Morgunn


Morgunn - 01.12.1946, Blaðsíða 78

Morgunn - 01.12.1946, Blaðsíða 78
148 MORGUNN Það vakti athygli mina og undrun, hvernig svipur hans óska fjölmargir, á hvern hátt sem þeir hugsa, að hjálpin breyttist, allt eftir því, hver það var, sem talaði af munni hans. Eftir að Hafsteinn hafði fest dásvefninn, talaði vera af munni hans og yrti á frú Elínborgu og heilsaði. Rétt á eftir kom önnur vera í sambandið; hún nefndist Ragna. Hún heilsaði okkur, en sneri þá máli sínu til mín. Hún bandi við mig, því ég hefði verið í „landinu rnikla", sem nefnt væri Ameríka, en þar væri hún ókunnug og þekkti ekki nöfn á sumu því, er þar bæri fyrir sig. Þá tók vera sú, er nefndist Finna, við frásögninni. Hún kvaðst heldur ekki treysta sér til að lýsa „landinu mikla“, svo aö mér þætti því rétt lýst; en hún kvaðst ætla að freista að lýsa gömlum bæ, er ég hefði verið gagnkunnugur á, áður en ég hefði farið til Ameríku. Ég skildi þetta þannig, að þætti mér sú lýsing fara svo nærri réttu, að ekki yrði um villzt, þá hefði hún sannað mér, að hún gæti lýst íslenzkum stað- háttum og öðrum hlutum svo rétt, að ég mætti einnig taka mark á því, er hún segði um „landið mikla“. Finna kvaðst sjá stóran bæ, er stæði framarlega á mjög bröttmn hól eða brekku. Á þessum bæ, sagði hún, að ég hefði verið gagnkunnugur og næstum daglegur gestur í ungdæmi mínu. Þar hefði verið stór torfbær og orðinn allgamall. Bóndinn, sem þar hefði búið í ungdæmi minu, hefði heitið Árni. Hann væri farinn yfirum fyrir mörg- um árum. Kona Árna hefði heitið Guðrún; hún væri fyrir skömmu farin yfirum, og þá verið orðin blind. Finna lýsti svo nákvæmlega hólnum eða brekkunni, er bærinn hefði staðið á og öllu umhverfi bæjarins, að ég gat ekki verið í neinum vafa um, að lýsingin átti við Auðbrekku í Hörg- árdal, en það er fornt höfuðból og þar bjó Sigríður hin stórráða síðustu æviár sín og byggði þar rausnarlega. Ég átti heima á bæ, er Svíri hét, frá því að ég var fimm ára og þar til ég fluttist til Ameríku seytján ára gamall, vor- ið 1900. Svíri stóð í Auðbrekkutúninu, og er ekki lengra á milli bæjanna, en að kallast má á á milli þeirra í kyrru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.