Fréttablaðið - 24.11.2010, Síða 40
32 24. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Tónlist ★
Various Times in Johnny‘s Life
Guðmundur Reynir Gunnarsson
Skot yfir markið
Það vakti töluverða athygli
þegar það birtust fréttir um að
KR-bakvörðurinn Guðmundur
Reynir Gunnarsson hygðist gefa
út plötu. Slíkt ætti samt ekki
að koma svo mikið á óvart;
íþróttamenn hafa reynst hinir
ágætustu tónlistarmenn og
tónlist virðist leika sífellt stærra
hlutverk í lífi knattspyrnu-
manna miðað við notkun
þeirra á Ipodum fyrir leiki eins
og sjá má í beinum útsending-
um fyrir kappleiki.
Guðmundur Reynir hefði
mátt bíða aðeins með Various
Times in Johnny‘s Life. Útsetningar hér eru fínar en lagasmíðarnar eru ekki
nógu þroskaðar, þær eru einhæfar þótt þær hafi kannski hljómað ágætlega
í einhverju kassagítarpartýi. Lögin eru á köflum óþarflega væmin og minna
stundum á misjöfn tónlistaratriði framhaldsskólanna í Gettu betur.
Auðvitað er freistandi að grípa til tenginga við knattspyrnubakgrunn
Guðmundar Reynis, þetta væri slappt markskot, hálfgerð rangstaða og svo
framvegis. Guðmundur má hins vegar vita eitt; hann er feykilega öflugur
bakvörður og stendur sig með sóma sem slíkur. Tónlistin verður hins vegar
að bíða betri tíma.
Freyr Gígja Gunnarsson
Niðurstaða: Lagasmiðar Guðmundar Reynis eru ekki nægjanlega þroskaðar
og lögin óþarflega væmin á köflum.
Hin sænska Noomi Rapace
er stolt af þeim tíma sem
hún eyddi á Íslandi. Hún er
þakklát Hrafni Gunnlaugs-
syni fyrir að kveikt í sér
draum um að gerast leik-
kona.
Noomi Rapace, leikkonan sem sló
eftirminnilega í gegn í hlutverki
Lisbeth Salander, þakkar Hrafni
Gunnlaugssyni og kvikmyndinni
Í skugga hrafnsins fyrir að hafa
kveikt í leikkonudraumnum sem
hún hafði. Þetta kemur fram í við-
tölum við bresk blöð. Þriðja mynd-
in í Millennium-þríleiknum verður
frumsýnd í Bretlandi um helg-
ina og bresk blöð hafa birt fjölda
viðtala við sænsku leikkonuna
sem leikur einnig stórt hlutverk í
Sherlock Holmes 2.
Rapace hefur hingað til leyft
blaðamönnum að fjalla um íslensk-
an uppruna sinn en í nýlegum við-
tölum hefur hún gert dvöl sinni hér
á landi hærra undir höfði. Noomi
flutti til Íslands, nánar tiltek-
ið á Flúðir, þegar móðir
hennar tók saman við
íslenskan mann og
þær mæðgur bjuggu
hér saman í þrjú og
hálft ár. „Á tíma-
bili var ég orðin
meiri Íslendingur
en Svíi og vildi ekki fara aftur
til Svíþjóðar. Þegar við fluttum
til Stokkhólms lýsti ég því yfir á
hverju ári við alla sem vildu heyra
að ég ætlaði að flytja aftur heim
til Íslands,“ segir Noomi meðal
annars í samtali við skoska
blaðið Herald Scotland.
Þegar hún Noomi var
aðeins sjö ára fékk hún
óvænt lítið hlutverk í vík-
ingamynd Hrafns Gunn-
laugssonar, Í skugga
hrafnsins. Noomi segir að
þótt hún hafi ekki fengið að
segja neitt þá hafi hún þarna
áttað sig á því hvað hana lang-
aði til að gera í framtíðinni.
