Morgunn


Morgunn - 01.06.1956, Page 48

Morgunn - 01.06.1956, Page 48
42 MORGUNN komast eftir, hvað gerðist raunverulega á andlátsaugna- bliiknu, var hinn frægi vísindamaður Sir William Barrett prófessor í eðlisfræði. Hann andaðist árið 1926. Auk þess sem hann leysti af hendi merkilegt vísindalegt sálarrann- sóknastarf með vísindatækjum og aðferðum, safnaði hann traustum sögum af sýnum við dánarbeði og gaf út um þær litla en ágæta bók. Hann prófaði með vakandi gagnrýni sögurnar og sögufólkið, og var vel á verði gegn hverju því, sem bar ekki merki fullkomins sannleika, sannsögli og heiðarleika. Einna ríkust sönnunargögn þótti honum felast í sýnum barna við dánarbeði, ýmist deyjandi barna eða barna, sem við dánarbeði voru. Hann leit eðlilega svo á, að kornung börn væri erfiðara að rengja en fullorðnar manneskjur, og þá ekki sízt vegna þess, að litlu börnin vissu tíðum ekki að um dauðann væri að ræða og gátu engar hugmyndir gert sér um hann. Ein frásögnin er á þessa leið: Ung hjón höfðu misst börn sín tvö úr kvalafullum sjúk- dómi. Tvö þeirra, Fred og Annie, 7 og 8 ára gömul, voru önduð fyrir fáum vikum, þegar 4 ára gamall bróðir þeirra veiktist og lá innan skamms fyrir dauðanum. Sama kvöld- ið sem hann dó kom faðir hans að rúmi hans til að gefa honum lyf. Þá sat litli drengurinn uppréttur í rúmi sínu og sagði: „Nei, þarna eru þau Fred og Annie“. „Hvar, drengurinn minn?“ spurði faðirinn. „Sér þú þau ekki? Þarna, þarna“, sagði drengurinn og benti á vegginn. „Þau eru að bíða þess að ég komi með þeim“. Og á sama augna- bliki hné litli drengurinn andvana niður á koddann. Er ekki sennilegt, að fleira hafi verið við dánarbeð litla drengsins, sem foreldrarnir sáu ekki? Deyjandi drengur- inn vissi, að þessi systkin hans voru dáin, en mest sönn- unargildi sem rök fyrir framhaldslífinu hafa þær stað- reyndir, þegar deyjandi fólki birtast vinir og kunningjar, sem það hafði ekki hugmynd um, að væri dáið. Ein slík frásögn er þessi: Jenny og Edith voru skólasystur og miklar vinkonur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.