Fréttablaðið - 21.01.2011, Síða 54
38 21. janúar 2011 FÖSTUDAGURFÖSTUDAGSLAGIÐ
„Loser með Beck klikkar aldrei
og Never There með Cake er
alveg súper.“
Sigurður Eyberg tónlistarmaður.
„Þetta er svo stór sería. Það er
alveg gríðarlegt magn af fólki sem
birtist, við erum með heilan geð-
spítala,“ segir leikstjórinn Ragn-
ar Bragason.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu vinna Ragnar og
félagar hans í Vaktagenginu, þeir
Pétur Jóhann Sigfússon, Jörund-
ur Ragnarsson og Jóhann Ævar
Grímsson að sjónvarpsþáttun-
um Heimsendir, sem gerast á
geðsjúkrahúsi. Jón Gnarr, félagi
þeirra, hefur öðrum hnöppum að
hneppa þessa dagana, en þeir eru
samt búinn að skrifa fyrir hann
lítið hlutverk. „Nú þurfum við að
semja við ritarann hans og sjá
hvort það sé hægt að finna tíma
til að fá hann í upptökur,“ segir
Ragnar. „Það er ekki hægt að gera
þetta án þess að það sjáist allavega
í hann.“
Eru nýju þættirnir stærri en
Fangavaktin?
„Ég myndi segja að Heimsendir
væri helmingi stærri. En þættirnir
gerast meira og minna allir á þess-
um spítala.“
Óvíst hvar þættirnir verða tekn-
ir upp, en upptökur hefjast í júní.
Þættirnir verða svo frumsýndir á
Stöð 2 í haust. Samstarf félaganna
hefur verið gríðarlega farsælt, en
þrátt fyrir það segir Ragnar það
alls ekki vera auðvelt að byrja á
nýjum þáttum.
„Síðast vorum við að byggja á
grunni sem varð til i Næturvakt-
inni,“ segir hann. „Í þetta skipti
erum við að búa til nýtt gallerí frá
grunni. Rannsóknar- og forvinnan
hefur verið mikil, sérstaklega út af
umfjöllunarefninu. Við vorum að
kynna okkur þennan heim; stað-
reyndir og hluti sem tengjast
heimi þeirra sem glíma við geð-
sjúkdóma.“
Og hafið þið hitt geðsjúka í þess-
ari vinnu?
„Mjög marga. Við erum búnir
að hitta mjög marga sem hafa
glímt við geðsjúkdóma og marga
RAGNAR BRAGASON: BÚIÐ AÐ SKRIFA HLUTVERK FYRIR JÓN GNARR
Heimsendir helmingi
stærri en Fangavaktin
FARSÆLT SAMSTARF Allt sem Vaktargengið hefur snert undanfarin misseri hefur
breyst í gull. Jón Gnarr tekur ekki þátt í framleiðslu nýju þáttanna, en þó hefur verið
skrifað fyrir hann lítið hlutverk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Spaugstofumennirnir Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson eru í
hlutverkum í Heimsendi. „Við erum að grínast með hvort við þurfum ekki
að taka restina og troða inn,“ segir Ragnar.
Spaugstofan er með vinnuaðstöðu við hliðina á skrifstofu Ragnars, Péturs
Jóhanns, Ævars og Jörundar. „Þeir eru að vinna Spaugstofuna í næsta rými
og ég fór allt í einu að pæla: „Já, þessir strákar.“ Og fór að sjá þá í einhverj-
um öðrum hlutverkum en þeir eru í í Spaugstofunni. Þeir fá þennan stimpil
á sig að vera Spaugstofan, en ástæðan fyrir því að þeir fóru
í Spaugstofuna á sínum tíma var að þeir voru klárir gaurar
sem vissu hvað þeir voru að gera. Það er mjög gaman að
vinna með þeim. Þetta eru eðaldrengir.“
Þá fannst Ragnari vera kominn tími á kommbakk
hjá Karli Ágústi Úlfssyni. „Maðurinn er goðsögn síðan í
Lífsmyndunum á níunda áratugnum,“ segir hann. Á meðal
annarra leikara í Heimsendi eru Jörundur Ragnarsson,
Pétur Jóhann Sigfússon, Halldór Gylfason, Nína Dögg
Filippusdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Brynhildur
Guðjónsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir og
Lára Jóhanna Jónsdóttir.
SPAUGSTOFUMENN Í NÝJU ÞÁTTUNUM
„Þetta er bara bull. Hún er ekki
búin að slátra hátíðinni,“ segir
Hrönn Marinósdóttir, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík, RIFF.
Ritstjórinn fyrrverandi og
bloggarinn Jónas Kristjánsson
skrifaði á síðu sinni að hátíðin
yrði ekki haldin á þessu ári og að
Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra hefði slátrað henni með
því að undirrita ekki meðmæla-
bréf með styrkbeiðni til Evrópu-
sambandsins.
Hrönn vísar þessu á bug og segir
að hátíðin verði haldin í haust.
RIFF hefur þegar fengið vilyrði
hjá Reykjavíkurborg fyrir átta
milljón króna styrk eins og undan-
farin ár. Ríkið hefur einnig sam-
þykkt að styrkja hátíðina áfram en
ekki er ljóst hversu há upphæðin
verður. Á síðasta ári nam styrk-
urinn átta milljónum króna. Við-
ræðurnar við ríkið hafa tekið tölu-
verðan tíma en málið mun skýrast
á allra næstu dögum.
RIFF hefur einnig sótt um svo-
kallaðan Media-styrk til Evrópu-
sambandins og fær svar við beiðn-
inni í febrúar. Hátíðin hefur einu
sinni fengið Media-styrk, eða árið
2009, og nam hann sex og hálfri
milljón. Hrönn segir umfang næstu
RIFF-hátíðar, sem verður sú átt-
unda í röðinni, ráðast af því hversu
háa styrki hún fær. „Grunnur inn
undir starfseminni hefur verið
þessi styrkur frá Reykjavíkur-
borg og menntamálaráðuneytinu.