„Á tökustaðnum opnaðist
nýr heimur fyrir mér, ég
held að ég hafi ákveð-
ið á þeim tímapunkti að
mig langaði til að verða
leikkona.“
freyrgigja@frettabladid.is
Þakkar Hrafni fyrir ferilinn
NÝR HEIMUR Noomi Rapace segist hafa uppgötvað nýjan heim þegar hún var við tökur á víkingamyndinni Í skugga hrafnsins eftir
Hrafn Gunnlaugsson. Þá hafi hún ákveðið að verða leikkona. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Leikkonan Jessica Alba vill eign-
ast fleiri börn á næst-
unni með eiginmannin-
um Cash Warren. Alba
og bóndi hennar eiga
tveggja ára dóttur,
Honor Marie, og
leikkonan vill
gjarnan að
dóttirin fái
systkini til
að leika sér
við.
„Áður en hún
fæddist einbeitti
ég mér að ferl-
inum en nú á ég
yndislega fjöl-
skyldu. Mig
langar í fleiri
börn,“ segir
Alba ákveðin.
Alba vill
fleiri börn
FJÖLSKYLDUMANNESKJA
Jessica Alba vill að dóttir
sín eignist systkini til að
leika sér við.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
SKYLINE 8 og 10 16
JACKASS – ÓTEXTUÐ 6, 8 og 10.15 12
UNSTOPPABLE 8 og 10.15 12
ARTÚR 3: TVEGGJA HEIMA STRÍÐ 6 - ÍSL TAL 7
ÚTI ER ÆVINTÝRI 6 - ÍSL TAL L
- S.V. MBL
HARRY POTTER kl. 5, 6, 8, 9, 10.10
DUE DATE kl. 3.40, 5.50, 8, og 10.10
GNARR kl. 5.40
ÆVINTÝRI SAMMA-3D M/ ísl. Tali kl. 3
RED kl. 8
KONUNGSRÍKI UGLANNA-3D M/ ísl. Tali kl. 3.50
HARRY POTTER kl. 6 - 9
GNARR kl. 6
DUE DATE kl. 8 - 10:10
10
10
10
10
10
12
L
L
12
10
10
10
10
10
L
L
L
L
7
7
- BOXOFFICE MAGAZINE
- ORLANDO SENTINEL
- TIME OUT NEW YORK
HARRY POTTER kl. 5 - 6 - 8 - 10 - 11
HARRY POTTER kl. 5 - 8 - 11
DUE DATE kl. 5:50 - 8 - 10:20
RED kl. 8 - 10:20
ÓRÓI kl. 8 - 10:10
ALGJÖR SVEPPI kl. 6
FURRY VENGEANCE kl. 5:50
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30 - 10:10
GNARR kl. 8
DUE DATE kl. 8 - 10:20
ÆVINTÝTÝRI SAMMA-3D M/ ísl. Tali kl. 6
MIÐASALA Á
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is
5%
Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ
SKYLINE KL. 8 - 10
JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 8 - 10
12
12
ARTÚR 3 KL. 6
EASY A KL. 6
L
L
Nánar á Miði.is
SKYLINE KL. 5.50 - 8 - 10.10
JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
JACKASS 3D LÚXUS ÓTEXTAÐ KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
UNSTOPPABLE KL. 8 - 10.10
EASY A KL. 5.50 - 8 - 10.10
ARTHÚR 3 KL. 3.40 - 5.50
ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 KL. 3.40
AULINN ÉG 3D KL. 3.40
12
12
12
L
L
L
L
L
SKYLINE KL. 5.50 - 8 - 10.10
UNSTOPPABLE KL. 8 - 10.10
EASY A KL. 8 - 10.10
ARTHÚR 3 KL. 5.50
YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER KL. 8 - 10.15
INHALE KL. 6
BRIM KL. 6
12
L
L
L
L
16
12
HÁSKÓLABÍÓ
"MYND SEM HITTIR Í MARK!"
-H.H, MBL
GLERAUGU SELD SÉR
ÍSL. TAL
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM MAGNAÐA
VÍSINDASKÁLDSÖGUTRYLLI Í BÍÓ!
"HASAR Í LESTINNI"
-H.V.A, FBL
ÍSL. TAL