Morgunn - 01.12.1930, Qupperneq 98
240
MORGUNN
Rauöskinna.
Svipaðra einkenna verður nokkuð vart
í bæklingi, sem er nýlega kominn út, og
heitir ,,Rauðskinna“. Síra Jón Thorarensen í Hruna hef-
ir safnað sögunum, að miklu leyti eftir frásögn Ólafs
hreppstjóra Ketilssonar, og um ýmsar þeirra er það að
segja, að engin ástæða er til að efast um, að þær skýri
frá atburðum, sem áreiðanlega hafi gerst. Sögurnar eru
af Suðurnesjum, er sagt á tilblaði bókarinnar. En einni
sögu er þar samt skotið inn í, sem ekki er af Suðurnesj-
um, og bersýnilega er ekkert annað en þjóðsaga.
Hallur á Ein saga er þar, „Hallur á Haugsend-
Haugsendum. um“, sem er sögð vera gömul frásögn,
og er líka all-forneskjuleg. En hún er merkileg að því leyti,
að meðan hinir dularfullu atburðir gerast, sem sagan
skýrir frá, er húsfreyjan auðsjáanlega í því ástandi, sem
nú er nefnt trance, og afleiðingarnar af því, að vitleys-
islega er með hana farið í þessu ástandi, eru einmitt
þær sömu, sem búast hefði mátt við. Hvað sem menn
eiga að ætla um sannindi þeirrar sögu, þá virðist vera
bak við hana þekking á trance-ástandinu.
Tvær sögur Ólafs Ketilssonar skal hér
sérstaklega bent á. Engin ástæða er til
þess að efast um áreiðanleik þeirra.
Önnur þeirra er um reimleika í Kotvogi árið 1878.
Þangað kemur það haust maður til útróðra norðan
úr landi. Annaðhvort hefir maðurinn verið öflugur mið-
ill, eða honum hefir í raun og veru „fylgt“ eitthvað —
eða hvorttveggja. Með komu hans hefst hinn magnað-
asti reimleiki, sem ágætlega er skýrt frá í sögunni. Sögu-
manni tókst tvisvar að sjá þann, er talið var að ókyrr-
leikanum ylli, og lýsir honum svo, að hann hafi verið á
stærð við 7—8 ára gamlan strák, í grámórauðri prjóna-
peysu og húfulaus, en á hárafari hans gat hann ekki
glöggvað sig, þó að hann sæi hann í fullri dagsbirtu.
Líkamningin hefir ekki verið nægilega fullkomin til
þess. Frh. á bls. 162.
Reimleiki
í Kotvogi.