Morgunn


Morgunn - 01.12.1946, Side 65

Morgunn - 01.12.1946, Side 65
MORGUNN 135 stundum verður mikið uppnám út úr ýmiss konar örðum á híði einhvers málkjarna. Alltaf eru einhverjir reiðubún- ir til að sæta tækifærinu, menn sem finnst þeir þurfa að pipra svolítið sína tómlegu og hugsjónasnauðu tilveru, og gera það, ef ekki er annars kostur, með ólátum og öskrum, og þá er einhver hefur byrjað, verður þetta eins og hjá öpunum, sem taka undir, þegar höfðingi þeirra rek- ur upp fyrsta morgungólið. Stundum virðast ólætin vera eins og farsótt, sem sé svo mögnuð, að menn verði jafnt undirlagðir, þó að þeir hafi í sér það móteitur, sem ætla mætti að duga mundi; og oft virðist þá þessi veiki leggj- ast á heilar ættkvíslir, og jafnvel vera sérstaklega skæð innan ákveðinna stétta, og þá ekki sízt þeirra, sem mest ættu að hafa móteitrið, móteitur þekkingar og kunnustu til rökréttrar hugsunar. Getur sýkin orðið svo mögnuð, að hálært fólk viðhafi orðbragð og rök, sem vandfundið sé meðal þeirra manna, sem fyrir sakir illrar aðbúðar á flestan veg hafa lent hálfvegis út úr mannlegu samfélagi. Eitt af þeim málum, sem oft og tíðum hefur orðið að sæta árásum af þessu tæi, er spíntisminn — eða hin svo- nefnda andatrú. Nú skal það þegar í stað játað, að ýmiss konar misnotkun og svik hafa komið fram í sambandi við spíritismann hér á landi. Ötíndir afglapar og dónar hafa náð tökum á fólki, sem hefur haft til að bera meiri eða minni miðilshæfileika, og gert sér síðan fé úr því, að mið- ilsfundir eru mjög eftirsóttir af þeim, sem skortir andlega rnenningu eða almenna greind og rökvísi. Orsakirnar til fíkni slíks fólks í svona fundi eru ýmsar, oftast forvitni, stundum sefjun, en oft líka löngun til að létta harma sína —• eða að minnsta kosti gera sér lífið fullnægjuríkara af vissunni um það, fenginni frá látnum aðstandendum, að ekki sé allur dagur af lofti, þó að þennan þrjóti. Slík mið- ilsstarfsemi hefur auðvitað alltaf endað í upplausn eða með skelfingu, enda framferði og fyrirbrigði á slíkum fund- um oft verið lítið mennilegt af hendi þeirra, sem um þá hafa séð og eins sumra hinna, sem þá hafa sótt. En er

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.