Morgunn - 01.12.1946, Blaðsíða 69
MORGUNN
139
Margir segja: vísindin og umbótamenn veraldar hafa
öðru þarfara að sinna en þessu. Og svo yppta þeir öxl-
um. Já, drápstólasmíði og sýklaþróun í hernaðarþágu. Svo
hefur tík gotið austur í Tíbet,og hvolpinn þarf vandlega
að athuga, því að það er sagt, að hann hafi þrjú hjörtu.
Þá hefur líka fundizt sérstakt afbrigði af lokasjóði vestur
í Labrador, og loks er ekki hvað sízt nauðsyn á að helga
sig því hlutverki að lýsa dýrð þeirrar Leningrad, sem er
einhver hin mesta borg spámannsins, en lýsandinn hefur
aldrei fengið að skoða nema álengdar af lítilmótlegri skip§-
fjöl einnar smáfleytu síns ómerkilega föðurlands.
En segjum nú, að með gagngerðum rannsóknum, eftir
ströngustu aðferðum raunvísindanna, fengist full viður-
kenning þess, að í manninum sjálfum byggju einhver þau
öfl, einhver sá vísir til hæfileika, sem með vísindalegri
þróun þeirra gætu gerbreytt lífi manna og hugsunarhætti
til hins betra? Væri þá ekki nokkuð unnið? Segjum, að
ef til vill tækist að sanna það svo, að enginn dyrfðist að
mótmæla, að á allt líf orki ósýnileg máttarvöld, sum til
tortímingar, sum gagnstætt — og að mönnum reyndist fyr-
ir rannsóknirnar fært að eflast af öflum gróandans, svo
að sá yrði sjúkur að teljast, sem viki af hans vegi? Þarf
ýkja mikið ímyndunarafl til þess að hugsa sér, hverri
breytingu slíkt mundi valda? Segjum, að með hinum ó-
yggjandi rannsóknum tækist að sanna öllum í vercldinni,
að líf væri eftir þetta, og að hver og einn ætti sér búið
hlutskipti eftir hæfni sinni, fenginni í þessu lífi? Er óhugs-
anlegt, að slík alviðurkennd sönnun mundi einhverju
breyta um hugsunarhátt og lífsafstöðu? Segjum svo loks,
að allt það, sem hér á undan greinir, yrði sannað svo, að
ekki kæmi þar til greina neinar rengingar, frekar en á
því, að jörðin gengi kringum sólina — eða að til væri borg
í útlandinu, sem héti París? ... Hvort mætti þá ekki Tíbet-
hvolpurinn biða stundarkorn, meðan á rannsóknunum
stæði? Plvort mundi þá ekki jafnvel Leningrad að þeim
loknum óhættara en áður, án allrar vegsömunar úr f jarska?