Kylfingur - 29.04.1986, Qupperneq 25
íslandsmeistari kvenna, Ragnhildur Sigurðardóttir GR, slær inn á flöt.
úr GR, Stefán Unnarsson var annar
á 77 höggum.
7 keppendur voru í 1. flokki
kvenna. Þar náði Erla Adólfsdóttir
GA þriggja högga forskoti á fyrsta
degi, var á 93 höggum. Næstar á eft-
ir henni voru Aðalheiður Jörgensen
GR og Sigurbjörg Guðnadóttir GV.
Enn var keppni mjögjöfn í öðrum
flokki karla eftir tvo daga. Nú voru
þrír kylfingar efstir og jafnir á 168
höggum: Guðmundur Sigurjónsson
ásamt Rúnari Gíslasyni GR og Karli
H. Karlssyni GK.
Keppni í 2. flokki kvenna lauk
þennan dag, þar sem þær léku aðeins
36 holur. Sigríður Ólafsdóttir GH,
sem leikið hafði best daginn áður,
gerði það einnig seinni daginn og sigr-
aði því í flokknum með talsverðum
yfirburðum á 189 höggum. Jafnar í
2. til 3. sæti á 198 höggum voru
Hildur Þorsteinsdóttir GK og Kristine
Eide NK, en Hildur sigraði í umspili.
í 3. flokki karla hafði ívar Harð-
arson tekið forystuna og var á 175
höggum, en í 2. sæti var Guðmund-
ur Bjarnason GS á 177.
3. keppnisdagur.
Sigurður Pétursson lék þennan
dag geysivel í meistaraflokki karla
og setti vallarmet á Jaðri, lék á 71
höggi og stakk aðra keppendur af,
var samtals á 146 höggum. Ómar
Örn Ragnarsson var í 2. sæti, 7
höggum á eftir Sigurði með 153
högg. Úlfar Jónsson GK var nú
kominn í 3. sæti á 155 höggum, en
næstu menn, sem voru höggi lakari,
voru Gylfi Kristinsson og Magnús
Jónsson, báðir frá GS. Þar á eftir
komu fjórir kylfingar úr GR, þeir
Hannes Eyvindsson, Sigurður Haf-
steinsson, Karl Ómar Karlsson og
Óskar Sæmundsson.
Þær stöllur úr GR, Steinunn
Sæmundsdóttir og Ragnhildur Sig-
urðardóttir höfðu forystu í meist-
araflokki kvenna á 164 höggum og
voru talsvert á undan næstu konu,
sem var Þórdís Geirsdóttir á 170
höggum.
Helgi Eiríksson hélt enn forystu í
1. flokki karla á 154 höggum, en
næstir og jafnir voru Stefán Unnars-
son og Ólafur Gylfason GA á 157
höggum.
í 1. flokki kvenna var Erla Adólfs-
dóttir enn efst á 182 höggum, en nú
var Lóa Sigurbjörnsdóttir GK komin
í 2. sætið með 185 högg. í 3. sæti var
Aðalheiður Jörgensen á 186.
Karl H. Karlsson lék best allra í 2.
flokki karla þennan dag á 80 höggum
og tók þar með forystuna, samtals á
248 höggum. Á hæla honum á 249
höggum var Guðmundur Sigurjóns-
son, en 5 högg voru í næsta mann,
sem var Sigurþór Svævarsson GS.
ívar Harðarson var í 1. sæti í 3.
flokki karla með 263 högg, en Bessi
Gunnarsson fylgdi honum fast eftir
á 265 höggum. Var nú keppnin ein-
göngu milli þeirra, þar sem þriðji
maður, Guðmundur Bjarnason var á
270 höggum.
4. keppnisdagur.
Sigurður Pétursson hélt upptekn-
um hætti í meistaraflokki karla og
lék manna best á 73 höggum. Var
hann nú samtals með 219 högg, sem
er frábært á jafn erfiðum velli og
Jaðarsvöllurinn er. Úlfar Jónsson
var nú kominn í 2. sætið, 11 höggum
á eftir Sigurði, en Ómar Örn Ragn-
arsson var þriðji, höggi á eftir Úlf-
ari. Þá komu næstir Gylfi Kristins-
son, Ragnar Ólafsson GR og Magn-
ús Jónsson.
Keppnin í meistaraflokki kvenna
var mjög tvísýn milli Steinunnar
Sæmundsdóttur og Ragnhildar Sig-
urðardóttur. Þennan dag lék Stein-
unn á 84 höggum, en Ragnhildur var
KYLFINGUR
25