Morgunn - 01.12.1930, Page 50
192
M 0 R G U N N
Á fundi innri hringsins, 17. febr., heyrðist Jón tala
utan við miðilinn: ,,Gott kvöld“, sagði hann, ,,nú líður
mér betur“. Við heilsuðum honum innilega. Sigmundur
talar þá gegnum miðilinn og segir, að Jón sé nú farinn
úr buxunum og sé nú klæddur skikkju, sem sé ekki með
öllu sneidd hvítum lit.*
Hinn 24. febr. notuðum við í fyrsta sinn lúður, sem
var fluttur til af einhverju ósýnilegu afli og nokkiúr að-
stoðarmenn stjórnandans töluðu gegnum hann. En
seinna á sama fundi heyrðum við rödd Jóns gegnum
lúðurinn, sem nú var fluttur fram og aftur um salinn á
fleygiferð, og heyrðist slást í veggina. En Jón dvaldi
aldrei lengi í einu. Á næsta fundi, 28. febr., heilsar Jón
okkur gegnum lúðurinn og sveiflar honum frá einum
vegg til annars og slær honum upp í loftið. Það skal
tekið fram, að salurinn var 24 fet á breidd og 12 fet
á hæð.
Við fengum okkur nú miklu stærri lúður, sem hvíldi
á járnfæti. Á fundi, sem haldinn var 4. marz, var hann
notaður í annað sinn. Þegar fundurinn var hér um bil
hálfnaður, heilsaði Jón til allra hliða gegnum litla lúð-
urinn. Læknirinn, sem heyrði illa, spyr, hver sé þar. Þá
hrópar Jón gegnum lúðurinn: „Þekkir þú mig ekki,
skipaeigandinn“. Þessi læknir hafði átt fiskibáta á þeim
tíma, er Jón kynntist honum. Þá spyr einhver, hvort
* Þetta sýnist mér konia furðanlega lieim við það, sem dr.
Kemer segir um anda, er spákonan frá Prevorst sá. Þessar vofur
sóttu að henni töluvert lengi, og hún bað oft með þeim. Að síðustu
voru í för með þeim bjartari verur, og þeir sjálfir birtúst í búningi,
.sem táknaði umbót á ástandi þeirra, þótt þeir væru þá dökkir. Ura
síðir skildu þeir við hana og sögðu, að þeir væru nú færir um að
gæta sín sjálfir með aðstoð sælla anda. Eg tilfæri hér úr bók dr.
Eugene Crowells: „Frumlegur kristindómur og nýtízku andatrú“,
New York 1874 (bindi I, bls. 317). Þessi bók var óþekt á íslandi
þangað til 1921; þá keypti eg eintak í London. Eg hefi síðaii fengið
bók dlr. Kemers (Spákonan frá Prevorst), en eg þori að segja, að
1908 hafði hvoruga þessa bók nokkur maður á Jslandi lesið.