Morgunn - 01.12.1930, Side 14
156
MORGUNN
Ali. Mr. Oxley segist aldrei hafa séð svo vel skapaðan
líkamning-, og dáist mjög að yndisþokka hennar. Hún
rétti honum hönd sína, og segir hann, að hún hafi ver-
ið mjúk og heit. Rétt á eftir aflíkamaðist hún í allra
augsýn rétt fyrir framan byrgi miðilsins, á sama hátt
og Yolande.
Vert er að geta þess, að á þessum miðilsfundum tók
Mr. Oxley mót af höndum og fótum líkamninga, og
voru opin á þeim um úlnliði og ökla svo þröng, að eng-
in mannleg hönd eða fótur hefði út úr þeim komist án
þess að mótin brotnuðu sundur. Skýringin á þessu fyrir-
brigði er náttúrlega sú, að þessar fætur og hendur af-
líkömuðust inni í mótunum. Þetta var árið 1876 og var
því veitt lítil eftirtekt, nema í blöðum spíritista. Aftur
vakti það feikna mikla eftirtekt, er þeir Geley og Richet
tóku slík mót af líkamningum árið 1922, hjá miðlinum
Kluski. Það er vitanlega af því, að heimurinn var þá
orðinn dálítið athugulli á miðilsfyrirbrigðin.
Meðal annars er sagt frá manni, er sumir fundar-
menn þektu, en legið hafði eitt ár í gröf sinni. Segir einn
fundarmannanna, að ekki hafi verið um það að villast,
að maðurinn var sá sami. Nokkuru síðar voru kona
þessa manns og tvær dætur þeirra á fundi, og kom hann
þá aftur, og þektu þær hann allar.
Kona ein hafði, áður en hún andaðist, lagt svo fyr-
ir við mann sinn, að hann léti grafa með henni tvo
hringa, er hún bar á hendinni. Maðurinn lofaði því, en
nokkuru seinna, er hann var á fundi hjá frúnni, birtist
dána konan í gættinni að byrginu og var hin snúðug-
asta. Margir þektu hana strax, og ekkillinn ætlaði að
fara að fagna konu sinni, en hún sneri sér þóttalega frá
honum og spurði kuldalega:
„Hvað hefirðu gert við hringinn minn?“
„Góða mín“, svaraði ekkillinn, „eg hefi ekki tekið
hringinn þinn; hefir þú hann ekki á fingrinum?“ Hon-
um lá við gráti, en konan hvarf aftur inn í byrgið. Síð-