19. júní


19. júní - 19.06.1959, Side 15

19. júní - 19.06.1959, Side 15
einnig á hið leikræna í kveðskap hans. Finnst mér hann minna mig mikið á Euripides.“ „Nokkrar sérstakar persónur — goð eða hetj- ur — sem eru yður hugstæðar framar öðrum?“ „Þar vil ég telja Völund í Völundarkviðu. Enn- fremur Sigurð Fáfnisbana." „Þér hafið greinilega meiri mætur á hetjukvæð- unum en goðakvæðunum.“ „Goðakvæðin eru ekki eins áhrifamikil og goð- in ekki sérstaklega persónuleg. Óðinn er sérkenni- legastur — óhugnanleg dularfull persóna, marg- ræður, ekki alltaf heill. Mér finnst sterkari per- sónulýsingar i hetjukvæðunum. Annað, sem hefur hrifið mig i Eddukvæðunum, er það, sem ég vildi kalla orðgleðina eða frásagn- argleðina. Þar er mikil fjölbreytni í orðum, og þau falla vel að efninu. — Enn fremur finnst mér áberandi smekkvísi höfunda yfirleitt, utan ein- stakra kvæða, eins og Atlamála hinna grænlenzku, sem ég tel lélegan skáldskap. Völsungakviða hin forna ber vitni um mikla smekkvísi höfundar, og í Helgakviðunum er geysilega fagur og skrautleg- Ur skáldsk.apur.“ „Er það nokkuð sérstakt, sem þér munduð vilja bæta við það, sem við höfum þegar rætt?“ „Mig langar aðeins til að hvetja fólk til að kynna sér Eddukvæðin. Það er mesti misskilningur, að þau séu mjög torskilin, og til eru ágætar skýring- ar á því, sem erfiðast er. En þau geta veitt okkur uiargar ánægjustundir — þar er mikið um fagr- an skáldskap. Ég tel, að næstum öll Eddukvæðin hafi að geyma tigulegt málfar, gagnort og víða mjög fágað. Ég tel því öllum Islendingum, sem unna máli sínu, mikinn ávinning að kynnast þeim. Þau fjalla um örlög hugrakkra manna, sem vaxa með örðugleik- um og sjá sóma sinn í því að standa einir og upp- réttir, hvað sem að höndum ber, án barlóms eða undirgefni. „Ey var mér týja (tvísýni), meðan tveir lifðum, nú er mér engi, er ek einn lifik," sagði Gunnar Gjúkason. Hugsjón fornaldarinnar er einnig gagn- ort og tigulega fram sett i heilræði móðurinnar i Grógaldri: „Sjalfr leið þi'i sjalfan þik.“ Sturlunga saga var efni það, sem Herborg Gests- dóttir hafði valið sér. „Hvenær vaknaði áhugi yðar á Sturlungu og af hvaða ástæðu?“ „Ég byrjaði snemma að lesa bæði hana og Is- lendinga sögur, en verulegan áhuga á henni fékk ég ekki, fyrr en ég las útgáfu Magnúsar Jónsson- ar 1944. Þá las ég hana með vaxandi ánægju og hef gert það síðan alltaf öðru hverju. Það er hægt að lesa hana alla ævi og læra stöðugt eitthvað nýtt.“ „Eru það nokkrar sögur eða kaflar innan safns- ins, sem þér hafið mætur á framar öðrum?“ „Það er helzt Islendinga saga Sturlu Þórðarson- ar. Andi Sturlu, sem ég dái mikið, svífur alls stað- ar yfir vötnunum, þar sem hann er að segja frá ætt sinni og örlögum hennar. — Annars er erfitt að gera upp á milli sagnanna. Ég hef ánægju af að lesa þær flestar. Það er t. d. ein saga, sem er í litlu áliti — hún er illa skrifuð — en ég hef alltaf gaman af. Það er Guðmundar saga dýra. I henni er svo mikið af — ja, ég vildi kalla það bæjar- slúðri. Höfundur hefur verið nauðakunnugur sveitalífinu i Eyjafirðinum og þeim héruðum, þar sem sagan gerist." „Hvaða persónur eru yður hugstæðastar?" „Það er fyrst og fremst Sturla Þórðarson, höf- undur Islendinga sögu. Mér þykir mjög vænt um hann. — Annars eru mér í rauninni margar þær persónur sagnanna hugstæðastar, sem verst er far- ið með af höfundanna hálfu — þeir eru oft ærið hlutdrægir. — Vil ég t. d. nefna Vatnsfirðinga. Ég hneigist mjög til að taka málstað þeirra, fá samúð með þeim, leita þeim málsbóta. Einnig hef ég mætur á Þorvarði Þórarinssyni, þó að ég sé ekki viss um, að hann sé höfundur Njálu, eins og Barði Guðmundsson hefur haldið fram. En Sturla Þórðarson er mér kærastur. Hann vinnur á, þvi oftar sem ég les Sturlungu. — Snorri, föðurbróðir hans, finnst mér hins vegar tapa við nánari k}mni.“ „Eru það ákveðin skapeinkenni i fari þessa fólks, lundarfar eða eðlishættir, sem einkum hrífa yður?“ „Nei, það get ég ekki sagt. Það er eins og í líf- inu sjálfu. Okkur geðjast betur að sumu fólki en öðru án þess að gera okkur grein fyrir af hverju. Fólkið í Sturlungu er orðið vinir mínir og kunn- ingjar. Ég hef jafnvel fengið orð fyrir að vera í nánari tengslum við það og þá tíma en við nútím- ann og nútímafólk. Mér finnst ég þekkja fólkið svo vel — það er mér raunverulegra en margt annað. Einn af vinum minum er t. d. maður að nafni Kolbeinn grön, sem lítið kemur við sögu og er feikna ribbaldi — en hann er mér samt geð- felldur, og mér þykir vænt um hann. Svo er auð- 19. JtJNl 13

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.