19. júní - 19.06.1955, Page 31
Harry Edwards ásamt Burtons-hjónunum.
um hana, spurði hann föður hennar, hvort hann
hefði verið ánægður með sams konar árangur eftir
3 mánuði á spítala. Faðirinn svaraði, að hann hefði
verið ánægður, ef hún hefði fengið slíkan bata á
3 árum.
Svona rnætti lengi halda áfram, en ekki er hægt
að gjöra þessu mikla efni nein veruleg skil í stuttri
frásögn. En svolitla hugmynd vona ég, að ég hafi
getað gefið lesandanum um hið stórkostlega starf,
sent þessi merkilegi maður vinnur, ásanrt aðstoðar-
fólki sínu. Þegar hann fer í ferðir til annarra borga,
til þess að halda opinberar samkomur, notar hann
alltaf næturlestir, til þess að eyða ekki tímanum í
ferðalög.
Haustið 1953 fór hann í fyrsta sinn út fyrir Stóra-
Bretland, en það hefir hann ferðast um þvert og
endilangt. Fór liann þá til Hollands og hélt nokkr-
ar samkomur í stærstu samkomusölum Amster-
dam. Það var ekki nóg að húsfyllir væri, heldur
stóð fólkið úti fyrir í löngum röðum. Sömu undrin
skeðu þar eins og heirna á ættjörð hans, og er vart
19. JÚNÍ
mögulegt að lýsa með orðum gleði þeirra og hrifn-
ingu, sem allt í einu fá bata. eftir að læknarnir
liafa sagt þeim, að mein þeirra væru ólæknandi. Á
þessunr fjöldafundum tekur Edrvards vanalega
einn sjúklinginn eftir annan viðstöðulaust í hálf-
an annan klukkutíma. Þá finnst lionum kraftur-
inn réna. Hann er þá gripinn mikilli fagnaðartil-
finningu og ánægju yfir því að lrafa lokið hlut-
verki sínu í það sinn. Hann finnur ekki til neinnar
þreytu, en segist þvert á nróti finna til nreiri vellíð-
unar en áður en liann byrjar.
Vorið 1954 var Harry Edrvards ásanrt Burtons-
hjónunum boðið til Cyprus. Hélt hann þar fjölda-
fundi í stærsta samkonrusal lröfuðborgarinnar við
feikna aðsókn, og nreð ágætunr árangri.
Royal Albert Hall er einn stærsti samkomusal-
urinn í London og tekur 6000 manns. Þann 25.
sept. síðastl. hélt Edrvards þar lækningafund, ásamt
aðstoðarfólki sínu. Það vildi svo til, að tvær íslenzk-
ar konur, senr lengi hafa fylgzt af áhuga nreð starf-
senri Edwards, voru staddar í London unr það leyti.
17