Morgunn


Morgunn - 01.12.1946, Page 32

Morgunn - 01.12.1946, Page 32
102 MORGUNN kvæð. Og það er vafamál, hvort jákvæður árangur af sumum þeirra varð starfsemi minni fremur til ávinnings eða skaða. Jafnvel þótt þeir yrðu vottar að jákvæðum árangri við sum slík tækifæri, fengust þeir ekki til að við- urkenna vísindalegt gildi hans. Þeir virtust fremur líta á slíkt sem einangrað fyrirbæri, kraftaverk eða tilviljun, sem ekki gæti endurtekizt, og því ekki unnt að viðurkenna það sem vísindalega sannaða staðreynd“, segir Erskine. Frá einu slíku atviki ætla ég að segja hér: Að loknu er- indi, er hann flutti á fundi lækna í Newcastle var komið með sjúkling til hans, er þeir æsktu að hann gerði tilraun- ir á. Hann var áreiðanlega einn af þeim, sem talið var von- laust um, og Erskine telur sennilegt, að flestir eða allir viðstaddra hafi gjörþekkt ástand hans. Þá hafði og verið leitað aðstoðar frægustu sérfræðinga þar í landi, en allt reyndist árangurslaust. Fyrir sjö árum hafði veiki rnaðurinn verið sjómaður á herskipi. Einu sinni vildi það slys til, að ein af byssum skipsins sprakk og hlaut þá þessi maður svo algjöra löm- un við það tækifæri, að honum var hvorki unnt að hreyfa legg né lið, hann gat enga björg sér veitt og í einu og öllu var hann háður hjálp annarra. I raun og veru var hann að- eins lifandi lík. Eina áhyggjuefni Erskines við byrjun til- raunarinnar var, hvort unnt væri að dásvæfa hann. Sjúkl- ingi þessum var nú ekið inn á sviðið til Erskines í sjúkra stóli. Að tveim mínútum liðnum var hann fallinn í dásvefn. Tveir læknar aðstoðuðu Erskine við að lyfta honum úr stólnum og lögðu þeir hann á grúfu á mjúka púða, er lagð- ir höfðu verið á gólfið. Erskine segir svo frá þessu: „Ég ávarpaði hinn dásvæfða mann í ákveðnurn skipun- arrómi: Þú ert um borð í skipinu þínu. Ég er yfirmaður þinn, þér ber að hlýða mér. Hann svaraði skipunum mín- um ekki að neinu, engin hræring var merkjanleg í líkama hans. Ég heyrði, að sumir áheyrenda minna hvísluðust á og hlógu lágt, en ég skeytti því engu, og hélt áfram skip- unum mínum. Orustan er byrjuð. Vertu einbeittur og ör-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.