Morgunn - 01.06.1956, Page 41
MORGUNN
35
ykkur mikla náð. Biðjið Guð um að hann gefi ykkur
miklar óskir, því að upp af miklum óskum má mikil bless-
un fæðast“.
Hún komst til Alba di Tormes mikið veik. Brosandi og
blessandi leyfði hún systrunum að bera sig til sængur. Á
bæsta degi klæddist hún og tók í hendur sínar klaustur-
stjórniria með öllum hinum gamla, hógværa skörungsskap.
Á 9. degi gafst hún upp og sagði, að nú væri dauðinn að
koma. Hún lét bera sig út í kirkjuna og lá í einn sólar-
hring á börum fyrir framan háaltarið, biðjandi og sokkin
niður í djúpt og innilegt samfélagslíf við himneska veröld
°g himneskar verur, sem hún virtist tala við. Þá lét hún
flytja sig aftur í klefann sinn og þangað fékk hún altaris-
sakramentið og sagði síðan: „Ó, Drottinn minn, nú er sú
langþráða stund komin, að við eigum að sjást". Eftir þetta
bjáðist hún ekki.
Hún var spurð, hvort hún vildi ekki að lík hennar yrði
flutt til greftrunar heim til Avila, þótt hún hefði ekki kom-
izt þangað til að deyja. Brosandi og með sinni gömlu
gamansemi enn í dauðanum svaraði hún: „Viljið þið ekki
gefa mér svona lítinn landskika hér?“
Hún fékk fagurt og rólegt andlát 3. október árið 1582.
Jón Auðuns.