19. júní


19. júní - 19.06.1955, Blaðsíða 43

19. júní - 19.06.1955, Blaðsíða 43
dætur hans hlotið þá beztu menntun, sem þá var títt um stúlkur. Arið 1859 verða þáttaskipti í lííi frú Melsted. 13. nóv. það ár giftist hún Páli Melsteð sagnfræð- ingi. Hún er þá 36 ára, en hann 47. Tveim árum áður, þá 45 ára gamall, hafði hann lokið lögfræði- prófi í Kaupmannahöfn. (Var hann þá, þegarhann kvæntist, nýbakaður juristi). Páll hafði ætlað að ljúka prófi í lögum 1841, en sýktist þá alvarlega og varð þess vegna að hverfa heim próflaus. Faðir hans undi því illa, en auðheyrt er á frásögn Páls, að sagnfræðin hafi verið honurn hugleiknari en laganámið. Eins og forstöðukona Kvennaskólans segir í sögu Kvennaskólans í Reykjavík á 70 ára afmæli skól- ans, var hjónaband þeirra Thoru og Páls einkar farsælt. Þau báru mikla virðingu hvort fyrir öðru og áhugamál annars varð líka áhugamál Iiins. Vil ég nú láta Pál Melsteð hafa orðið. Hann segir svo í endurminningum sínum á bls. 85: „Þáð mun flestum kunnugt, sem nokkuð þekkja til þessa lands og til menningarástands þjóðarinn- ar, að kvenfólkinu hefir verið lítill sórni sýndur; synirnir ltafa verið látnir læra, mér liggur við að segja hvort senr þeir gátu það eða ekki, en dæturn- ar liafa verið settar hjá. Jafnvel sumum heldri manna dætrum var framan af þessari öld* ekki kennt að skrifa, en ef jreim var kennt það, og ef þar voru bræður til, fengu þeir einir að skrifa við borð, en systur þeirra fengu ]rað ekki; þær urðu að fá sér einhverja skruddu og skrifa á hné sínu. Og svona var fleira eftir þessu. Þóra þekkti hvern- ig þessu hagaði til í Danmörku, og hvernig því liagaði til hér á landi. Þessu vildi hún breyta; hún vildi gjöra sitt til að hefja íslenzkt kvenfólk upp úr þeirri niðurlæging, senr það liafði lengi átt undir að búa, og beinasti vegurinn til þess var að koma fótum undir einhverja stofnun, þar sem ungar stúlkur gætu fengið tilsögn í nauðsynlegum og nytsömum fræðigreinum bæði til munns og handa. Þóra vissi vel, að hér var um nýmæli að gera, og hér var við gamlan vana, gamla deyfð að stríða, og að jafnvel mætti búast við opiberri og leynilegri mótspyrnu; en hún er hugrökk og lét það ekki aftra sér frá að byrja verkið treystandi guði og góðu málefni. Þegar á fyrstu hjúskaparárum fór kona mín að hugsa um þetta, og minnist ég þess nú, að sumarið 1861 var Jón (Sigurðsson) á Gaut- löndum einu sinni staddur hjá okkur, í gamla * 19. öld. -------------------------------------------- VeiSlaunasamíepjjni „19. júní" efnir til verðlaunasamkeppni um beztu smásögu, sem blaðinu berst fyrir 1. janúar næstk. Sagan má ekki vera lengri en 3 síður í „19. júní" og verður að vera frumsamin af íslenzkri konu. Handritin séu vélrituð eða vel læsilega skrifuð og merkt dulnefni. Nafn og heimilisíang höfundar fylgi í lokuðu umslagi merkt sama dulnefni. Fyrir beztu verðlaunahæfu sögu verða greiddar kr. 1000.00 — eitt þúsund krónur — í verðlaun en engin sérstök ritlaun. Utanáskrift blaðsins er „19. júní", Skálholtsstíg 7, Reykjavík. V____________________________________________ húsinu okkai', þá fæxði hún þetta málefni í tal við okkux' Jón, og sagði ég, að hún skyldi skrifa liugmyndii' um það í blað, og það gerði Iuin, og veit ég ekki betur en það blað sé í skjölum K\ enna- skólans. Síðan var hún að tala um þetta við mig og eggja mig að skrifa eitthvað um kvennamálefnið í blöðin, þangað til ég gerði þetta urn síðir og setti grein í Norðanfara (mig minnir 1869) með þess- ari yfirskrift: Hvað verður hér gjört fyrir kven- fólkið? Áiið 1870 sigldi konan mín og var í Kaup- mannahöfir og í Edinborg hjá Ágiistu systur sinni meiri pai't surnars, og þá vakti hún máls á þessu efni við ýmsa menn erlendis. Árið eftii', 1871, fékk hún nokkrar heldri manna konui hér í Reykjavík að koma til fundar við sig og í'æða um fyrirkomulag kvenlegrar menntastofnunar, og niðurstaða fundarins varð sú, að þessar konur létu prenta Ávarp til íslendinga að koma á fót kvenna- skóla, og í ávarpinu er gi'einlega sagt frá því hvernig þær hugsa sér slíka menntastofnun; þá var og kosin nefnd (í lxenni voru fimm konur) til framkvæmda þessu málefni. En varla mátti lxeita að ávextir af orðum og aðgjöxðum Þóru færu að koma í ljós fyr en hún bjó til ábreiðu (gólfteppi), sem spilað var burt í ,,Lotteríi“ hér í Reykjavík. Þannig fengust fyrir ábi'eiðuna því nær 200 krón- ur. Og þetta er fyi'sta undirstaða Kvennaskóla- sjóðsins 200 kr. eru á nútíma mælikvarða ekki miklir peningar. En þá voru það 3—4 kýrverð og kaupa hefði mátt fyrir þá upphæð 50 dilka á fæti í réttum á haustnáttum. 19. JÚNÍ 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.