Morgunn - 01.12.1930, Síða 15
MORGUNN
157
ar sagði ekkillinn frá því, að dóttir hans hefði tekið
hringana af fingrum móður sinnar, áður en hún var
•lörðuð, og hafði honum láðst að vara dótturina við því.
Það virðist nú viðurkent af ýmsum sálarrannsókna-
roönnum, að þegar krafturinn er lítill við líkamningar,
er hætta á, að andlit líkamningsins verði svo líkt and-
^ti miðilsins, að ekki sé jafnvel óeðlilegt að menn með
litla reynslu gruni hann um svik; en þegar krafturinn
Vex, breytist þetta alt. Þetta kom t. d. fyrir með Katie
King, er sýndi sig hjá hinum ágæta miðli Florence
Cook, og það hefir margsinnis komið fyrir hjá öðrum
miðlum, og það kom fyrir hjá Mdm d’Espérance. Einn
at fundarmönnunum rauk á Yolande og hélt henni
fastri, og hvað skeður? Mdm d’Experance er þar á
£ólfinu nær dauða en lífi, en Yolande er horfin. Slíkir
viðburðir þykja efagjörnum mönnum grunsamlegir.
öðrum þykir þetta ekkert furðulegt. Benda þeir á, að
iikami líkamningsins sé gerður úr líkama miðilsins og
Se þá ekki svo undarlegt, að þessir tveir líkamir renni
saman, er líkamningnum er haldið föstum. Benda má
a 1 þessu sambandi, að við líkamningar léttast miðlarnir
°tt stórkostlega, jafnvel um 50 pund eða meira, og
það hefir jafnvel komið fyrir, að miðillinn í byrginu
hefir orðið með öllu ósýnilegur um stund, er að honum
var leitað, meðan á líkamningunni stóð. Yið tilraunir
^r. Crawford með Miss Goligher léttist hún eitt sinn
Urn 52 ensk pund. Þegar Olcott var að rannsaka Mrs.
^ornpton, kom þetta fyrir: Miðillinn sat á stól, innilok-
uð í byrgi, en gegnum göt á eyrnasneplunum var dreg-
mn þráður, sem bundinn var aftur fyrir stólinn og það
vandlega. Líkamningurinn, sem birtist, reyndist í ann-
að skiftið 77 en hitt skiftið 59 ensk pund. Olcott fór þá
inn í byrgið, til að líta eftir miðlinum, en hann var horf-
|nn- Stóllinn stóð auður og konan var horfin. Líkamn-
lníturinn hvarf þá brátt inn í byrgið, en aðrir líkamning-
'ar komu út úr því. Olcott fór þá aftur inn í byrgið með