Kylfingur - 29.04.1986, Page 34
John miftar boltann á Mijas, Jens og Leifur fylgjast meft.
spurði hann, hvort við vissum ekki,
að búið væri að aflýsa keppninni
vegna bleytu. Auðvitað dettur ís-
lendingum ekki í hug, að veður verði
til að aflýsa keppni. En hvað um það
við þessu var lítið að gera, þannig að
við byrjuðum að hringja og finna út,
hvort einhvers staðar væri opinn
golfvöllur. Fundum við mjög góðan
völl i nágrenninu, og þegar þangað
var komið var komið mjög gott veð-
ur, og áttum við þar mjög ánægju-
legan dag.
Laugardagurinn var hvíldardag-
ur, en um kvöldið var öllum boðið í
lokahóf og verðlaunaafhendingu.
Þar var boðið upp á mjög góðan
mat, og var þar mikil og góð stemm-
ing. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu
fimm sætin. Einnig voru veitt verð-
laun fyrir að vera næstur holu á par
þrú holu. Eins voru verðlaun fyrir
versta skor. Ekki blönduðum við
okkur í þessi verðlaun og áttum
reyndar ekki von á neinum verð-
launum. Það kom okkur því á óvart
að vera kallaðir upp og fá verðlaun
fyrir bestu framkomu og klæðnað.
Ljóst er að það vakti töluverða at-
hygli, að sveit skildi koma frá ís-
landi til þátttöklu á þessu móti.
Á sunnudeginum var farið heim,
en áður gátum við spilað einn hring
á Aloha golfvellinum. Þennan dag
var 30 stiga hiti og veðrið eins gott og
hægt er að hugsa sér á þessum árs-
tima. Aloha völlurinn er án efa
skemmtilegasti völlur, sem við spil-
NÝR KENNARI HJÁ GA
Akureyringar hafa ráðið til sín
nýjan kennara frá Englandi. Heitir
hann David Barnwell. Vænta Akur-
eyringar sér góðs af komu hans til
landsins. Auk kennslunnar mun
hann annast allar viðgerðir sem og
KYLFINGUR n
uðum á, og ætla ég ekki að reyna að
lýsa honum, hann er svo einstakur.
Þegar hugsað er til baka að lok-
inni svona ferð, þá er ljóst, að hún
mun aldrei gleymast. Ég get því ráð-
lagt hverjum sem er að taka þátt i
samskonar keppni. Reyndar hefur
þegar verið ákveðið, að hópur fari
aftur út í október i samskonar
keppni, meir um það siðar.
rekstur golfverslunar að Jaðri. Kylf-
ingur sendir meðlimum GA bestu
árnaðaróskir í tilefni þessara tíma-
móta og óskar hinum nýja kennara
alls hins besta norðan heiða.
Unbrol: Hilmar Kirlwon.
Ilalldór Bragason
KJartan Jónsson
Lúðvík Georgsson.
34
KYLFINGUR