Við bindum miklar vonir við að
fá áfram svipaða upphæð. Ég er
bjartsýn á að ráðherra taki skyn-
samlega ákvörðun í þessu máli,“
segir hún og fullyrðir að peningur-
inn sem hafi verið lagður í hátíðina
komi allur til baka og rúmlega það.
- fb
RIFF bíður eftir ríkisstyrk
HRÖNN MARINÓSDÓTTIR Framkvæmda-
stjóri RIFF segir að hátíðin verði haldin í
ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
sem hafa unnið í þessu kerfi. Geð-
lækna, iðjuþjálfa, sálfræðinga
– við erum búnir að vinna mjög
mikla heimavinnu.“
Ragnar og félagar leita nú að
stelpu á aldrinum 13 til 15 ára
til að fara með eitt aðalhlutverk-
anna. „Hún á að leika dóttur Pét-
urs Jóhanns,“ segir hann og bend-
ir áhugasömum á að senda póst á
stelpa@sagafilm.is.
atlifannar@frettabladid.is
„1. desember var sýnt fram á að
skapandi greinar eru með umsvif á
við sjómenn og bændur samanlagt
og það er bara synd að RÚV skuli
ekki sinna þessum hluta nægjan-
lega vel,“ segir Hallgrímur Helga-
son rithöfundur. Hann skorar á
listamenn að fylla pósthólfið hjá
Páli Magnússyni útvarpsstjóra og
Sigrúnu Stefánsdóttur dagskrár-
stjóra með áskorun um að koma á
fót sérstökum menningarfréttum
með svipuðu sniði og íþróttafrétt-
ir hafa verið.
Hallgrímur segir þessa hug-
mynd ekki vera nýja af nálinni.
„Þetta viðraði Benedikt Erlingsson
í haust og í framhaldi af því sendi
ég þennan póst til útvarpsstjóra og
dagskrárstjóra en fékk ekkert svar.
Ég heyrði svo Katrínu Jakobs dóttur
menningamálaráðherra segja að
menningarfréttir mættu vera meiri
og betri og ákvað að láta kné fylgja
kviði.“
Hallgrímur hefur stofnað sér-
staka grúppu á Facebook undir
nafninu Menningarfréttir í útvarp
og sjónvarp og þar er hægt að nálg-
ast bréf Hallgríms en meðal þess
sem þar kemur fram er að dag-
skrárstjórinn og útvarpsstjórinn
myndu „skora feitt hjá þjóðinni
með því að innleiða MENNINGAR-
FRÉTTIR við hlið Íþróttafrétta í
lok hvers fréttatíma“. - fgg
Menningarvitar vilja menningarfréttir
VILJA MENNINGARFRÉTTIR Hallgrímur Helgason hvetur kollega sína úr menningar-
lífinu til að senda útvarpsstjóra og dagskrárstjóra RÚV tölvupóst þar sem skorað er á
þau að koma á fót sérstöku menningarfréttahorni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lau 22.1. Kl. 19:00
Sun 23.1. Kl. 19:00
Lau 29.1. Kl. 19:00
Fös 4.2. Kl. 19:00
Lau 5.2. Kl. 19:00
Mið 9.2. Kl. 19:00
Fös 18.2. Kl. 19:00
Lau 19.2. Kl. 19:00
Sun 23.1. Kl. 13:00
Sun 23.1. Kl. 15:00
Sun 30.1. Kl. 13:00
Sun 30.1. Kl. 15:00 Allra síð.sýn.
U
Fíasól (Kúlan)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
Ö
Sun 6.3. Kl. 13:00
Sun 6.3. Kl. 14:30
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Lér konungur (Stóra sviðið)
Fim 3.2. Kl. 18:00
Sun 6.2. Kl. 14:00
Sun 6.2. Kl. 17:00
Sun 13.2. Kl. 14:00
Sun 13.2. Kl. 17:00
Sun 20.2. Kl. 14:00
Sun 20.2. Kl. 17:00
Sun 27.2. Kl. 14:00
Sun 27.2. Kl. 17:00
Sun 6.3. Kl. 14:00
Sun 6.3. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
U
Ö Ö
Hænuungarnir (Kassinn)
Fös 21.1. Kl. 20:00 8. sýn
Fim 27.1. Kl. 20:00
Fös 28.1. Kl. 20:00
Fös 11.2. Kl. 20:00
Lau 12.2. Kl. 20:00
Fim 17.2. Kl. 20:00
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Lau 22.1. Kl. 17:00 Aukasýn.
Lau 22.1. Kl. 20:00
Sun 23.1. Kl. 17:00 Aukasýn.
Sun 23.1. Kl. 20:00 Síð.sýn. U U
U
Mið 26.1. Kl. 20:00 Aukasýn.
Sun 30.1. Kl. 20:00 Síð.sýn.
Ö
U
Ö
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
STÓR
HUMAR
990
Súr Hvalur
Ekta Hákarl
2 2 . J A N Ú A R 2 0 1 1
MATUR - SÝNING - DANSLEIKUR
Valinkunnir Elvis-söngvarar
færa okkur frábæra skemmtun
í anda kóngsins.
Elvis-klúbburinn verður
á staðnum.
Borðhald hefst kl. 19:00
Verð aðeins kr. 4.900
fyrir mat, sýningu og dansleik
Hafnargötu 19, Reykjanesbæ • Sími 421 4601 • rain.is • rain@rain.is
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA AF FRÆGA FÓLKINU
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook geta
unnið óvænta vinninga í hverri viku.