Morgunn - 01.12.1930, Qupperneq 13
M 0 R G U N N
155
undir því sé barn,' sem baðaði handleggjunum í allar
áttir.
„Þetta hækkar, en lækkar þó stundum í bili; loks
er það orðið um 5 fet á hæð, og slæðurnar leggjast að
kví í fellingum. Þá lyftast handleggirnir upp yfir höf-
uðið og mynda op upp úr þessum andaslæðum, og þarna
stendur Yolande afhjúpuð, yndisleg og fögur, um 5 feta
há, með tyrkneskum höfuðbúnaði, en undan honum
tellur langt svart hár niður herðar hennar og bak“.
Alt þetta gerðist á 10 til 15 mínútum.
Þegar hún aflíkamaðist, gekk hún fram á gólfið
til að sýna sig, breiddi slæðurnar yfir höfuð sér og vafði
þuirn utan að sér; svo smá-minkaði hún skyndilega, og
eftir tvær til fimm mínútur sáust aðeins slæðurnar, og
uður en tvær mínútur væru aftur liðnar, voru þær líka
horfnar.
Einn af fundarmönnunum hjá Mdm d’Espérance
var Mr. W. Oxley í Manchester, höfundur bókarinnar
j.Angelic Revelations“, sem er í fimm bindum. Hafði
hann margt að segja af þeim fundum. Honum hafði
verið heitið, hjá öðrum miðli, að hann skyldi fá fáséða
blöntu, ef hann kæmist á fund hjá frúnni. Plantan vex
a Indlandi, og heitir Ixora crocata. Yolande blandaði sam-
an í vatnsflösku vatni og sandi og lagði af sér slæður
yfir það. Plantan óx upp úr flöskunni með undursam-
legum hraða, unz hún var orðin 22 þumlungar á hæð
mcð þykkum trjákendum stofni, sem fylti alveg út í
flöskuhálsinn; á henni voru tuttugu og níu blöð, hvert
Þeirra um og yfir sjö þumlunga löng og tveggja til
^Úggja þumlunga breið. Var hún með mjög stóru út-
sPrungnu blómi og mörgum blómhnöppum. Mynd var
!ekin af henni, og er hún í bók frúarinnar, og ýmsar
aðrar myndir af plöntum, er uxu á sama hátt. Plant-
an lifði hjá garðyrkjumanni Oxleys í þrjá mánuði, en
visnaði eftir það.
Önnur kvenvera, er sýndi sig þarna, var nefnd Y-Ay-