Kylfingur - 29.04.1986, Side 28
LANDSMÓTIN
1970 OG 1971
LANDSMÓTIÐ 1970 var haldið á
tveimur völlum, á Hvaleyrarvelli og
Hólmsvelli í Leiru, þ. 11.-16. ágúst.
Sveitakeppnin fór fram i upphafi
móts að venju. Golfklúbbur Reykja-
víkur sigraði á 500 höggum, Golf-
klúbbur Suðurnesja varð i 2. sæti á
506 höggum, og í 3. sæti varð Nes-
klúbburinn á 514 höggum. Akureyr-
ingar léku á 520 höggum, Keilis-
menn á 521 og Vestmannaeyingar
ráku lestina á 531 höggi.
Öldungameistari án forgjafar
varð Jóhann Eyjólfsson GR á 86
höggum, eftir harða baráttu við fél-
aga sinn úr GR, Ingólf Isebarn, sem
var á 87 höggum. í 3.-4. sæti urðu
Óli B. Jónsson NK og Bogi
Þorsteinsson GS, báðir á 91 höggi. í
öldungakeppni með forgjöf urðu 3
menn jafnir á 75 höggum, Jóhann
Eyjólfsson GR, Bogi Þorsteinsson
GS og Sverrir Guðmundsson GR.
Meistaraflokkur karla hóf leik á
Hvaleyrinni. Einar Guðnason GR
tók forystuna á 1. degi á 80 höggum.
Veður var erfitt til leiks og árangur
því ekki góður. í 2. sæti var
Þórarinn B. Jónsson GA á 82
höggum. Á 83 höggum voru,
íslandsmeistarinn frá fyrra ári,
Þorbjörn Kjærbo GS, Jóhann
Benediktson GS, Gunnlaugur
Ragnarsson GR, Óttar Yngvason
GR og Hallgrímur Júlíusson GV. Á
2. degi lék meistaraflokkur í Leir-
unni. Þennan dag lék Gunnlaugur
Axelsson GV best allra á 73 höggum
og komst þannig í 3.-5. sæti á 163
höggum. Þorbjörn hafði tekið for-
ystuna á 159 höggum, en Gunnar
Sólnes NK var á 160 höggum. Jafnir
Gunnlaugi voru Einar og Jóhann. 3.
daginn lék meistaraflokkur aftur á
Hvaleyrinni. Þá lék Þórarinn mjög
vel og tók forystuna, var á 242 högg-
um, höggi betri en Þorbjörn.
Gunnar var í 3. sæti á 247 höggum.
Einar var á 248 höggum og Jóhann
á 249. Keppninni í meistaraflokki
lauk á laugardegi í Leirunni.
íslandsmeistari varð Þorbjörn
Kjærbo GS á 317 höggum, eftir æsi-
spennandi baráttu við Þórarinn B.
Jónsson GA, sem var höggi lakari.
Var keppnin milli þeirra mjög
skemmtileg og varð ekki til lykta
leidd, fyrr en á síðustu holu. í 3. sæti
varð Jóhann Benediktsson GS á 327
höggum, eftir aukakeppni við Óttar
Yngvason GR, sem hlaut 4. sætið. í
5. sæti varð Gunnar Sólnes NK á 328
höggum, og Einar Guðnason GR
varð í 6. sæti á 329 höggum.
í kvennaflokki voru leiknar 9
holur á dag. I upphafi tók Jakobína
Guðlaugsdóttir GV forystuna á 47
höggum. Fast á hæla henni kom
Laufey Karlsdóttir GR, á 49 högg-
um, og Hanna Aðalsteinsdóttir GK
varí3. sætiá51 höggi. Eftir 18holur
hélt Jakobína enn forystu á 95
höggum, en Laufey var á 99.
