19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1959, Qupperneq 22

19. júní - 19.06.1959, Qupperneq 22
skinna og öðru því, er til skógerðar var haft. En nú skal vikið að skógerðinni sjálfri. íslenzkir skór hafa efalaust frá öndverðu verið dregnir saman í opið með einhverjum hætti — með þveng eða þræði — og bundnir með hæl- böndum upp um öklann. Á 18. og 19. öld, eða svo langt sem vitneskja nær, hafa útiskór jafnan verið verptir, eins og hér verður lýst, og kallaðir verptir skór í daglegu tali. Skó þurfti að gera og bæta all- an ársins hring, en mest var þó unnið að skógerð, áður en heyannir hófust á sumri og fyrir jólin að vetrinum. Góðar búkonur létu jafnan fyrir slátt- inn gera þrenna til ferna verpta skó handa hverj- um heimilismanni og brydda spariskó handa þeim, sem ekki áttu þá fyrir. Húsmæður, sem ekki höfðu fyrir stóru heimili að sjá, sniðu jafnan sjálfar skinnin og tóku til í alla skó. Karlmenn þurftu þó að aðstoða við að rista niður í lengjur þykkar húðir af kúm eða hrossum. Tilsniðið efni í skó var kallað skœ8i, tvö skæði i eina skó, tvenn skæði í tvenna skó. Skæðið var ferkantað, um það bil 26 sm að lengd og 15 sm breitt i meðalkvenskó, en 29 sm langt og 19 sm breitt í meðalkarlmannsskó, en þurftu þó all- miklu stærri utan yfir tvenna til þrenna sokka. Annars var jafnan miðað við, að hver maður þyrfti stuttspönn sína og hálfa fingurhæð í skæðislengd utan yfir eina sokka, en stuttspönn er bilið milli þumalfingurs og vísifingursgóma (langspönn milli þumalfingurs og löngutangargóma). Breidd fótar- ins var breytilegri. Verptir skór, t. d. úr leðri, voru þannig gerðir: Skæðin voru mæld, höfð mjórri til hælsins og hæltotan sniðin af, þ. e. a. s. skorinn ávali á hæl- inn. Þá var tekinn grófur seymistygill, þræddur á þrístrenda nál, bundinn hnútur á endann ög brugðið ull í hnútinn, svo að hann rynni ekki af í bleytu. Ekki mátti ullin vera svört, því að þá var þeim búin feigð, sem skónum átti að slíta. Síðan var annað skæðið lagt saman á langveginn, hár- amnum snúið inn og saumur gerður á hæl og tá, þannig að nálinni var stungið í skæðisraðirnar á víxi, en aldrei gegnum báðar í einu nema við fyrsta sporið. Féllu þá raðirnar saman, svo að eng- inn varð saumgarðurinn; hnýtt var við síðasta sporið og brugðið ull í hnútinn. Þetta var kallað skósaumur. Stundum voru þó tásaumarnir gerðir með lausastangi — þéttu þræðingarspori — eink- um þó á skó úr sauðskinni. Er lokið var að gera saumana á bæði skæðin, voru ristir varpþvengir, þ. e. skornar ræmur af þvengjaskinninu endilöngu. Voru þeir hafðir 1 cm á breidd eða breiðari, ef skinnið var þunnt. Þeir voru bleyttir lítið eitt og síðan teygðir vel og slíp- aðir, eða snúið var upp á þá. Varpþvengir voru að jafnaði hafðir svo langir, að þeir gátu jafn- framt verið hælbönd. Nú var annar þvengurinn þræddur á skónál — varpanál. Hún var tvifjöðr- uð og flugbeitt. Var síðan byrjað að verpa skó- inn (verpa: kasta; sá, sem verpir skó, kastar frá sér, stingur nálinni frá sér inn í skóinn), hægra megin við hælsauminn um það bil 2 cm frá hon- um. Við fyrsta sporið var þvengurinn ekki dreg- inn út að enda, heldur skilinn eftir 25—30 cm langur spotti í hælband. Skórinn var lítið dreginn saman fyrst, en mest yfir tærnar og haldið áfram að verpa, þar til komið var að hælsaumnum vinstra megin og þó 2 cm frá honum. Var þá nóg eftir af þvengnum í hitt hælbandið. Varpið var lagað til, svo að það félli að fætinum, þegar skórinn var settur upp, hælböndin voru krosslögð aftan á hælnum og bundin upp um öklann. Ristarbönd úr þvengjaskinni voru jafnan höfð á útiskóm til að verjast því, að snjór eða óhreinindi færu niður með vörpunum. Ristarböndin voru dregin í skó- inn með skónál. Byrjað var um mitt skóopið inn- anfótar, rétt neðan við varpið, stungin fjögur spor meðfram varpinu á karlmannsskó með tveggja cm millibili, bandið síðan lagt yfir skóopið og dregið eins í hinum megin. Endar bandsins voru bundnir saman yfir ristina, þegar skórinn var sett- ur upp, og lágu þá tvö böndin yfir hana, sem héldu skónum vel að fætinum. 1 Islenzkum þjóð- háttum segir, að leðurskór hafi stundum verið verptir með togþræði, en hælbönd og ristarbönd höfð úr skinni. Ekki mun vitað, hvenær bryddir skór fóru fyrst að tíðkast, en spurzt hefur til þeirra með vissu skömmu eftir 1800 og voru þá eingöngu hafðir spari. Vera má, að þeir hafi verið til komnir löngu fyrr. I gömlu vísubroti eru nefndir skór með rauð- um bryddingum. En á síðustu tugum 19. aldar var orðið alsiða að brydda alla inniskó. Eftir aldamót- in, þegar saumavélar voru komnar á hvern bæ, fóru konur að gera sauma á skó í saumavél, og bryddingar voru þá einnig saumaðar þannig á skó, ef skinnið var ekki mjög þykkt eða stælið. En nú skal skyggnzt inn á lítið heimili á seinni hluta 19. aldar, þar sem jólaskógerðin fer fram, það er nokkrum dögum fyrir jól. 20 19. .1 fJNl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.