Morgunn - 01.12.1946, Side 35
MORGUNN
105
pilturinn sagði honum. Eftir því, sem piltinum sagðist frá,
hafði faðir hans farið að heiman og næstu þrjár klukku-
stundirnar lét hann persónuleik hins dásvæfða fylgjast með
ferðum föður síns. Hann fylgdi honum fram og aftur um
götur Lundúna, inn í eitt húsið af öðru. Erskine lagði spurn-
ingar fyrir piltinn á fimm mínútna fresti og ritaði jafnframt
niður tíma þann, er hann var á hverjum stað. Pilturinn
sagði honum allt um ferðir föður síns, við hverja hann tal-
aði, karla eða konur, númer húsa þeirra, er hann kom í, auk
fjölda annarra atriða, er Erskine ritaði jafnharðan. „Pilt-
urinn hreyfði sig hvergi úr stólnum í herbergi mínu meðan
á tilrauninni stóð“, segir Erskine. „Hann hafði enga vitn-
eskju um fyrirætlanir föður síns þetta kvöld og faðir hans
vissi vitanlega ekkert um, hvað gerðisf í heimili mínu, og
mér datt ekki í hug að gera þessa tilraun fyrr en nokkru
eftir að pilturinn kom. Þegar hann vaknaði, haföi hann enga
hugmynd um, hvað hafði gerzt.
Ég náði tali af föður hans strax og mér var unnt og spurði
hann, er við vorum tveir einir, hvort hann hefði orðið þess
var, að ósýnileg augu sonar hans hefðu fylgst með hverju
fótmáli hans og hverri athöfn áðurgreint kvöld. Honum
varð sýnilega hverft við, en svaraði því eðlilega neitandi.
Ég sýndi honum þá það, er ég hafði ritað niður. Undrun
hans verður ekki með orðum lýst, er hann las það, er ég
hafði skrifað niður. Hann gat ekkert sagt um stund, en
viðurkenndi að lestrinum loknum, að allt væri hárrétt, er
þar væri sagt. Tvennt bað hann mig um að lokum, að segja
engum frá því, er sonur hans hefði sagt um ferðir sínar,
og að senda hann ekki í leiðangur á hæla sér öðru sinni.
Vitanlega hét ég því“.
„Ekki verður þetta skýrt sem hugsanaflutningur“, segir
Eskine. „Þegar um slíkt er að ræða, eru bæði sendandi og
móttakandi að stuðla að því vitandi vits, að árangur náist.
Pilturinn var í dásvefni, faðir hans vissi ekkert um tilraun
M, er ég gerði að þessu sinni. Og hvað mig snerti, gerði ég
ekkert annað en að spyrja, ég vissi ekki nema það, er mér