19. júní


19. júní - 19.06.1955, Blaðsíða 30

19. júní - 19.06.1955, Blaðsíða 30
eftir að undir merkinu „Krabbamein og æxli“ voru nærri 300 bréf. Lengi vel vissi Edwards ekki, hverjir stóðu bak við starf lians frá andaheiminum. Nú hefur hann fengið ót\íræðar sannanir fyrir því, að tveir af samverkamönnum lians eru Pasteur og Lister. Um nokkurra ára skeið hefir Edwards haft op- inberar samkomur um þvert og endilangt Eng- land, og ávallt í stærstu samkomuhúsum, sem völ er á á hverjum stað. í stærstu borgunum eru oft viðstaddir 2—3000 manns. Og alltaf komast færri að en vilja. Þessi liður starfseminnar hófst alveg óvænt í lítilli spiritistakirkju í Baker Street í Lond- on. Edwards ætlaði að halda þar fyrirlestur um andlegar lækningar. Þegar liann var að tala fannst honum allt í einu, að hann ætti að sýna fólkinu hvernig hann læknaði. Hann bað sjúklinga að gefa sig fram. Nokkrir þágu boðið. og allir fengu nokk- urn bata. Frá þessari litlu byrjun hefir hann nú komizt á það stig, að hann, að minnsta kosti hálfs- mánaðarlega, kemur fram opinberlega og sýnir lækningamátt sinn fyrir fjölda áhorfenda. Barban- ell segir svo frá: „Ég sem hefi verið á 4 af þessum fjöldafundum (þetta er skrifað fyrir 4—5 árum), álít það, sem ég var vitni að þar, eitt af því allra merkilegasta, sem fyrir mig liefir komið í allri reynslu minni af sálrænum fyrirbærum. í hvert sinn komu nrér í huga hinar dásamlegu frásagnir Nýja testamentisinsum hvernig Jesús lagði hendur yfir þá sjúku og þeir urðu heilbrigðir. Vona ég, að enginn álíti mig fara með guðlast.“ Mig langar til þess að segja frá dæmum af þess- um lækningum, en af svo miklu er að taka, að erf- itt er að velja. í bókinni „Born to Heal“ eftir Poul Miller, unr Harry Edwards, segir höfundurinn svo frá: „Margir hafa á móti þessum fjöldafundum og finnst óviðkunnanlegt að fást við sjúklinga á þenn- an hátt. Svarið við þessunr mótmælum er, að at- lruga hve nriklu góðu starfsemi þessi kemur til leið- ar. Þeir, sem hafa á móti spiritismanum, segja að við getum ekki opinberlega sannað, að það sem við lröldum franr, sé sannleikur. Þessu er nú hrundið, þar senr slík starfsemi er nú daglegur þáttur í lífi þjóðarinnar. — Að þessar sanrkomur eru til góðs á margan liátt, sýnir allur sá fjöldi fólks, sem eftir að lrafa verið viðstaddur á þessum sanrkonrum. og séð með eigin augum, skrifar og biður um hjálp fyrirsig eða einhverja aðra, sem eru hjálpar þurfi“. Hér er lýsing á samkonru er Edwards hélt í New Castle-on-Tvne. í New Castle City Hall, þar sem lrvert sæti var skipað, horfði ung nróðir áhyggju- fullum augunr upp á sviðið, þar sem Edwards fór lröndum um höfuð Margaret Ritchie, 4 ára að aldri, sem hafði verið algjörlega lreyrnarlaus frá fæðingu. Hendurnar héldu áfram að starfa og barnið starði á andlitið fyrir franran sig. Allt í einu smellti Edwards fingrunum. Barnið tók við- bragð. „Hún hefir nú fengið heyrnina," sagði Ed- wards. „Þetta er barnið mitt,“ hrópaði móðirin niðri í salnunr, og um leið lrné lrún í ómegin. Þetta var ein af mörgum lækningum, senr skeðu þennan dag. Annað dæmi er af ungri stúlku, senr hafði mjög vanskapaðan og skakkan hrygg! Hnén voru kölkuð og lrún gat ekki gengið. Fólkið starði undrandi, þegar bakið réttist mikið, eftir að Ed- wards lrafði farið höndum unr sjúklinginn. Því næst ætlaði hann að reyna við hnén, en það gekk ekki vel. Hann sneri sér þá aftur að bakinu. Álrorf- endurnir tóku eftir því að Edwards sjálfur varð undrandi, því nrr hafði lrryggurinn lraldið áfram að réttast, á meðan hanir var að fást við lrnén. í Plrsycic News frá 11. júlí 1953 birtust þessar frásagnir af lækningunr Edwards. Læknir nokkur sendi nrann, sem snögglega lrafði orðið heyrnar- laus, með bréf til Edwards. Þar stóð: „Þessi sjúkl- ingur hefir allt í einu orðið lreyrnarlaus. Hann veit ekkert um spiritisma, en langar nrikið til þess að fá hjálp. Með hjálp Burton-hjónanna, sem aðstoða Edwards í öllu starfi lrans, gaf hann manninum nokkra mínútna lækningu. Þá smellti lrann fingr- ununr við eyra sjúklingsins og hann, sem var alveg heyrnarlaus nokkrum mínútum áður, brosti og sagði: „Ég er áreiðanlega betri.“ Næsta frásögn er um 11 ára gamla telpu, senr þjáðist af spastiskri lömun. Það lröfðu verið gerðir á henni uppskurðir, en án árangurs. Þegar Edwards hafði komið nokkru áður til þess bæjar, sem hún átti lieima í, höfðu foreldrar litlu stúlkunnar konr- ið með lrana til hans. Frá þeirri stundu fór lrenni að batna. Faðir litlu stúlkunnar sagði Edwards, að hún gæti nú ekið á þríhjóli, sem liann lrefði gefið lrenni. Nú tók Edwards liana aftur til meðfeðrar og í þetta skipti réttist mikið úr bakinu, sem var skakkt. í frásögn frá þessum eina fundi er skýrt frá 6 tilfellunr, Jrar sem um skjótan og undursanr- legan bata var að ræða. Eitt er á þessa leið: Faðir Pat litlu Boden var hrifinn og þakklátur fyrir þann bata, senr dóttir hans hlaut í þetta skipti. Hún hafði fengið löm- unarveiki. Eftir að Edwards hafði farið höndunt 19. JÚNÍ l(i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.