Morgunn - 01.12.1930, Blaðsíða 82
224
M O R G TJ N N
líkamningafunöi.
Tucer systur sdu framliðna móður sína.
[Frk. Kmilía Bor/j f'lutti eftirfarandi erindi á fundi S. R. F. I.
19. sept. síSastliðinn].
Það er fyrir tilmæli forseta þessa félags, hr. rithöf.
Einars Kvaran, að eg er stödd hér í kvöld. Hann hafði
frétt, að ég hefði fengið í Kaupmannahöfn hjá hr. Ein-
ari Nielsen fund, sem mér hefði þótt mikils um vert, og
hann mæltist til þess, að eg segði félagsmönnum frá
því, sem fyrir mig hefði borið.
Mér þótti afar mikilsvert um fundinn. Eg tel það
lán, sem eg verð ávalt þakklát fyrir, að hafa fengið að
sjá og heyra það, sem þar fór fram. Mér er það þess
vegna ánægja, að segja öðrum frá því, og eg vildi óska,
að það gæti orðið einhverjum til stuðnings eða hugg-
unar.
Að hinu leytinu verð eg að kannast við, að eg er
því óvön, að standa frammi fyrir mannfjölda og segja
honum sögur, svo eg verð fyrirfram að biðja ykkur vel-
virðingar á því, ef mér tekst þetta mjög óhöndulega.
Auðvitað veit eg, að eg get ekki lýst því, sem
fyrir mig bar, nálægt því eins og það var, að verða fyr-
ir því. Eg get hvorki lýst öllu, sem eg sá, jafn-nákvæm-
lega og eg vildi, né heldur áhrifunum, sem eg varð
fyrir.
En eg ætla að segja frá því svo nákvæmlega og
samvizkusamlega sem eg get, og þið verðið að skapa
í eyðurnar og hugsa ykkur, hvað mikið mér hafi fund-
ist til um það.
Það var fyrir aðstoð góðra vina okkar, íslenzkra
hjóna, sem þá voru stödd í Khöfn, að við Anna systir
mín fengum kost á að koma á þennan fund.