Fréttablaðið - 24.11.2010, Page 16
16 24. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
HALLDÓR
Af upplýsingum kosningablaðsins sést að meginmáli skiptir hver settur er í
fyrsta sæti en minnstu máli hverjir fara
í neðstu sætin. Þá getur harðskeyttur
hópur komið manni að þó að hann sé ekki
mjög stór. Segjum að 100 þúsund manns
kjósi, þar af 4000 nýnazistar, og skrifi
2,5 milljón atkvæða þ.e. nafnnúmera á
100 þús. atkvæðaseðla. Segjum líka að
af 500 frambjóðendum sé einn nýnazisti
sem enginn setur á seðilinn nema nýnaz-
istar. Hann fær þá 0,16% atkvæðanna
og ætti að vera víðsfjarri því að komast
að. En kjósendur hans setja hann auðvit-
að efstan svo hann fær 4000 atkvæða-
seðla með sér í fyrsta sæti en hinir fá að
meðaltali 200 slíka. Nýnazistinn er þá
inni en aðrir með margfalt fleiri atkvæði,
en eðlilega dreifð um öll sæti atkvæða-
seðlanna detta út. Almennt er það mein-
gölluð kosning ef atkvæði sumra kjós-
endahópa safnast á fáa frambjóðendur og
nýtast vel en atkvæði annarra hópa dreif-
ast á marga frambjóðendur og nýtast illa.
Sjálfsagt er enginn nýnasisti í kjöri
en marga stjórnmálafræðinga og nem-
endur þeirra dreymir um þingsetu. Einn
frambjóðandi tekur fram að nýta beri
auðlindir okkar með hag mannkyns í
huga. Ætli sá fái mörg atkvæði? Þau fara
líklega fremur til hinna sem finnst eins
og flestum kjósendum að þeim útlend-
ingum sem borða 99% af fiskinum sem
veiðist nálægt Íslandi komi það ekkert
við hvort við útrýmum okkar eigin hvala-
og fiskistofnum eða ekki.
En einfarinn fer í fyrsta sætið á
mínum kjörseðli og því fleiri sem hugsa
eins og ég, því færri atkvæði þarf hún
til að komast að. Þó svo verði ekki ættu
einhver ákvæði um ábyrga fiskveiði-
stjórnun og þjóðareign á fiskistofnunum
að rata í stjórnarskrána því nánast allir
frambjóðendur sögðust mjög hlynntir
því í könnun DV og enginn mjög á móti.
Hætt er þó við að einhverjir málaliðar
sigli undir fölsku flaggi inn á þingið og
muni beita endalausu málþófi þar sem
annars staðar gegn nýtingu auðlinda
með hag þjóðarinnar í huga fremur en
hag kvótagreifa og skúffufyrirtækja. Sé
afdráttarlaust ákvæði í stjórnarskránni
um að fiskveiðiréttindin séu ekki og geti
aldrei orðið eign LÍÚ verður fyrningar-
leiðin sem ég lagði til fyrir 20 árum brot
á stjórnarskránni eins og samningaleið-
in eða gjafakvótaleiðin og óþarfi að ræða
þær leiðir meira.
Er nokkur nýnasisti í framboði?
Stjórnlaga-
þing
Einar Júlíusson
eðlisfræðingur
Þingið
Stundum eru hressandi umræður
í þinginu. Ein slík fór fram fyrir
nokkrum vikum en féll milli skips
og bryggju. Hér verður gripið niður
í skoðanaskipti Gunnars Braga
Sveinssonar, þingflokksformanns
Framsóknarflokksins, og Marðar
Árnasonar Samfylkingunni. Til
umfjöllunar var tillaga
Marðar og Valgerðar
Bjarnadóttur um að
laun þingflokksfor-
manna og formanna
þingnefnda yrðu
lækkuð til jafns við
laun almennra
þingmanna.
Eitthvert mesta …
GBS: „Það frumvarp sem háttvirtir
þingmenn leggja fram er eitthvert
mesta lýðskrum og popúlismi
sem ég hef séð frá því að ég fór
að fylgjast með störfum Alþingis.
Það er með ólíkindum að háttvirtir
þingmenn skuli nota sér það ástand
sem er í samfélaginu til að slá sig til
riddara með hætti sem þessum.“
MÁ: „Nú er ég svo gamall
sem á grönum má sjá, átján
barna faðir í Álfheimum,
og hef þó aldrei séð svona
stóran gaur í svo lítilli grýtu
og vissi ekki að ég
ætti eftir að
upplifa það
hér á þingævi minni að vera kallaður
popúlisti af hálfu háttvirts þing-
manns Gunnars Braga Sveinssonar.“
Og áfram var haldið
GBS: „Það er ekki heil brú í þessu
frumvarpi, herra forseti. Þetta er
lýðskrum og popúlismi.“
MÁ: „Það þykir siðaðra manna háttur
að færa rök fyrir skoðunum sínum og
ályktunum á annarra manna viðhorf-
um og þeim tíðindum sem gerast
í kringum þá. Ég harma það að
háttvirtur þingmaður Gunnar Bragi
Sveinsson skuli ekki hafa tamið sér
þau vinnubrögð.“ Allsherjarnefnd
hefur nú málið til meðferðar.
