Morgunn - 01.12.1930, Blaðsíða 89
MORGUNN
231
Rit5tjóra-rabb morguns
um hitt og þetta.
Sir A th Þann 8. júlí síðastliðinn lézt Sir Arthur
Conan Doyle. Conan D°yle. rúmlega sjötugur. í frá-
falli hans hefir spíritistiska hreyfingin
Soldið svo mikið afhroð, að flestum mun finnast, að frá
sjónarmiði spíritismans hefði ekki verið jafn-mikil eftir-
s.ión að neinum öðrum manni. Yíst er um það, að enginn
af foringjum þeirrar hreyfingar naut jafn-almennrar
ástsældar eins og hann.
Rithöf d r ^vo S6m ^es^um lesendum Morguns mun
inn kunnugt, var hann heimsfrægur rithöf-
undur. Eftir að hann hafði tekið próf í
'æknisfræði, og fengist við lækningar, tiltölulega skamma
stund, fór hann að rita skáldsögur, og þeim var svo vel
tekið, að hann sneri sér að þeim sem atvinnugrein. Sögur
hans um Sherlock Holmes urðu brátt heimsfrægar. Al-
ment mun litið svo á, sem ]>ær séu snjallastar allra sams-
konar skáldsagna (leynilögreglusagna), sem ritaðar hafa
verið, að minsta kosti með Englendingum. Einn af for-
stjórum lögreglustöðvarinnar frægu, Scotland Yard, hefir
htað ]>að um þær sögur, að tilgangur höfundarins hafi
ekki eins mikið verið sá, að vekja aðdáun á uppgötvunar-
hæfileikum, eins og hitt að kenna mönnunum að athuga og
hugsa. Annars eru Sherlock-Holmes-sögurnar ekki nema
lítið brot af bókum hans. Þær munu alls hafa verið um
60. Sumar af hans löngu sögum eru með beztu rómönum,
sem til eru á enskri tungu.
«5.. Conan Doyle hafði lengi þótt mikils vert
„"“nn.sókna' um sálrænar rannsóknir. Ekki löngu eft-
ir að Sálarrannsoknafelagið brezka var
stofnað, gerðist hann félagi þar, og það var hann þang-