Fréttablaðið - 21.01.2011, Síða 8
8 21. janúar 2011 FÖSTUDAGUR
Tilboð kr.: 24.900
Verðlistaverð kr.: 33.200
Vinsælasta ryksugan frá Miele
Miele Tango Plus
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar, með
stillanlegu röri og úrvali fylgihluta. Þær hafa hlotið
hæstu einkunn hjá neytendasamtökum í Þýskalandi.
AFSLÁTTUR
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI HALLDÓR
BALDURSSON
Meiri Vísir.
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja
„like“ við Vísi á Facebook geta unnið
óvænta vinninga í hverri viku.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
SKÓLAMÁL Frekari niðurskurður
í grunnskólum Reykjavíkur gæti
orðið til þess að þeir standist
hvorki þær kröfur sem gerðar
eru í grunnskólalögum né aðal-
námsskrá. Þetta segir Guðrún
Valdimarsdóttir, formaður Sam-
taka foreldra grunnskólabarna í
Reykjavík (SAMFOK).
Þá segir Guðrún að sárlega hafi
skort á samráð við fulltrúa for-
eldra í skóla-
ráðum í þeim
niðurskurðar-
hugmyndum
sem menntasvið
Reykjavíkur
ætli skólastjórn-
endum að fram-
fylgja. Vísar
hún til þess að
t i ltekið hafi
verið sérstak-
lega á plöggum
með niðurskurðartilmælum
menntasviðs sem skólastjórar
fengu fyrir helgi að foreldrar ættu
ekki að sjá tölurnar.
„Þetta er þriðja eða fjórða árið
í röð sem skorið er niður,“ segir
Guðrún og kveður SAMFOK
lengi hafa mótmælt áætlunum
um niður skurð í skólunum. „Við
erum löngu komin að sársauka-
mörkum.“ Guðrún segir SAMFOK
hafa lagt áherslu á að fremur yrði
skorið niður í yfirbyggingu eða
öðrum þáttum þar sem hagræð-
ingin bitnaði ekki á börnunum og
kennslu þeirra.
„Þetta er ekki bara menntastofn-
un heldur þarf að sinna mörgum
félagslegum þáttum líka. Þeim er
varla verið að sinna í dag og verð-
ur alls ekki hægt ef skera á meira
niður.“ Guðrún segir stöðuna nú
þannig að fyrir dyrum sé skóla-
starf í Reykjavík sem samræm-
ist hvorki lögum né aðalnáms-
skrá. SAMFOK fundar um málið
með formönnum foreldrafélaga og
fulltrúum foreldra í skólaráðum á
Grand Hótel Reykjavík í hádeginu
í dag. „Í foreldrum er mikill hiti og
reiði og búið að vera lengi. En nú
er gjörsamlega allt að springa.“
Oddný Sturludóttir, formaður
menntaráðs Reykjavíkur, kann-
ast ekki við að reynt hafi verið að
halda upplýsingum um niðurskurð
frá fulltrúum foreldra. Hún bendir
á að tillögurnar hafi verið kynnt-
ar í skólaráðum fyrir helgi og þar
eigi þeir fulltrúa. „Það er eng-
inn vilji til að pukrast með neitt,“
segir hún.
Oddný segir hafa verið vitað
að niðurskurðurinn yrði erfiður,
en ekki liggi fyrir fyrr en í lok
næsta mánaðar hvernig endanleg
niðurstaða verði í hverjum skóla.
„Nú stendur sú vinna yfir að fara
yfir það með hverjum skólastjóra
hvernig standa megi að málum
þannig að bitni sem minnst á
skólastarfinu sjálfu,“ segir hún
og áréttar að grunnskólalög verði
ekki brotin í Reykjavík.
olikr@frettabladid.is
GUÐRÚN
VALDIMARSDÓTTIR
Í HÁTEIGSSKÓLA Meðal þess sem lagt er til við stjórnendur grunnskóla í Reykjavík í
nýrri fjárhagsáætlun menntasviðs borgarinnar er að kennarar hætti að fylgja átta og
níu ára börnum í kaffi og matmálstímum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Vegið að lögbundnu
hlutverki grunnskóla
Foreldrar barna í Reykjavík bregðast reiðir við fregnum af enn meiri niður-
skurði í skólakerfinu, segir Guðrún Valdimarsdóttir, formaður SAMFOK. Hún
telur boðaðan niðurskurð gera skólum erfitt að sinna lögboðnu hlutverki sínu.
NEYTENDUR Fráveitugjöld í Reykjavík hækka um 13
prósent á þessu ári og Orkuveitan innheimtir nú
gjöldin beint í stað þess að þau séu greidd með fast-
eignagjöldum.