bjorn@frettabladid.is
M
eðferð Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra
og Árna Páls Árnasonar, fyrrverandi félagsmálaráð-
herra, á málefnum vistheimilisins Árbótar í Aðaldal,
sem Fréttablaðið hefur sagt frá undanfarna daga,
gefur innsýn í vinnubrögð sem sumir héldu kannski
að heyrðu sögunni til en eimir þó enn eftir af.
Eftir að kynferðisbrotamál kom upp á vistheimilinu og úttektir
sérfræðinga Barnaverndarstofu sýndu fram á að það uppfyllti ekki
lengur þær kröfur sem stofnunin gerði, hættu barnaverndarnefndir
að vilja senda þangað börn og nýting plássanna (og þar af leið-
andi peninga skattgreiðenda) snarversnaði. Í framhaldinu ákvað
Barnaverndarstofa um síðustu áramót að segja upp samningi um
reksturinn, í samræmi við ákvæði í honum. Hjónin sem ráku heim-
ilið heimtuðu háar bætur úr rík-
issjóði, sem Barnaverndarstofa
taldi að ekki væri skylt að greiða.
Augljóslega hefur þá verið leit-
að á náðir Steingríms, þing-
manns Norðausturkjördæmis,
sem skrifaði Árna Páli stuttu
síðar tölvupóst sem er nú orðinn
alræmdur, ekki sízt vegna hótun-
ar fjármálaráðherrans um að taka engar ákvarðanir sem tengdust
barnaverndarmálum fyrr en lausn hefði fundizt í Árbótarmálinu.
Á Alþingi í fyrradag hélt ráðherrann því fram að skeytið hefði
verið einkabréf, sem Barnaverndarstofa hefði lekið í fjölmiðla. Bréf
frá einum ráðherra til annars um ráðstöfun skattfjár getur að sjálf-
sögðu ekki verið neitt einkabréf. Fréttablaðið fékk tölvupóstinn
afhentan bæði frá Barnaverndarstofu og félagsmálaráðuneytinu
eftir að hafa spurzt fyrir um málið með vísan til upplýsingalaga.
Steingrímur uppástóð á Alþingi að með bréfinu hefði hann fyrst
og fremst viljað gæta hagsmuna skattgreiðenda; að ekki yrði stofn-
að til kostnaðar að þarflausu. Þeir sem lesa bréfið geta hins vegar
ekki komizt að annarri niðurstöðu en þeirri að Steingrímur hafi
haft öllu meiri áhyggjur af hagsmunum skjólstæðinga sinna heima
í kjördæmi og að „málið spryngi upp með látum fyrir norðan“.
Þvert á álit forstjóra Barnaverndarstofu ákváðu ráðherrarnir að
greiða eigendum Árbótar þrjátíu milljónir króna í bætur. Þeir hunz-
uðu sömuleiðis ábendingu forstjórans um að fá álit ríkislögmanns á
því hvort bótaskylda væri yfirleitt fyrir hendi. Eitthvað leið Árna
Páli illa með niðurstöðuna, því að hann velti upp þeirri spurningu
í öðru tölvubréfi hvers vegna ríkið væri að greiða svo mikið fé
„umfram skyldu“. Svar hans var: „Vegna sanngirnissjónarmiða og
þrýstings frá kjördæmisþingmönnum.“ Þar hefur Árni væntanlega
verið að vísa annars vegar til þrýstingsins frá Steingrími og hins
vegar frá Kristjáni Þór Júlíussyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins,
sem í enn einum tölvupóstinum, til annarra þingmanna kjördæmis-
ins, sagði: „Treysti því að Steingrímur komi þessu í höfn.“ Þar virð-
ist hafa farið lítið fyrir gagnrýni og eftirliti stjórnarandstöðunnar
með gjörðum stjórnvalda – enda kjördæmishagsmunir í húfi.
Ef marka má viðbrögð sumra annarra þingmanna Norðaustur-
kjördæmis, sem fjölmenntu í pontu Alþingis í gær og sóru af sér
öll afskipti af málinu, er vaxandi skilningur á því í þinginu að kjör-
dæmapotið er úrelt og flokkast ekki með faglegri stjórnsýslu.
Eðli málsins samkvæmt þolir kjördæmapotið ekki dagsins ljós.
Enda reiddist fjármálaráðherra birtingu tölvubréfsins alræmda.
Úrelt vinnubrögð sem ekki þola dagsljósið:
Kjördæmapotið
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN