Morgunn - 01.06.1956, Síða 81
MORGUNN
75
hér í Rvík. Og í Evrópu rannsakaði hann flesta kunnustu
miðlana á þessu tímabili.
Mörgum þótti gagnrýni hans stundum fara úr hófi
fram, og sálarrannsóknamenn eru engan veginn á einu
^náli um afstöðu hans til líkamningafyrirbrigðanna. Hann
var einlægur maður í sannleiksleitinni, en hann var allra
Qianna skarpskyggnastur til að sjá í gegn um blekkingar,
hvort sem þær voru sjálfráðar eða ósjálfráðar miðlunum.
Eftir andlát konu hans stundaði hann af frábærri alúð
fósturdóttirin, ungfrú Doris Fischer, sem nú bar nafn
hans og hét nú Theodosia Brittia Prince. Eins og það hafði
verið hennar lán að fundum þeirra bar saman meðan hún
var sjúk, svo var það lán hans, að mega njóta hennar síð-
ustu árin.
Jón Auðuns tók saman eftir rit-
gerð Alson J. Smith og bætti
nokkurum atriðum við.
★
Margrét Tómasdóttir
og
Florence Marryat.
★
í bók sinni „Enginn dauði er til“ segir Florence Marryat
^ithöfundur, dóttir Marryats sjóliðsforingja, sem margir
kannast við af bókum hans, frá ýmsri dulrænni reynslu
smni. Hún var skyggn. Eitt sinn sá hún, er hún gekk upp
a loft í húsi sínu, þar sem barnaherbergið var, svip af
ttianni, snöggklæddum, er hún lýsir nánar, og virtist benda
henni að koma þangað. Ég þýði svo útdrátt úr því, er hún