Morgunn - 01.12.1946, Síða 13
MORGUNN
83
merkastar slíkra heimsókna hingað. Nielsen er ekki einungis
líkamningamiðill, heldur miðill beinna radda. Og hjá hon-
um gerast hin furðulegustu flutningafyrirbæri. Sjálfur
hefi eg reynt hjá honum slíkt fyrirbæri, sem þeir einir
trúa, er vita, að eg hefi enga tilhneigingu til þess að fara
með ósannindi um þessi mál. Þó kveður mest að líkamn-
ingafundum Nielsens. Líkamningafyrirbærin eru slíkrar
tegundar og svo stórkostleg, að þeir einir trúa, er sjá þau
og reyna. Efalaust tel eg, að Einar Nielsen muni vera einn
hinn mesti líkamningamiðill, sem nú er uppi í heiminum,
ef ekki mestur.
Meðan á mótinu stóð hélt Nielsen þrjá fundi. Fyrsti og
annar fundurinn heppnuðust ágætlega, en hinn þriðji mis-
heppnaðist með öllu, enda var miðillinn þá orðinn mjög
þreyttur af umstangi mótsins. Eg átti kost á að vera á
■öllum fundunum, og skal nú tilraun gerð að lýsa þeim
nokkuð.
Verur þær, sem starfa fast við sambandið hinum meg-
in frá og líkamnast að jafnaði á fundunum, eru þessar:
Mika, stjórnandinn, Rita, ung stúlka, Knud, drengur, Dr.
Monark, Johannes, Haraldur Níelsson, Dómprófastur Mar-
tinus, Larsen, Saxonius, Pastor Mathias, Pastor Peter
Christiansen.
Meðan fundur er undirbúinn ganga fundargestir um
stofurnar. 1 einu horni innri stofunnar er byrgið. Þar er
þægilegur, leðurklæddur stóll í horninu. Framan við hann
hanga sparlök úr þunnu, svörtu efni niður að gólfi. Með-
an á undirbúningi stendur er sparlökunum slegið upp. 1
horninu er ekkert nema stóllinn, ekki svo mikið sem mynd
á vegg. Tvísett röð stóla mynda hálfhring um hornið.
Venjuleg tala fundargesta er um 16 manns. Þegar gestir
eru seztir, heldur miðillinn stutta tölu framan við byrgið,
býður gesti hjartanlega velkomna. Hann gerir grein fyrir
skoðun sinni á því, hvernig fyrirbærin gerist. Hann er
eins konar orkumiðstöð, sem hleðst af magnetiskum krafti
fundargesta, En sérhæfileikar, sem honum séu léðir, geri