Í kynningarriti frá Orkuveitunni segir að frá-
veitugjald, sem áður hét holræsagjald, hafi til þessa
verið miðað við fasteignamat húsa í Reykjavík. Það
muni nú breytast. Eðlilegra sé að miða við stærð
húsnæðis en ekki fasteignamat þess við útreikning
vatnsgjalds og fráveitugjalda.
„Stærð húseignar ræður meiru um kostnað við
þjónustuna en hvernig fasteignamarkaðurinn metur
viðkomandi eign,“ segir Orkuveitan, sem boðar
hækkun fráveitugjalda. „Meginskýringin er sú að
borgarsjóður Reykjavíkur innheimti árið 2010 lægri
gjöld af eigendum fasteigna en hann greiddi OR
samkvæmt samningi um rekstur fráveitunnar.“
Þá segir að eigendur stærra húsnæðis með hlut-
fallslega lágt fasteignamat eigi von á mestri hækk-
un. Fráveitugjald fyrir minni eignir geti lækkað, sé
fasteignamat þeirra hlutfallslega hátt.
Samkvæmt dæmum sem Orkuveitan gefur
hækkar fráveitugjald fyrir 50 til 100 fermetra íbúð
í Reykjavík að meðaltali um 2.299 krónur á ári.
Hækkunin fyrir 100 til 200 fermetra húsnæði er að
meðaltali um 3.454 krónur. - gar
Innheimta fráveitugjalda frá sveitarfélögum til OR og miðað við fermetrafjölda:
Fráveitugjöld í Reykjavík hækka í ár
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Hækkun fráveitugjalda leiðir til 0,92
prósenta hækkunar á tekjum Orkuveitunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SKÓLAMÁL Borgarráð hefur samþykkt að
sameina starfsemi Safamýrarskóla og
Öskjuhlíðar skóla. Gert er ráð fyrir að nýr
sameinaður sérskóli verði til húsa í Öskju-
hlíðarskóla og taki til starfa næsta haust.
Safamýrarskóli er sniðinn að þörfum fjölfatl-
aðra nemenda, en Öskjuhlíðarskóli er fyrir
nemendur með þroskahömlun.
Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs
Reykjavíkur, segir sameininguna hafa verið
lengi á teikniborðinu og hún sé unnin í góðu
samráði við stjórnendur beggja skóla. „Og
það er mat þeirra að þetta sé skynsamlegt,“
segir hún og kveður mikinn styrk í því falinn
að sameiningin hafi verið samþykkt bæði í
mennta- og borgarráði Reykjavíkur.
Í tilkynningu kemur fram að nú séu 80
nemendur í Öskjuhlíðarskóla og 10 í Safa-
mýrarskóla. Í bréfi sem skólastjóri Öskju-
hlíðarskóla sendi foreldrum nemenda við
skólann fyrir jól kemur fram að nemendum
hafi fækkað í báðum skólum síðustu ár.
Oddný segir að samþykkt hafi verið að
leggja 100 milljónir króna í að breyta hús-
næði Öskjuhlíðarskóla til að mæta bæði þörf-
um nemendanna sem annars hefðu verið í
Safamýrarskóla, og til þess að mæta þeim
kröfum sem gerðar verði til nýs skóla til
framtíðar. Hún segir að þar til komið hafi
verið upp nýrri sundlaug við Öskjuhlíðar-
skóla verði laugin sem er í Safamýrarskóla
nýtt áfram. - óká
SAFAMÝRARSKÓLI Sérhæfð sundlaug fyrir fatlaða er í skólanum
og leikur stórt hlutverk í skólastarfinu.
Borgarráð hefur samþykkt sameiningu skóla fyrir nemendur með fjölfötlun og þroskahömlun:
Safamýrarskóli og Öskjuhlíðarskóli sameinaðir
Í foreldrum er mikill
hiti og reiði og búið
að vera lengi. En nú er gjör-
samlega allt að springa.
GUÐRÚN VALDIMARSDÓTTIR
FORMAÐUR SAMFOK
1. Hversu háa upphæð á að spara
með niðurskurði í grunnskólum
Reykjavíkur?
2. Nemendur úr hvaða framhalds-
skóla eru með hæstu meðaleinkunn
í Háskóla Íslands?
3. Hvaða skemmtikraftar voru
kallaðir á teppið hjá umboðsmanni
barna nýverið?
SVÖR
1. 540 milljónir króna. 2. Verslunarskóla
Íslands. 3. Auddi og Sveppi
VEISTU SVARIÐ?