Kylfingur - 29.04.1986, Page 27
72 holum á Jaðri. Steinunn Sæ-
mundsdóttir, félagi Ragnhildar úr
GR, sem veitt hafði henni harða
keppni allt mótið og leikið mjög vel,
varð í 2. sæti, og Þórdís Geirsdóttir
GK í 3. sæti.
Úrslit í meistaraflokki kvenna
urðu þessi:
1. Ragnhildur Sigurðard. GR 329
2. Steinunn Sæmundsdóttir GR335
3. Þórdís Geirsdóttir GK 341
4. Kristín Pálsdóttir GK 346
5. Ásgerður Sverrisdóttir GR 347
6. Inga Magnúsdóttir GA 350
7. Jónína Pálsdóttir GA 375
8. Kristín Þorvaldsdóttir GK 382
9. Ágústa Dúa Jónsdóttir GR 393
Þó allt geti skeð í golfi, þá var
nánast formsatriði að ljúka keppni í
meistaraflokki karla, slíkir voru yf-
irburðir Sigurðar Péturssonar GR.
Átti hann 11 högg á næsta mann,
eins og áður sagði. Sigurður hélt
sínu striki og lék best allra meistara-
flokksmanna á lokadeginum eða á
75 höggum. Var hann samtals á 294
höggum, sem er stórgóður árangur.
Úlfar Jónsson GK var jafn öruggur
um 2. sætið eins og Sigurður um það
fyrsta. Keppnin var hins vegar geysi-
hörð um 3. sætið, en með góðum
leik í lokin tryggði Hannes Eyvinds-
son sér það. í meistaraflokki karla
urðu þessi úrslit.:
Sigurður Pétursson GR, íslandsmeistari karla, horfír á eftir boltanum í holuna.
1. Sigurður Pétursson GR 294
2. Úlfar Jónsson GK 306
3. Hannes Eyvindsson GR 311
4. Ragnar Ólafsson GR 312
Gylfi Kristinsson GS 312
Ómar Örn Ragnarss. GL 312
Magnús Jónsson GS 312
8. Kristján Hjálmarss. GH 316
Sigurður Sigurðsson GR 316
10. Óskar Sæmundsson GR 318
Tryggvi Traustason GK 318
Að kvöldi Iokadags fóru mótsslit
fram í skála Golfklúbbs Akureyrar
að Jaðri, þar sem Konráð R. Bjarna-
son, forseti G.S.Í afhenti verðlaun.
AUGLÝSING UM HJÁLP
frá unglinganefnd til allra kylfinga G.R.
Vegna fyrirhugaðs golfskóla í sumar fyrir unglinga, þá vantar
okkur kylfur til notkunar fyrir nýliða í skólanum.
Ef þið eigið notaðar, gamlar eða nýjar kylfur, sem þið getið
séð af til golfklúbbsins, þá er okkur stórkostlega mikill fengur
í því.
Með fyrirfram þökk
Unglinganefnd.
KYLFINGUR
27