19. júní - 19.06.1955, Side 28
S O F F í A H A R A L D S D Ó T T I R :
FÆDDUR TIL AÐ LÍKNA
UNDRALÆKNIRINN HARRY EDWARDS
Daglega lesiun við í dagblöðunum og heyrum í
útvarpinu alls konar fréttir, sem valda óróa og
áhyggjum. \hð heyrum um stríð, atomvopn, kalda
stríðið. Enginn fer varhluta af að heyra um þær
ógnir, sem bíða mannkynsins, ef nýtt lieimsstríð
brytist út. Tæknin hefur sannarlega leitt menn-
ina út í ógöngur, því samfara allri hinni nýju
þekkingu liefur efnishyggjan fengið völdin, að
minnsta kosti hjá þeim, sem stjórna.
Mér hefur oft dottið í hug, að ekki veitti af því,
að almenningur fengi einnig fréttir af því, sem
fram kemur, einmitt nú á tímum, um mátt and-
ans yfir efninu um það sem kalla mætti nútíma
kraftaverk. Ég á hér við hinar stórkostlegu and-
legu lækningar, sem ég veit að margir hafa heyrt
um. Tvö spiritistisk vikidrlöð berast mér, sem
koma út í London. Það er mjög eftirtektarvert, að
maður opnar varla nokkurt blað, án jiess að sjá þar
frásagnir um andlegai lækningar. Flestallir sjúkl-
ingar, sem leita sér slíkra lækninga eru þannig
staddir, að læknarnir geta ekki gefið jreim neinar
batavonir. Þess vegna er árangurinn, sem næst,
enn stórkostlegri. Eftir frásögnum Jressara lrlaða
og ýmsra frásagna, sem ég hef lesið í bókum, sem
ritaðar hafa verið um Jressi efni, er varla nokkur
tegund sjúkdóma, að ekki hafi tekizt í ýmsum til-
fellum að lækna þá.
Af öllum núlifandi læknum, sem lækna fyrir
mátt andans, er einn maður, sem hefur vakið
mesta athygli, og má um hann segja, að hann sé
orðinn heimsfrægur, enda eru þeir sjúklingar, sem
hann hefur læknað, frá mörgum löndum heims;
er það víst í fyrsta sinn í sögunni, að nokkur maður
hafi haft afskipti af öðrum eins fjölda sjúklinga.
Þessi maður er Englendingurinn Harry Edwards,
og langar mig að segja dálítið frá hinu undursam-
lega starfi hans. Um hann hafa verið ritaðar marg-
ar bækur, og sjálfur hefur hann ritað bækur um
reynshi sína, og nafn hans er Jrekkt og elskað allt
frá íslandi til Ástralíu.
Harry Edwards er fæddur árið 1893 í London.
Var hann af fátæku foreldri, einn af níu systkin-
um, og var settur til þess að nema prentiðn, er
hann hafði lokið venjulegu barnaskólanámi. Á
unglingsárum hans var skátahreyfingin að hefjast
og gjörðist hann mjög áhugasamur skáti. Einnig
hafði hann á unga aldri mikinn áhuga fyrir stjórn-
málum og fylgdi Frjálslynda flokknum, „The Li-
berals“. Hann hafði nýlokið prentaranámi sínu,
er fy-rri heimsstyrjöldin brauzt út. Gekk hann Jrá
í herinn og var að lokinni þjálfun sendur með her-
deild sinni til Indlands. Hann hafði djúpa rétt-
lætistilfinningu og einurð til þess að segja mein-
ingu sína, hver sem í hlut átti. Kom Joað gieinilega
í ljós, er hann leyfði sér að gagnrýna nreðferð Jrá,
sem óbreyttu hermennirnir voru látnir sæta, er
til Indlands kom, en hann var sjálfur einn af Jreim.
Þó ótrúlegt sé, varð honum mikið ágengt og ýmis-
legt var fært í betra horf. Seinna var liann í Persíu,
og alls staðar sýndi Jjað sig, að hann gjörði Jrá inn-
fæddu að vinum sínum og reyndi að skilja Jrá. Með
þessu varð hann bæði landi sínu og Jrví fólki, sem
hann hafði saman við að sælda, til mikils gagns.
Áður en hann fór úr hernum liafði hann hlotið
kapteinstign.
Er hann kom aftur heim, árið 1921, hafði hann
sparað saman 800 sterlingspund. Með nrikilli
bjartsýni opnaði hann smáverzlun og einnig litla
prentsmiðju, Jrar sem allt var unnið með höndun-
um, Jrví vélar hafði hann auðvitað ekki efni á að
kaupa. Hann hóf starf sitt með bjartsýni hins.ó-
reynda, unga manns. Hélt hann, að sér myndi
brátt græðast fé, er hann hefði hafizt lianda með
þessi fyrirtæki, þó að í smáum stíl væru. Hann fékk
fljótlega að reyna, að svo var ekki. Hann skorti
fjármagn. Samt missti hann ekki kjarkinn og festi
19. J Ú N í
14