Fréttablaðið - 21.01.2011, Side 8

Fréttablaðið - 21.01.2011, Side 8
8 21. janúar 2011 FÖSTUDAGUR Tilboð kr.: 24.900 Verðlistaverð kr.: 33.200 Vinsælasta ryksugan frá Miele Miele Tango Plus Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar, með stillanlegu röri og úrvali fylgihluta. Þær hafa hlotið hæstu einkunn hjá neytendasamtökum í Þýskalandi. AFSLÁTTUR Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI HALLDÓR BALDURSSON Meiri Vísir. Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku. m.visir.is Fáðu Vísi í símannog iPad! SKÓLAMÁL Frekari niðurskurður í grunnskólum Reykjavíkur gæti orðið til þess að þeir standist hvorki þær kröfur sem gerðar eru í grunnskólalögum né aðal- námsskrá. Þetta segir Guðrún Valdimarsdóttir, formaður Sam- taka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík (SAMFOK). Þá segir Guðrún að sárlega hafi skort á samráð við fulltrúa for- eldra í skóla- ráðum í þeim niðurskurðar- hugmyndum sem menntasvið Reykjavíkur ætli skólastjórn- endum að fram- fylgja. Vísar hún til þess að t i ltekið hafi verið sérstak- lega á plöggum með niðurskurðartilmælum menntasviðs sem skólastjórar fengu fyrir helgi að foreldrar ættu ekki að sjá tölurnar. „Þetta er þriðja eða fjórða árið í röð sem skorið er niður,“ segir Guðrún og kveður SAMFOK lengi hafa mótmælt áætlunum um niður skurð í skólunum. „Við erum löngu komin að sársauka- mörkum.“ Guðrún segir SAMFOK hafa lagt áherslu á að fremur yrði skorið niður í yfirbyggingu eða öðrum þáttum þar sem hagræð- ingin bitnaði ekki á börnunum og kennslu þeirra. „Þetta er ekki bara menntastofn- un heldur þarf að sinna mörgum félagslegum þáttum líka. Þeim er varla verið að sinna í dag og verð- ur alls ekki hægt ef skera á meira niður.“ Guðrún segir stöðuna nú þannig að fyrir dyrum sé skóla- starf í Reykjavík sem samræm- ist hvorki lögum né aðalnáms- skrá. SAMFOK fundar um málið með formönnum foreldrafélaga og fulltrúum foreldra í skólaráðum á Grand Hótel Reykjavík í hádeginu í dag. „Í foreldrum er mikill hiti og reiði og búið að vera lengi. En nú er gjörsamlega allt að springa.“ Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkur, kann- ast ekki við að reynt hafi verið að halda upplýsingum um niðurskurð frá fulltrúum foreldra. Hún bendir á að tillögurnar hafi verið kynnt- ar í skólaráðum fyrir helgi og þar eigi þeir fulltrúa. „Það er eng- inn vilji til að pukrast með neitt,“ segir hún. Oddný segir hafa verið vitað að niðurskurðurinn yrði erfiður, en ekki liggi fyrir fyrr en í lok næsta mánaðar hvernig endanleg niðurstaða verði í hverjum skóla. „Nú stendur sú vinna yfir að fara yfir það með hverjum skólastjóra hvernig standa megi að málum þannig að bitni sem minnst á skólastarfinu sjálfu,“ segir hún og áréttar að grunnskólalög verði ekki brotin í Reykjavík. olikr@frettabladid.is GUÐRÚN VALDIMARSDÓTTIR Í HÁTEIGSSKÓLA Meðal þess sem lagt er til við stjórnendur grunnskóla í Reykjavík í nýrri fjárhagsáætlun menntasviðs borgarinnar er að kennarar hætti að fylgja átta og níu ára börnum í kaffi og matmálstímum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Vegið að lögbundnu hlutverki grunnskóla Foreldrar barna í Reykjavík bregðast reiðir við fregnum af enn meiri niður- skurði í skólakerfinu, segir Guðrún Valdimarsdóttir, formaður SAMFOK. Hún telur boðaðan niðurskurð gera skólum erfitt að sinna lögboðnu hlutverki sínu. NEYTENDUR Fráveitugjöld í Reykjavík hækka um 13 prósent á þessu ári og Orkuveitan innheimtir