19. júní - 19.06.1959, Qupperneq 6
ina, birtist Parthenon flóðlýst, eins og í leiftursýn,
gnæfandi á Akropolishæðinni í miðri borginni.
Komu mér þá í hug ljóðlínur skáldsins, því að
þótt súlur Parthenons séu ekki gulli drifnar eins
og sú himneska höll, er það kveður um — og
byggingin sjálf að miklu leyti í rústum, blandast
engum hugur um, að þar er eitt af mestu snilldar-
verkum mannsandans. Enda var hún helguð Pallas
Aþenu, vísdómsgyðjunni, sem er ein af þeim fáu
goð- og mannverum, sem ekki eru af konu fædd-
ar, heldur hljóp hún alvopnuð út úr höfði föður
síns, hins volduga Seifs.
Oþægileg uppgötvun.
% vissi, að konum þeim, er ætluðu að sækja
námskeiðið, hafði verið búin gisting í húsi „Kristi-
legs félags ungra kvenna“, og þegar ég kom á flug-
stöðina inni í borginni um miðja nótt, var ég svo
heppin að hitta bílstjóra, sem kunni dálítið í ensku
og skilaði mér því á réttan stað. I gegnum rúðu á
hurðinni sá ég inn í stóran forsal, þar sem var
ofurlítil ljósglæta, sem gaf vonir um, að einhver
væri þó vakandi. Ég hringdi næturbjöllunni, og
brátt kom gamall maður fram að dyrunum. Við
horfðumst í augu dálitla stund, og svo skokkaði
hann inn aftur. „Honum lízt líklega ekkert á mig,“
hugsaði ég, en blessaður karlinn kom fljótt aftur,
hafði bara farið að sækja lyklana. Hann lagði fing-
ur á vör til merkis um að hafa hljótt, sem reynd-
ar var óþarft, því að við skildum ekki hvort ann-
að og gátum ekki talað saman. En hann sýndi mér
lista með nöfnum allra þátttakenda námskeiðsins,
og þar fann ég, í hvaða herbergi mér var ætluð
gisting, og urðum við bæði fegin, ég að komast í
rúmið og hann að losna við mig, en við brostum
alltaf sérlega hýrt hvort til annars, þegar við
hittumst seinna á ganginum.
Þetta hús K.F.U.K. er notað til skólahalds á
vetrum. Þar er stúlkum veitt margs konar fræðsla
bæði bókleg og verkleg. Herbergin eru mjög íburð-
arlaus, en allt hreint og þokkalegt. Rúmfötin voru
ekki annað en dýna, tvö lök og lítill koddi, en þnð
var alveg nóg, því að hitinn komst stundum upp
í 45 stig á C. og sjaldan niður fyrir 40 stig á dag-
inn, á kvöldin og nóttunni var ofurlítið svalara.
Næsta dag, þegar ég kom út á götu, gerði ég þá
óþægilegu uppgötvun, að það var ekki einungis,
að ég mætti heita mállaus, heldur líka ólæs, því
að því litla, sem ég hafði lært í gríska stafrófinu
hjá honum föður mínum, var ég búin að gleyma.
Reyndar lærðist okkur fljótlega að átta okkur á
helztu götunöfnunum.
Á námskeiðinu.
Konur af flestum litarháttum, hvítar, gular,
brúnar og hér um bil svartar, voru á námskeið-
inu. Fundir byrjuðu kl. 9 og þá lauslega farið yfir
verkefni dagsins. Síðan var hópnum skipt í þrjá
flokka, og var einn stjórnandi í hverjum flokki.
Þeir fundir stóðu til kl. 12,30, en kl. 5 hittust all-
ir aftur, og var þá gerð grein fyrir þeim niður-
stöðum, er hver flokkur hafði komizt að varðandi
verkefnið. Umræður allar fóru fram á ensku, en
á þinginu voru ræður haldnar bæði á ensku og
frönsku og þýddar á eftir.
Um miðjan daginn, meðan hitinn er mestur,
sofa allir Grikkir. Okkur var sagt, að önnur eins
hitabylgja og var þennan mánuð, sem við vorum
í Aþenu, hefði ekki komið í hundrað ár. Jafnvel
Afríkukonurnar sögðust aldrei hafa komizt í ann-
að eins.
Umræðuefni á námskeiðinu voru margvísleg:
Staða konunnar í fjölskyldunni og þjóðfélaginu í
austri og vestri, uppeldismál, jafnrétti kynjanna,
borgaralegar skyldur og réttindi, æðri menntun
kvenna í austri og vestri, löggjöf, er sérstaklega
varðar fjölskylduna, o.fl. o. fl. Oft var umræðum
hagað þannig, að hver fulltrúi sagði frá, hvernig
málum væri komið í hans heimalandi.
Sjónarmið Vesturlandakvenna voru í aðalatrið-
um þau sömu og við þekkjum hér, en Austurlanda-
konur höfðu nokkuð aðra sögu að segja. Víða eru
feðurnir þar því mótfallnir, að dætur þeirra njóti
æðri menntunar. Við það verði þær uppivöðslu-
samari, vilji t. d. sjálfar ráða giftingu sinni. Þó
kom þeim öllum saman um, að háskólamenntaðir
karlmenn vildu heldur ganga að eiga menntaðar
konur. Víðast hvar er fjölkvæni úr sögunni, en
venjulegt er, að fjölskyldan ákveði ráðahaginn.
f Nígeríu, sem fékk sjálfstæði 1916, valda mis-
munandi trúarbrögð nokkrum erfiðleikum. Land-
ið er sex sinnum stærra en England, og þar búa
tvær milljónir manna. Vestur- og norðurhluti
landsins er að mestu byggður Múhameðstrúar-
mönnum, en í suðurhlutanum eru heiðnir menn
og kristnir, en kristnir menn ráða mestu. Flestir
eiga ekki nema eina konu, báðar fjölskyldur verða
að samþykkja ráðahaginn. Brúðguminn borgar
föður brúðarinnar ákveðna upphæð, er fjölskylda
brúðarinnar leggur til heimilið. Komið getur fyr-
4
19. J O N1