu fyrsta
barni í byrjun næsta árs.
Bardem og Cruz, sem er komin tæpa fimm mán-
uði á leið, giftu sig í júlí í látlausri athöfn á Bah-
ama-eyjum. Þau fóru að rugla saman reytum þegar
þau léku á móti hvort öðru í kvikmynd Woody
Allen, Vicky Cristina Barcelona, árið 2008.
Systir leikkonunnar sagði í nýlegu viðtali
við spænska tímaritið Hola! að það kæmi
henni ekki á óvart ef barn væri á leiðinni.
„Þau hafa sýnt heiminum að þau eru ást-
fangin og það væri aðeins eðlilegt ef þau
vildu eignast börn bráðum,“ sagði systir
leikkonunnar.
Eiga von á barni
ÓLÉTT Penélope Cruz er ólétt af sínu fyrsta barni.
Safnbox með sjaldheyrðum og óút-
gefnum lögum með Jimi Hendrix
verður gefið út 15. nóvember í til-
efni þess að fjörutíu ár eru liðin
frá dauða hans. Boxið nefnist
West Coast Seattle Boy – The Jimi
Hendrix Anthology og hefur að
geyma fjóra geisladiska og 90 mín-
útna langa heimildarmynd um gít-
arsnillinginn. Ný útgáfa af laginu
Love Or Confusion verður gefin út
sem smáskífa 27. september í til-
efni safnboxins.
Alls verða í boxinu 45 óútgefn-
ar hljóðvers- og tónleikaupptökur
með Hendrix, þar á meðal sjald-
heyrðar útgáfur af lögunum á
þremur hljóðversplötum hans.
Safnbox með Hendrix
„Þetta var frábært,,“ segir framleið-
andinn Katrín Ólafsdóttir nýkomin heim
frá kvikmyndahátíðinni í Feneyjum
þar sem stuttmynd hennar, Líf og dauði
Henry Darger, var frumsýnd. Um tíma
leit út fyrir að Katrín kæmist ekki út til
að kynna myndina eins og Fréttablað-
ið greindi frá. En eftir að greinin birtist
var haft samband við Katrínu og henni
bent á að sækja um menningarstyrk hjá
Félagi kvikmyndagerðarmanna. Það
gerði hún og hlaut styrkinn. „Þetta skipt-
ir svo miklu máli því við ætlum að gera
annað verkefni núna og það var rosalega
gott að geta kynnt það. Fólk var mjög
spennt fyrir því,“ segir Katrín. Hún
segir myndina hafa fengið góðar viðtök-
ur áhorfenda. „Aðrir kvikmyndagerðar-
menn voru að skoða myndina og vilja lík-
lega koma til Íslands til að taka upp.“
Leikstjóri stuttmyndarinnar er Frakk-
inn Bertrand Mandico. Saman ætla þau
að gera eina stuttmynd á ári næstu tut-
tugu árin þar sem fjallað verður um
umhverfismál á Reykjanesinu.
Fyrsta myndin verður tekin upp í lok
mánaðarins og verður leikkonan Elina
Löwenshon í aðalhlutverki. Hún hefur
leikið töluvert fyrir óháða bandaríska
leikstjórann Hal Hartley og komið fram
í myndum á borð við Schindler ś List og
Basquait.
„Hún er mjög vel gefin og mjög vel að
sér í kvikmyndasögunni. Það er gaman
að vinna með henni,“ segir Katrín.
Löwenshon hefur verið búsett töluvert á
Íslandi því fyrrverandi maðurinn hennar
er franskur myndlistarmaður sem hefur
unnið hér á landi. - fb
Fékk styrk til Feneyjafarar
KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR Nýkomin heim frá Fen-
eyjum þar sem stuttmyndin Líf og dauði Henry
Darger var frumsýnd. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þær hafa verið svefnlausar
næturnar hjá aðstandend-
um Bíó Paradísar: Heim-
ili kvikmyndanna. Í dag
rennur svo stóri dagurinn
upp þegar hin langþráða
kvikmyndamiðstöð verður
opnuð.
Bíó Paradís verður opnað með
tónlistarheimildarmyndinni
Backyard eftir Árna Sveinsson
en hún vann til aðalverðlauna
á heimildarmyndahátíðinni
Skjaldborg á þessu ári. Ásgrím-
ur Sverrisson, dagskrárstjóri
kvikmyndahússins, segir stærstu
útlitsbreytingarnar vera þær að
húsið að utan hafi verið málað
í nýjum litum. „Og svo er stór
breyting á forsölu hússins, þar
er búið að koma upp kaffihúsi.
Fólk á sérstaklega eftir að taka
eftir miklum breytingum með
fremri forsalinn. Það stendur
til að gera meira með þann aft-
ari, jafnvel hafa hann nátengd-
an kvikmyndasögu Íslands með
munum og öðrum fróðleik úr
íslenskum kvikmyndum. Frammi
verður meiri kaffihúsafílingur,“
segir Ásgrímur.
freyrgigja@frettabladid.is
Bíó Paradís opnuð í kvöld
REGNBOGARSKILTIÐ HORFIÐ Hið fræga Regnbogaskilti hefur fengið að víkja fyrir nýju skilti; Bíó Paradís; Heimili kvikmyndanna.
MIKLAR BREYTINGAR Lovísa Óladóttir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Ásgrímur Sverris-
son og Ragnar Bragason skeggræða síðustu smáatriðin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Eldhúsinnréttingar til sölu
Rýmum fyrir nýjum innréttingum
Eigum enn til vandaðar sýningarinnréttingar.
Tilvalið á kaffistofu
70% afsláttur!
Eldhúsval ehf
Sóltúni 20, 105 Reykjavík
sími: 5614770
EFTIR FRANZ KAFKA
LEIKSTJÓRN: GÍSLI ÖRN GARÐARSSON OG DAVID FARR
TÓNLIST: NICK CAVE OG WARREN ELLIS
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Miðasala 551 1200 leikhusid.is midi.is
HAMSKIPTIN
Einstakt tækifæri,
síðustu sýningar!
“Nýstárleg og skemmtileg leiksýning”Elísabet Brekkan, Fbl
„Veisla fyrir augað“ Bryndís Schram, pressan.is
„Svo hrifnir voru áhorfendur að Nick Cave náði ekki að ljúka lokalaginu.
Út brutust þvílík fagnaðarlæti að þakið ætlaði af húsinu“ Sigríður Albertsdóttir, DV
Fim. 16/9 Örfá sæti laus
Fös. 17/9 Örfá sæti laus