nú gjöldin beint í stað þess að þau séu greidd með fast- eignagjöldum. Í kynningarriti frá Orkuveitunni segir að frá- veitugjald, sem áður hét holræsagjald, hafi til þessa verið miðað við fasteignamat húsa í Reykjavík. Það muni nú breytast. Eðlilegra sé að miða við stærð húsnæðis en ekki fasteignamat þess við útreikning vatnsgjalds og fráveitugjalda. „Stærð húseignar ræður meiru um kostnað við þjónustuna en hvernig fasteignamarkaðurinn metur viðkomandi eign,“ segir Orkuveitan, sem boðar hækkun fráveitugjalda. „Meginskýringin er sú að borgarsjóður Reykjavíkur innheimti árið 2010 lægri gjöld af eigendum fasteigna en hann greiddi OR samkvæmt samningi um rekstur fráveitunnar.“ Þá segir að eigendur stærra húsnæðis með hlut- fallslega lágt fasteignamat eigi von á mestri hækk- un. Fráveitugjald fyrir minni eignir geti lækkað, sé fasteignamat þeirra hlutfallslega hátt. Samkvæmt dæmum sem Orkuveitan gefur hækkar fráveitugjald fyrir 50 til 100 fermetra íbúð í Reykjavík að meðaltali um 2.299 krónur á ári. Hækkunin fyrir 100 til 200 fermetra húsnæði er að meðaltali um 3.454 krónur. - gar Innheimta fráveitugjalda frá sveitarfélögum til OR og miðað við fermetrafjölda: Fráveitugjöld í Reykjavík hækka í ár ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Hækkun fráveitugjalda leiðir til 0,92 prósenta hækkunar á tekjum Orkuveitunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SKÓLAMÁL Borgarráð hefur samþykkt að sameina starfsemi Safamýrarskóla og Öskjuhlíðar skóla. Gert er ráð fyrir að nýr sameinaður sérskóli verði til húsa í Öskju- hlíðarskóla og taki til starfa næsta haust. Safamýrarskóli er sniðinn að þörfum fjölfatl- aðra nemenda, en Öskjuhlíðarskóli er fyrir nemendur með þroskahömlun. Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkur, segir sameininguna hafa verið lengi á teikniborðinu og hún sé unnin í góðu samráði við stjórnendur beggja skóla. „Og það er mat þeirra að þetta sé skynsamlegt,“ segir hún og kveður mikinn styrk í því falinn að sameiningin hafi verið samþykkt bæði í mennta- og borgarráði Reykjavíkur. Í tilkynningu kemur fram að nú séu 80 nemendur í Öskjuhlíðarskóla og 10 í Safa- mýrarskóla. Í bréfi sem skólastjóri Öskju- hlíðarskóla sendi foreldrum nemenda við skólann fyrir jól kemur fram að nemendum hafi fækkað í báðum skólum síðustu ár. Oddný segir að samþykkt hafi verið að leggja 100 milljónir króna í að breyta hús- næði Öskjuhlíðarskóla til að mæta bæði þörf- um nemendanna sem annars hefðu verið í Safamýrarskóla, og til þess að mæta þeim kröfum sem gerðar verði til nýs skóla til framtíðar. Hún segir að þar til komið hafi verið upp nýrri sundlaug við Öskjuhlíðar- skóla verði laugin sem er í Safamýrarskóla nýtt áfram. - óká SAFAMÝRARSKÓLI Sérhæfð sundlaug fyrir fatlaða er í skólanum og leikur stórt hlutverk í skólastarfinu. Borgarráð hefur samþykkt sameiningu skóla fyrir nemendur með fjölfötlun og þroskahömlun: Safamýrarskóli og Öskjuhlíðarskóli sameinaðir Í foreldrum er mikill hiti og reiði og búið að vera lengi. En nú er gjör- samlega allt að springa. GUÐRÚN VALDIMARSDÓTTIR FORMAÐUR SAMFOK 1. Hversu háa upphæð á að spara með niðurskurði í grunnskólum Reykjavíkur? 2. Nemendur úr hvaða framhalds- skóla eru með hæstu meðaleinkunn í Háskóla Íslands? 3. Hvaða skemmtikraftar voru kallaðir á teppið hjá umboðsmanni barna nýverið? SVÖR 1. 540 milljónir króna. 2. Verslunarskóla Íslands. 3. Auddi og Sveppi VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.