19. júní - 19.06.1955, Blaðsíða 59
BROSTNIRHLEKKIR
Kristín Guðmundsdóttir
Ftccid 12. marz 1882. Dáin sumardaginn fyrsta 1954.
Það var sumardaginn fyrsta árið 1954, að Kristín
í Gróðrarstöðinni að loknu dagsverki gekk til her-
bergis síns. Á leiðinni þangað hitti hún sonardótt-
ur sína og nöfnu og bað hana að líta inn til sín
séinna um kvöldið.
Vinnudagurinn hafði reynzt henni lengri en
hún hafði ætlað sér þennan dag, og nú fann hún
að bezt var að unna sér hvíldar og fara inn. Undan-
farna daga hafði Kristín verið að ganga frá og lilúa
að vaknandi vorgróðri úti við, en í gróðurskálan-
um teygðu smáplöntur upp kollana sína og biðu
þess með eftirvæntingu, að sumarið kæmi með
birtu og yl og hjálpaði þeim til að stækka og breiða
út blöð og blóm. Allt virtist vera í góðu lagi, og
vænta mátti góðs gróðurs, er lengra drægi fram.
Laukblóm og skrautplöntur fylltu loftið í blóma-
skálanum sterkri angan og fegurð. í dag var sum-
ardagurinn fyrsti og Kristín liafði notið þess að
eiga talsvert af fögrum blómum lianda vinum og
viðskiptafólki. En nú var dagurinn að kvöldi kom-
inn og rétt að liætta vinnu. Hún gekk fram skál-
ann, en er hún nálgaðist dyrnar, staðnæmdist hún
stundarkorn og leit yfir blómabreiðuna. Rósirnar
fögru, tvöföldu túlípanarnir og páskaliljurnar
teygðu sig eins og í áttina til hennar og buðu lienni
góða nótt.
Frú Kristín var Vestfirðingur að ætt, fædd og
uppalin að Þorfinnsstöðum í Önundarfirði. Hún
var af góðu bændafólki komin í báðar ættir. Fað-
ir hennar, Guðmundur, var hagur bæði á tré og
járn, hafði numið járnsmíði í Kaupmannahöfn.
Móðir liennar, Þórunn Halldóra Sveinbjarnar-
dóttir frá Kirkjubóli í Valþjófsdal, var búsýslu-
kona mikil og kom Jjað sér vel, því að barnahóp-
urinn var stór. Kristín vandist því snemma vinnu
og gekk að henni af ósérplægni. Rúmlega tvítug
að aldri fór Kristín til Reykjavíkur og gekk þar í
Kvennaskólann. Síðar bætti hún við sig námi í
fatasaumi o .fl.
Kristin
Guðmunósdóttir
Árið 190(i giftist hún Einari Ilelgasyni garð-
yrkjustjóra og varð framtíðarheimili þeirra Gróðr-
arstöðin í Reykjavík. Varð sá staður um langt ára-
bil aðalmiðstöð gróðurtilrauna. Voru þau hjónin,
Finar og Kristín, samhent í Jrví að gera garðinn
l'rægan og nutu margir leiðbeininga Jreirra í garð-
rækt, gróðursetningu og annarar fyrirhyggju um
öflun plantna, trjáa og frætegunda.
Þegar Einar Helgason féll frá, tók Kristín kona
hans við starfinu í Gróðrarstöðinni og stjórnaði
Jrví til hinztu stundar með mikilli prýði og dugn-
aði.
Fn Kristín var á fleiri sviðum mikilhæf kona.
Hún halði lifandi áhuga á Jreim málefnum kvenna
er studdu að víðsýni þeirra og þroska. Hún vann
að stofnun Kvenréttindafélags íslands, er byrjaði
starf sitt árið 1907. Hún átti og þátt í því að komið
var á fót litlum vísi til bókasafns handa félagskon-
um. En Kristín var liagsýn kona og glögg og sá því
brátt, að Kvenféttindafélagið hafði ekki bolmagn
til Jress að reka Jrað sem skyldi. Og er Lestrarfélag
kvenna Reykjavíkur var stofnað árið 1911, vann
hún að Joví að bókasafnsvísir Kvenréttindafélags-
ins fengizt keyptur með góðum kjörum og yrði
þannig nokkur stuðningur því félagi, sem hefði
sem aðalmarkmið bókasafnsrekstur fyrir konur
19. JÚNÍ
45