Guðríður Guðmundsdóttir GR var
nú í 3. sæti á 104 höggum. Sama röð
var á tveimur efstu konum eftir
keppni 3. dags. Jakobina var á 144
höggum, en Laufey á 147. Guðfinna
Sigurþórsdóttir GS var í 3. sæti á 160
höggum. Á föstudegi lauk keppn-
inni i kvennaflokki. íslandsmeistari
varð Jakobina Guðlaugsdóttir GV
eftir aukakeppni við Laufeyju
Karlsdóttur GR, svo hörð var bar-
áttan á milli þeirra. Báðar léku þær
36 holurnar á 193 höggum. í 3. sæti
varð Guðfinna Sigurþórsdóttir GS á
211 höggum og jafnar í 4.-5. sæti
urðu Guðríður Guðmundsdóttir GR
og Hanna Aðalsteinsdóttir GK á 214
höggum.
í 1. flokki voru 3 Suðurnesjamenn
efstir á 1. degi. Sævar Sörensen og
Brynjar Vilmundarson voru á 85
höggum, en höggi lakari var Helgi
Hólm. Eftir 36 holur var Brynjar
einn í 1. sæti á 173 höggum. Óli B.
Jónsson NK var á 176, og höggi
lakari var Jónas Aðalsteinsson GK.
Sævar lék mjög vel á 3. degi keppn-
innar og tók nokkuð afgerandi for-
ystu á 264 höggum. Nú var félagi
hans úr GS, Sigurður Albertsson,
kominní2. sæti á268 höggum, og3.
var Jónatan Ólafsson NK, einu
höggi lakari. Suðurnesjamenn röð-
uðu sér í verðlaunasætin í þessum
flokki. Sigurvegari varð Sævar
Sörensen á 352 höggum. í 2. sæti
varð Ásmundur Sigurðsson á 357,
og Hörður Guðmundsson hlaut 3.
sætið á 359 höggum, eftir auka-
keppni við Brynjar Vilmundarson.
2. flokkur karla hóf leik í Leir-
unni. Þar tók forystu strax í upphafi
Július Fossberg GA, en fast á eftir
honum komu Ólafur Marteinsson
GK og Haukur Magnússon GS, á 89
og 90 höggum. Júlíus hélt forystunni
eftir 2 daga á 181 höggi. Tveimur
höggum lakari var Ólafur, og höggi
á eftir honum var Jóhann Hjartar-
son GS. Sömu menn voru í efstu
sætum eftir keppni 3. dags, Július
leiddi á 271 höggi, en Jóhann og
Ólafur höfðu haft sætaskipti.
Jóhann var á 276 höggum, en Ólafur
á 283. Þessi röð hélst óbreytt loka-
daginn. Júlíus Fossberg GA sigraði
á 369 höggum. í 2. sæti varð Jóhann
Hjartarson GS á 372 höggum og
Ólafur Marteinsson GK 3. á 373.
3. flokkur byrjaði sömuleiðis í
Leirunni. Þar var Þórir Arin-
bjarnarson GR i 1. sæti á 97 högg-
um. Björgúlfur Lúðvíksson GR var
á 99 höggum í 2. sæti, og í 3. sæti var
Friðrik Bjarnason GS á 100 högg-
um. 2. daginn tók Friðrik forystu á
193 höggum, en Þórir var 2. á 194.
Henning Bjarnason GK var nú í 3.
sæti á 203 höggum. Þórir náði for-
ystunni aftur á 3. degi, var nú á 300
höggum, en Friðrik var á 304.
Henning var enn sem fyrr 3. á 309
höggum. Að lokum sigraði Þórir
Arinbjarnarson GR með talsverðum
yfirburðum, lék á 392 höggum. í 2.
sæti varð Henning Bjarnason GK á
403 höggum, og í 3. sæti varð
Guðmundur S. Guðmundsson GR á
413.
Keppnin í piltaflokki varð mjög
söguleg. 1. daginn lék Ólafur Skúla-
son GR afburðavel, var á 76 högg-
28
KYLFINGUR